Hlynur - 15.07.1956, Side 11
Stafagerð og
skreytingar
Einn Iiður í búða- og glugga-
skreytingum er gerð auglýsinga-
spjalda. Að vonum eru menn
misjafnlega góðir teiknarar oj
mörgum ekki hent að ann-
ast þessa hlið málanna, þó
þeir sé góðir útstillinga-
menn að öðru leyti.
Nýlega flutti inn-
flutningsdeild SÍS
inn frá Þýzka-
landi einföld tæki, sem gera öllum
kleift að búa til auglýsingaspjöld,
myndskreyta og skrifa á þau. Hér er
um lítinn kassa að ræða, er í honum
margar gerðir stafa úr þunnum málmi,
og ýmis konar merki, sem notuð eru til
skreytingar. Einnig er í kassanum lítil
handsprauta. Stöfunum og merkjunum
er raðað á spjald og síðan er íiðað lit
yfir spjaldið úr sprautunni og þegar
liturinn er orðinn þurr eru stafirnir
teknir burtu og þá er spjaldið tilbúið.
Einnig er hægt að klippa stafi í pappa
og sprauta í stafaförin, líkt og gert er
þegar tunnur eru merktar.
Þetta nýja tæki gefur óteljandi skreyt-
inga möguleika framyfir þau merki,
sem í kassanum eru. Hægt er t. d. að
taka úr blöðum ýmis konar skraut og
klippa það í þunnan málm eða pappa
og nota síðan í spjaldagerðinni.
HEILLAÓSKIR
Nýlega hafa verið gefin saman í
hjónaband:
Ungfrú Aagot Árnadóttir, aðalskrif-
stofu SIS, og Guðmundur Halldórsson,
skipverji á m/s Helgafelli.
Ungfrú Regína M. Birkis, bókhalds-
deild SIS, og Jón Gunnlaugsson, Sam-
vinnutryggingum.
Ungfrú Bryndís Þorleifsdóttir, innfl.-
deild SIS, og Jón Þór Jóhannsson, deild-
arstjóri í sömu deild.
Ungfrú Ingibjörg O. Gunnarsdóttir
frá Miðbæ í Dýrafirði og Halldór Ö.
Magnússon, fyrrverandi skrifstofustjóri
hjá Kf. Dýrfirðinga, hafa nýlega opin-
berað trúlofun sína.
„Þér er nœr að vera ekki alltaf að fela
veskið þitt fyrir mér.“
11