Hlynur - 15.04.1982, Qupperneq 6

Hlynur - 15.04.1982, Qupperneq 6
BÆGJUM HIIMDRUIMUM BURT INNGANGAR Utan við Holtagarða er gangstéttarbrúnin 18 sm há, en þegar upp fyrir brúnina er komið, tekur við góður hellulagður flötur og mjög aðgengilegur inngangur. # Bægjum hindrunum burt er fyrirsögn þessa myndaflokks sem birtist núna og áætlað er að komi í nokkrum næstu blöð- um. Þessar hindranir eru oftast smávægi- legar fyrir okkur sem enn erum ekki gömul til baga og líkamlega heil. En fyrir hina eru þessar hindranir oft óyfirstígan- legur þröskuldur. Hvort sem við erum á ári fatlaðra eða ári aldraðra eða aðeins á ári venjulegra mannlegra samskipta koma þessar hindr- anir öllum við. Því er hugmyndin með þessum myndum að vekja athygli á ýmsu sem virðast kunna sjálfsagðir hlutir en verða útundan fyrir einskært hugsunar- leysi. Þeir Karl Brand hjá Endurhæfingar- ráði og Vigfús Guðmundsson frá Sjálfs- björg hafa undarfarið skroppið með Kristjáni Pétri ljósmyndara, á ýmsa vinnustaði samvinnuhreyfingarinnar hér í Reykjavík og kannað ástandið með þetta í huga. Með þessu er ekki verið að ásaka neinn, heldur er ætlunin að benda á það sem betur má fara og einnig að geta þess sem vel er gert. Hafa ber í huga, að við byggingu elstu húsanna voru sérhags- munir ekki hafðir I huga og í raun er svo skammt síðan þessi mál komust í sviðs- ljósið að þessvegna er víða pottur brotinn. Nú tökum við fyrir innganga. Og víða þarf lítið að laga. Dálítill flái á stétt, hag- anlegt handrið við tröppur eða góðar dyr með sléttum fleti getur skipt sköpum hvort fólk kemst leiðar sinnar eða ekki. Og þessi þægindi geta stundum komið okkur sem heil erum til góða. Litum á þessar myndir og lítum síðan á okkar vinnustað. Hvað þarf að bæta? Er það mikið fyrirtæki? Gæti það ekki verið kostnaðarins virði? • Bægjum hindrunum burt.

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.