Hlynur - 15.04.1982, Side 10
Bjarni Helgason, Egilsstöðum
IJr reisubók bakarameistara
Samvinnubrauðgerða
Frá námskeiöi Samvinnubakara á Húsavík
í okt. 1980. F, v.: Sveinn Benónýsson,
Hvammstanga; Rene Tornare, Sviss, leiö-
beinandi; Kjell Berglund, A. B. Juvel i Sví-
þjóö, leiðbeinandi; Hermann Jónsson, Ak-
ureyri; Ottó Sigurðsson, Neskaupstað og
Bjarni Helgason, Egilsstöðum. Myndina tók
Evert Evertsson, Húsavík, en auk þess
vantar á myndina; Sigurð Hjartarson, Höfn;
Vilhjálm Hallgrímsson, Akureyri; Stefán
Árnason, Selfossi og Albert Þorkelsson,
Borgarnesi.
# Frásögn mín hefs't í Reykjavík
síðla laugardags 9. jan. s. I. fyrir utan
Esjuberg. Veðrið var fremur kalt og
vindur úr öllum áttum eins og oft er í
Reykjavík.
A Esjubergi ætlum við að hittast
fimm bakarar frá samvinnubrauð-
gerðunum víða um land, ásamt
Höskuldi í Kjarna, Ásgeiri í Bako og
Pálmari í Innflutningsdeild til að
ræða ferðaáætlun okkar fimmmenn-
inga til Danmerkur, Svíþjóðar og
Þýskalands. Ég æði áfram eftir gang-
stéttinni til að ná í húsaskjól, áður en
næðingurinn kæli mig niður úr öllu
valdi. Margir bakarar eru ákaflega
kulvísir og ég er þar engin undan-
tekning.
„Bjarni, Bjarni!" heyrist hrópað
fyrir aftan mig og út úr bíl snarast þrír
menn. Tveir þeirra eru frekar breið-
vanir, en hinn þriðji er mesti væskill í
samanburði við þá. Siggi bakari á
Hornafirði nær fyrstur í hönd mína
og heilsar með breiðu brosi. Hinn
stóra manninn hef ég aldrei séð áður,
en mig rennir grun í að þar sé kominn
frá Akureyri „maðurinn með stóra
nafnið", þ. e. Jónas Hallgrímsson. Sá
þriðji og mjói er auðvitað Pálmar,
sem er þarna á ferð til að kynna okk-
ur plön sín.
Við göngum inn og hittum þar fyr-
ir Svein frá Hvammstanga, sem situr
við borð eitt og lítur hálf vesældar-
lega út, enda með flensu og smitberi.
Brátt bætast í hópinn Ásgeir og
Höskuldur, en þeir tveir eru umbjóð-
endur erlendra fyrirtækja, sem ætl-
unin er að við heimsækjum í ferð
okkar. Þá eru allir mættir, nema Al-
bert frá Borgarnesi, sem er kominn
til Keflavíkur og ætlar að hitta okkur
þar, daginn eftir.
Við ræddum fyrirhugað ferðalag
og áttum þarna mjög gagnlegar við-
ræður á meðan Stefán Jökulsson rísl-
aði við píanóið úti í horni. Ákveðið
var, að Ásgeir færi með okkur til
Þýskalands og lóðsaði okkur þar í
gegnum námskeiðið og kynnisferð
hjá fyrirtæki, sem hann hefur umboð
fyrir hér heima, en Höskuldur gat
ekki farið með, en ætlaði þess í stað
að afhenda okkur danskri fabrikku,
þar sem við yrðum skólaðir til í fag-
inu.
Hvað stóð til?
Ágæti lesandi! Þú, sem lesið hefur
framanritað vilt e. t. v. fá að vita
meira um þetta tilstand hjá þessum
bakarahópi.
Hvers vegna er þessi lýður þarna
samankominn og fyrir hverra tilstilli?
Haustið 1980 hélt Landssamband
bakarameistara aðalfund sinn á Húsa-
vík. Að honum Ioknum komu saman
í brauðgerð K. Þ. sjö af níu meistur-
um brauðgerða, sem kaupfélögin
reka víðsvegar um landið. Til þessa
fundar var sérstaklega boðað og lögð
áhersla á, að sem flestir bakarar
kaupfélaganna sæju sér fært að
koma.
Þarna voru einnig mættir Kell
Berglund frá Svíþjóð og Rene Tor-
nore, svissneskur konditor. Kell
kynnti okkur meðferð á sænska
hveitinu, sem allir kaupfélagsbakar-
ar nota nú og Rene lumaði á ýmsum
10 HLYNUR