Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 3

Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 3
HLYNUR 2. tbl. 30. irg. 1982 Útgefendur: L(S og NSS Ritstj. og ábm.: Guðmundur R. Jóhannsson Útgáfustjórn: EvaÖrnólfsdóttir, Gunnar Sigurösson, Pálmar Arnarsson, Reynir Ingibjartsson, Vigdís Palsdóttir. Auglýsingar: Reynir Ingibjartsson, s. 21944. Sigurður Pórhallsson, s.81411. Afgreiðsla: Hamragarðar, Hávallagötu 24, sími: 21944. Umbrot og filmuvinna: Repró. Tölvusetning og offsetprentun: Formprent. Ljósmyndir: Skyggna hf. Prentuð eintök: 6.000. Fjöldi áskrifenda: 5.500. Forsíðumynd: Þær eru hressar þessar, enda voru þær að útskrifast frá Bifröst 1. maí s. I. Sá skemmtilegi háttur hefur verið síðastliðin tvö ár að stúlkurn- ar sem útskrifast klæðast íslensk- um búningi. Við eldumst líka Ágæti lesandi! Árið í ár er helgað öldruðum og þess vegna langar mig til að óska okkur öllum, sem enn erum að eldast, til hamingju með það. Sagt er, að Oscar Wilde hafi látið hafa eftir sér: „sð slæmt væri að þurfa að fara í boð, en verra væri þó að vera ekki boðinn". Það má að sumu leyti segja það sama um ellina, hún er mörgum afar erfið, en samt vilja menn ekki deyja mjög ungir. Ekki veit ég hvort betra væri, að menn byrjuðu lífið gamlir og yngdust svo þar til þeir hyrfu, því eins og bjartsýnismaður sagði törðum: „að öllu er nokkuð". Eitt at'því, sem gerir fólki erfitt fyrir er, að það hefur ekki leitt hugann að því hvcrnig sé að eldast. Þetta er eitthvað sem kemur fyrir hina. Það hefur ekki reynt að hugsa sér hvernig það vill verja ævikvöldinu. Um marga má segja, að þeir eiga því miður engra kosta völ vegna sjúkdóma eða annarra utanaðkomandi erfiðleika, en með bættum kjörum og minni þrældómi eru þó margir, sem geta lifað tiltölulega eðlilegu lífi langt frameftir aldri, þó e. t. v. þurfi aðstoðar við eitt og annað smávegis. Annað er, að gamalt fólk hefur ekki átt upp á pallborðið hjá auglýsend- um nútímans, og má um kenna sjálfsagt, að það er hætt að láta glepjast til að kaupa fánýtið. Ef hins vegar blaðinu yrði snúið við og það yrði tíska að vera gamall, þá yrði það litið öðrum augum. Ef hamrað væri á fegurð ellinnar, sem svo sannarlegaer til, daginn út og daginn inn, þá færu fleiri að trúa, aö henni gæti fylgt margt gott. Vandfundinn er meiri fegurð en í andlitum aldinna góðmenna. Það, sem kemur fólki, sem er að eldast og öldruðum best, er sjálfsagt samhjálp og samvinna. Mörg kaupfélög hafa tekið upp þann góða hátt að taka ekki mikið mark a lögboðnum eftirlaunaaldri, heldur reyna að láta fólk hafa vinnu í samræmi við þrek þess og vilja. í framtíðinni þegar við höfum lært að byggja dvalarheimili fyrir aldraða svo öllum líki, þá verður sennilega ekkert, sem kemur þeim betur en byggingasamvinnufélög, þar sem menn geta byrjað að leggja í stofnsjóð á unga aldri og tekið þannig þátt í uppbyggingu sinna eigin heimkynna þegar þeir þurfa á þeim að halda og eru samábyrgir fyrir ellinni, hvort sem er þeirra eða annarra. Það sem við þurfum að sjá þegar við horfum á aldraða er að sjá okkur sjálf. Setja okkur í þeirra stað og reyna að skilja hvernig ellin er. Hún getur gert okkur gott en líka illt og enginn er óhultur fyrir duttlungum hennar. Eg bið svo öldruðum blessunar á þessu ári og öðrum, svo og okkur, sem eigum þetta eftir. — vigdíspálsdóltir. HLYNUR 3

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.