Hlynur - 15.04.1982, Page 9
Áætlunarflug vestur og norður
Áœtlunarflug tilogfráofangrándum ARNARFLUG
Innanlandsflug 29577
stöðum. Láguflugum allt land.
um liðum, eins og venjulega var lokið, þ. e. miðasala,
dyravörður, fatahengi, gekk sæmilega að komast áfram í
mannþrönginni, en þó var einn og einn, sem notaði jarð-
ýtuaðferðina við að koma sér áfram. Gekk það að mestu
stórslysalaust, þótt kók og djús sullaðist yfir mannskap-
inn, þegar fyrirbærið geystist framhjá.
Annars var það eitt sem ég tók fljótlega eftir. Það var
hvernig fólk horfði á þennan vesaling og velti fyrir sér í
hljóði, hvað væn eiginlega að honum. Mátti lesa ýmislegt
úr svipbrigðum fólks og hátterni, hvað það hugsaði. Mið-
aldra frú horfði á mig með samúðarsvip og mældi mig út
frá hvirfli og niður úr, með þannig svip, að manni vöknaði
um augu. „Auminginn, að rembast með þetta á hækjum,
vitandi það, að hann er með krabba og fóturinn verður
ábyggilega ekki á honum eftir mánuð".
Önnur dálítið yngri vel við skál: „Honum veitir nú ekki
af einum fótastyrkjandi þessum".
Einn af fastagestum staðarins: „Þetta er nú meiri auli-
nn, hefur ekki nennt að bíða í biðröð og vonast til að sér
yrði hleypt strax inn, eða misst bílprófið og notar þetta
sem afsökun til að þurfa ekki að keyra".
Pannig gekk það allt kvöldið og hafði ég lúmskt gaman
af. Þegar ég var á leið út, geng ég framhjá borði, þar sem
nokkrar saumaklúbbskonur sátu. Tekur þá ein sig úr
hópnum og spyr mig, hvað hafi komið fyrir mig. Ég lít fast
framan í hana og segi grafalvarlegur: „Konan sparkaði
svo fast í mig, að ég fór úr ökklaliðnum".
„Jesús", hrópaði konan og tók bakfall, og var þar með
rokin. Seinast sá ég hana sitja við borðið, óðamála, en
augnabrúnir vinkvennanna hurfu upp fyrir ennið.
4 maí 1982.
HLYNUR 9