Hlynur - 15.09.1972, Side 10
FERILRIT
mjög áríðandi, að við vitum all-
an timann, að við séum á réttri
leið og getum lagt fram hald-
bær rök fyrir ákvörðun okkar.
Ef við athugum aðgerðirnar
verðum við að gera okkur full-
ljóst, hvort verkið er í raun og
veru nauðsynlegt. Getum við
komizt af án alls verksins? Ef
verkið er nauðsynlegt, þá rann-
sökum við hverja einstaka að-
gerð þess. Við hverja aðgerð
spyrjum við: Hvað er það sem
í rauninni gerist? Af hverju er
þetta framkvæmt? Þegar við
virðum vinnuna, komumst við að
þeirri niðurstöðu, að hún skipt-
ist í þrjá hluta:
Að undirbúa verk.
Að framkvæma það.
Að ljúka verki.
Það er framkvæmdin, sem er
aðalatriðið. Ef við getum úti-
lokað sjálfa framkvæmdina, get-
um við lagt niður undirbúning-
inn og lok verksins.
Ekki eru allar aðgerðir jafn
mikilvægar og undir vissum
kringumstæðum er vafaatriði, í
hvaða röð eigi að framkvæma
þær. Ef við spyrjum, hvar verk-
ið á að vinnast, hvenær og
hvaða starfsmaður á að vinna
það, geta svörin verið á þann
veg, að hægt sé að sameina að-
gerðirnar. Með sameiningu að-
gerðanna sparast jafnframt
flutningur og sá tími, sem líður
milli þeirra. Oft getur verið
hentugt að breyta verkrásinni.
Það er ekki alltaf hægt, en ef
svo er, getum við e. t. v. minnk-
að biðina, skapað með því betri
þjónustu og dreift vinnuálaginu
á herðar fleiri starfsmanna.
Slíkt er óneitanlega mikill kost-
ur. Þá er ekki síður nauðsyn-
legt að bæta vinnuaðferðir
vanabundinna og staðlaðra
verka.
VI.
NIÐURLAG
Höfundi er fullljós takmörkun
greinarinnar og agnúar, sem á
henni eru. Þrátt fyrir augljósa
annmarka er þó von, að í henni
hafi verið eitthvað umtalsvert.
Á það var í upphafi minnzt, að
hagræðingarverkefni væru svo
víðfeðmt svið, að þess væri eng-
inn kostur að draga fram einn
þátt þeirra, án þess að ýmislegt
fleira fengi að fljóta með. Grein-
in er að mestu byggð á riti frá
Sveriges Mekanförbund í Stokk-
hólmi „Grafisk beskrivning av
arbetsrutiner inom kontoret“ og
bókinni „Handbog för Kontoren“
bls. 125-144 eftir Leif H. Skare.
Ýmsar fleiri heimildir má tína
til, þó það sé ekki gert hér.
Ef greinin hefur vakið skilning
og áhuga lesenda á gildi hvers
konar hagræðingar, er í raun og
veru tilganginum náð.
Hrafn Magnússon, Bifröst.
10 HLYNUR