Hlynur - 15.03.1956, Qupperneq 7
i
Mynd úr safni Guðmundar. Maðurinn
stendur hjá steinrunnum trjábol, sem
fannst í fjallshlíð norðan Loomundar-
fjarðar, 500 m yfir sjó.
nokkur vafi á einhverju fyrirkomulagl
hinna 40 birgðastöðva Olíufélagsins. I
safni hans er líka að f.nna myndir af
ýmsu, sem hann hefir ve.tt athygli á
ferðum sínum. Skipta myndirnar sjálf-
r.agt hundruðum og eru frá hinum lík-
legustu og ólíklegustu stöðum.
Skapanornirnar ákváðu snemma, að
Guðmundur skyldi starfa við vélar og
járnsmíðar. Vart 12 ára gamall var
hann sendur heila dagle ð til að setja
saman sláttuvél í annarrl sveit, þá
fyrstu, sem þangað kom. Þegar hann
var 16 ára lá leið hans til Danmerkur,
þar sem liann lærði vél- og ketilcmíðar.
Tvítugur stjórnaði hann framkvæmd-
um við Skeiðaáve tuna og svona mætti
lengi telja. Hann hef r alltaf starfað við
vélar og járnsmíðar, það hefir átt hug
hans allan. — En nú er kallað á Guð-
mund. Hann kveður sjómennina og létt-
ur í spori hraðar hann för sinni til
smiðanna v ð geyminn, leysir úr spurn-
Framh. á bls. 15.
ÞREFALT AFMÆLI
Karl Hjálmarsson, kaupfélagsstjóri á
Hvammstanga, átti þrefalt afmæli um
áramótin. Hann vacð fimmtugur 17.
desember, átti 25 ára kaupfélagsstjóra-
afmæl' 1. janúar og hafði þá lagt 30
ár að baki sem starfsmaður samvinnu-
félaganna. Karl er fæddur að Ljóts-
stöðum í Laxárdal árið 1900. Hann inn-
r.taðist í eldri deild Samvinnuskólans
1923 og lauk þaðan prófi um vor ð.
Réðist til Kaupfélags Revkjavíkur í
ársbyrjun 1926. Hjá Kf. Reykjavíkur
var hann samtíða Sigurliða Kristins-
syni og Valdemari Þórðarsyn!, sem þar
voru báð r deildarstjórar. Þeir eru nú
kunnari fyrir önnur störf og önnu. nöfn,
eða sem Silli og Valdi. A m’ðju næsta
sumri fór Karl til Kaupfélags Borgar-
fjarðar og starfaði þar næstu fimm ár-
’n. 1931 réðist hann kaupfélagsstjóri t‘.l
Kaupfél. Langnes-
inga, Þórsh.. Þar
voru þá starfandi
tvö félög, en Karli
tókst á skömmum
tíma að sameina
þau. Karl starfaði
á Þórshöfn í 17
ár, eða fram 11
1947 er hann tók
við störfum hjá
Kaupfélagi Vest-
ur-Húnvetninga af
Skúla Guðmundssyni, alþingismanni,
sem þar var áður kaupfélagsstjóri.
Karl á að baki glæsilegan starfsferil
hjá samvlnnufélögunum. Hlynur árnar
honum og konu hans, Hólmfríði Ingi-
marsdóttur allra he lla á þessum merku
tímamótum.
Karl
7