Hlynur - 15.04.1982, Side 12

Hlynur - 15.04.1982, Side 12
Hérer unnið við einhvern dýrindis bakstur. okkur félagana. Ferðinni var nú heit- ið til Kulmbach, 130 km frá Núrn- berg. Veðrið var stillt, snjór yfir öllu og kalt. Við vorum sóttir í bifreið, sem Þjóðverjum þykir sjálfsagt til- hlýðilegt að flytja bakara í, svokall- aða „micro-bus“, sem við hér heima köllum rúgbrauð. Bílar þessir eru á- kaflega kaldir og var þessi engin und- antekning. Var framrúðan eini skjár- inn, sem sást út um, hinar voru allar þykkhélaðar. Eftir Iangan akstur, að mér fannst, komum við loks til Kulmbach. Þar var okkur tekið tveim höndum, af framkvæmdastjóra Ireks Akardy, hr. Bergmann, og drifnir beint á nám- skeið í tilraunabakaríi fyrirtækisins. Kennarinn var hvorki meira né minna en doktor í okkar fagi. Heitir hann dr. Gaubach og undir hans leið- sögn vorum við leiddir í allan sann- Ieika um hvernig ætti að prófa gæði smjörs og annarra efna, sem við höf- um í höndunum frá degi til dags. Ireks Akardy er mjög stórt fyrirtæki og framleiðir m. a. hjálparefni til brauðgerðar, sem okkur voru kynnt. Dagurinn leið fljótt og um kvöldið bauð hr. Bergmann okkur til kvöld- verðar á veitingahúsi, skammt frá hótelinu, þar sem við bjuggum. Þetta var ákaflega skemmtileg stund, menn skiptust á sögum hver frá sínu 12 HLYNUR landi og dr. Gaubach sagði m. a. frá því, hvernig hann slapp við að gegna herþjónustu í seinni heimsstyrjöld- inni, vegna þess að hann og faðir hans voru einu bakararnir í heimabæ hans, og ekki mátti bærinn verða brauðlaus. Einnig var frásögn hans athyglisverð af því hvernig hann bak- aði brauð í svörtustu Afríku og leysti þar vandamál með undir- og yfirhita á bráðsnjallan hátt. í skoðunarferð. Kvöldið leið hratt og áður en varði var kominn háttatími og daginn eftir áttum við að skoða fyrirtækið. Næsta dag vorum við sóttir á hótelið í stórri rútu og bílstjórinn tjáði okkur að í dag væri hvorki meira né minna en 24° frost. Veðrið var ákaflega stillt, en samt nísti kuldinn og trén þarna voru ákaflega falleg með þykku hélu- lagi, sem glampaði á í sólskininu. Við byrjuðum á að setjast niður og hlusta á fyrirlestur hjá dr. Gaubach, sem Dennis og Ásgeir þýddu jafn- óðum. Síðan hófst skoðunarferð um byggingar fyrirtækisins — og þvílíkt flæmi! Við gengum um tilraunabak- arí, efnarannsóknarstofu, upp og niður stiga, kíktum inn í komsíló og tanka, þar sem verið var að vinna þurrsúr í brauð og allt í einu var kom- inn tími til brottferðar. Við kvöddum hr. Bergmann og stigum inn í rúg- brauðið og þar hittust Albert og taskan hans aftur, eftir tveggja sólar- hringa aðskilnað. Aftur til Danmerkur. Ferðin til Núrnberg var býsna kuldaleg og vorum við fegnir að komast inn í flugstöðina þar. Ferða- máti okkar frá Núrnberg breyttist allmikið, því úr ,,micro-bus“ stigum við upp í ,,air-bus“ og var það mikil breyting til hins betra. Flugið til Frankfurt tók stuttan tíma og skildi Ásgeir þar við okkur, Því hann ætlaði til Hamborgar á heimleiðinni. Síðan flugum við til Kaupmannahafnar og þar kvaddi Dennis, enda kominn til síns heima og framundan hjá honum var skíðaferðalag til Austurríkis. Við fluttum okkar hafurtask í inn- anlandsflug, því nú lá leiðin út á Jót- Hlegið að einum góðum. land, nánar tiltekið til Julesminde, þar sem við ætluðum að skoða Credin-verksmiðjurnar og læra sitt af hverju um notkun þeirra efna, sem þar eru framleidd til brauð- og köku- gerðar. Þar sem við sátum í biðsal innanlandsflugsins þótti Jónasi nátt- úrlega tilvalið að fá sér í pípu. Vindur sér þá að honum strákur og bað um eld í sígarettu. Varla var komin glóð í sígarettuna. þegar strákurinn þaut til stúlku, sem kom aðvífandi rétt í því. Kysstust þau svo innilega, að auðséð var, að þessi smá glóð, sem strákur- inn fékk hjá Jónasi, hafði blossað upp innvortis.

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.