Hlynur - 15.09.1972, Side 16

Hlynur - 15.09.1972, Side 16
Auglýsingar eru ævagamalt fyrirbæri, þó að það flóð þeirra, sem við þekkjum, hafi fyrst komið til sögunnar á síðari tím- um. Þannig er talið, að vopna- smiðir í Evrópu fyrir tveimur til þremur árþúsundum hafi auglýst örvarodda sína og brons- sverð, og á miðöldum notuðu kaupmenn í evrópskum borgum bjöllur og kallara til að lokka viðskiptavini til búða sinna. Nú á dögum er ýmislegt brall- að til að vekja athygli væntan- legra viðskiptavina á vörum, o% takist einhverjum að búa til auglýsingu, sem virkilega slær í gegn, getur sá hinn sami selt hana dýrum dómum. Það má ætla, að svo hafi ver- ið háttað um þann, sem bjó til fílinn, sem sést hér á mynd- inni. Teikningin er frá um 1880 og sýnir einkennilegan hlut, sem þá gat að líta á götum Parísar- borgar. Einhver hugvitsamur náungi fékk þessa hugmynd og hrinti henni í framkvæmd, en hún var í því fólgin, að hann smíðaði eftirlíkingu af risa- stórum fíl, sem beindi ranan- um upp í loftið. Þessum fíl var stillt upp á vagn á hjólum, og fyrir vagninn var spenntur hest- ur, sem maður teymdi. í söðl- inum uppi á fílnum sat svo annar maður, sem veifaði flögg- um og hrópaði og kallaði til að draga að sér athygli þeirra, sem framhjá gengu. Vegfarendur, sem áttu leið um þar sem þessi hersing fór, sáu ekki annað en það sem hér hefur verið lýst, en gera má ráð fyrir, að þeim hafi brugðið, er fíllinn hóf allt í einu að blása pappírsmiðum út um ranann, sem fuku í allar áttir og dreifð- ust um nágrennið. Galdurinn var sá, að fíllinn var útbúinn á svipaðan hátt og Trójuhesturinn forðum, þ.e. inni í honum sat maður, sem hafði það verkefni að feykja á- litlegum stafla af miðum út um ranann með loftþrýstingi í hvert sinn sem nægilega stór hópur áhorfenda hafði safnazt saman umhverfis. Þetta kom fólkinu svo sannarlega á óvart, og þegar miðarnir fuku í allar áttir, teygði það sig ósjálfrátt eftir þeim og las það sem á þeim stóð. Þessi þjónusta stóð til boða hverju því fyrirtæki í París, sem vildi reyna að draga til sín viðskiptavini með því að dreifa flugmiðum, sem lýstu á- gæti tiltekinnar vöru, til veg- farenda á götum borgarinnar. Slíkt var algeng auglýsingaað- ferð á þeim tíma, og mun hug- vitsmaðurinn hafa hagnazt vel á uppfinningu sinni. Hins veg- ar fara ekki sögur af því, að þessi aðferð hafi verið reynd síðan, en hugsa mætti sér, að einhverjum gæti flogið í hug að endurvekja hana. Snjöll auglýsingar- hugmynd H L Y N U R BlaS um samvinnumál 9. tbl. 20. árg. september 1972 Hlynur er gefinn út af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, Starfsmannafélagi SÍS og Félagl kaupfélagsstjóra. Ritstjórar eru Sigurður A. Magnússon (ábm.) og Eysteinn Sigurðsson. Auk þeirra eru í ritnefnd Geir H. Gunnarsson og Gunnar Sveinsson. Ritstjórn og afgreíðsla eru hjá Fræðsludeild SÍS, Ármúla 3, Reykjavík. Verð kr. 225,00 érgangurinn, kr. 20,00 heftið. Kemur út mánaðarlega. — Prentun: Prentsmiðjan Edda hf. 16 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.