Hlynur - 15.04.1982, Qupperneq 15
Magga, Hrönn, Dóra, Steindóra og Kristbjörg syngja við undirleik Árni Magnússon syngur gamanvísur við undirleik Gunnars Sig-
Árna Magnússonar. Gunnar Sigmarsson kom þar líka við sögu, en marssonar.
komst ekki fyrir á myndinni.
FRÁ VOPNAFIRÐI
• Starfsmanrrafélag KVV hélt árs-
hátíð sína, þá aðra í röðinni, í Mikla-
garði þ. 20. feb. s. 1. á afmæli Sam-
vinnuhreyfingarinnar. Samkoman
var fjölmenn. Nær allt starfsfólk
KVV var þar mætt, með betri helm-
inginn, og fleiri gesti.
Ekki skorti neitt í mat og drykk, og
einnig var vel séð fyrir andlega fóðr-
inu.
Jón Þór Guðmundsson, formaður
félagsins setti hátíðina með smá
ræðustúf, og bauð síðan Alexander
Arnason vera veislustjóra. Munaði
litlu, að hann hnekkti Olympíumeti
Vilhjálms Einarssonar í þrístökki, á
ferðum sínum milli borðs og ræðu-
púlts (Hann var sem sé nýsloppinn úr
gifsi).
Ýmislegt var til skemmtunar með-
an á borðhaldi stóð:
Gunnar Sigurðsson flutti létt efni,
stolið og frumsamið, þó meira frum-
samið. Árni Magg söng gamanvísur
ortar af Jóni Pór við harmoníkuspil
Gunnars. Auglýsingar komu í smá-
skömmtum, flestar úr fylgsnum
Myndarlegur hópur við eitt borðið.
KVV. Vinsælast á dagskránni var
tískusýning, þar sem þeir Dúddi,
Kristján og Ómar sýndu nýja og
gamla kvenfatatísku. Kynnir: Ásta
Ólafsdóttir. Sýningardömur þessar
höfðu það öfugt við fatafellur að þær
bættu stöðugt á sig fötum í þessari
röð: að fyrst fengu gestir að virða
fyrir sér ýmiskonar baðfatnað, á
þrýstnum kroppum þeirra, þar næst
breytilega náttfatatísku, gagnsæja
eða ógagnsæja, og að lokum flotta
kvöldkjóla með ýmsu sniði, þessu
fylgdi að sjálfsögðu svo þokkafullar
hreyfingar, að þeir þekktustu á
Broadway falla í skuggann.
Að síðustu sungu þær Kristbjörg,
Magga, Hrönn, Dóra og Steindóra
nokkra gamla slagara við undirleik
Árna og Gunnars.
Árshátíðinni lauk svo með þrum-
andi dansleik, Iék 5 manna hljóm-
sveit gömlu og nýju dansana, og allir
dönsuðu af miklu fjöri til kl. hálf
fjögur um nóttina, stauluðust sár-
fættir heim „fullir" af skemmtilegum
minningum. — Halldóra Aðalsteinsd.
Kristján Magnússon sýnir náttfatnað á
tískusýningunni.