Hlynur - 15.04.1982, Page 17

Hlynur - 15.04.1982, Page 17
Frá Stf. Kf. Dýrðfirðinga Rætt við Andrés Guðmundsson • Aðalfundur var haldinn þriðju- daginn 20. apríl og mæting var góð, rúml. 50%. Stjórnin var endurkjörin. Formað- ur: Magnús Sigurðsson; ritari: Krist- ín Kristjánsdóttir; gjaldkeri: Helga Aðalsteinsdóttir og meðstjórnendur: Aðalsteinn Gunnarsson og Andrés Guðmundsson. Þá var Andrés endurkjörinn full- trúi starfsmanna í stjórn Kf. Dýrfirð- inga. Varamaður: Aðalsteinn Gunn- arsson. Það er í samþykktum starfs- ntannafélagsins, að fulltrúi starfs- manna sé kosinn á aðalfundi þess. Starfsemin hefur verið með mjög líflegu móti í vetur. Par er fyrst að telja félagsmálanámskeið, sem hald- ið var í nóvember 1981 í samvinnu við Lionsklúbbinn, verkalýðsfélagið og íþróttafélagið Höfrung. Kaupfé- lagið og Þingeyrarhreppur styrktu námskeiðið. Þátttakendur voru 22. þar af 9 konur. Leiðbeinandi var Guðmundur Guðmundsson, fræðslu- fulltrúi Sambandsins. Allir voru sér- staklega ánægðir með námskeiðið og samdóma um, að betri leiðbeinandi væri vandfundinn og áhugi á að fá hann aftur á staðinn. Síðan stóðun við fyrir hnýtingar- námskeiði í desember þar, sem þátt- takendur voru 25, þar af einn karl- maður. Leiðbeinandi var Borgný Gunnarsdóttir, kennari við Grunn- skólann á Þingeyri. Þetta var mjög rómað af þeim, sem námskeiðið sóttu og margir og fagrir gripir urðu til. Við héldum árshátíð okkar 13. mars í félagsheimilinu á Þingeyri. Hún var að vanda byggð á ýmsum skemmtiatriðum, leik, söng, gríni og glensi — allt heimatilbúið. Hún er þannig byggð upp, að um daginn er barnaskemmtun og skemmtun fyrir fullorðna um kvöldið og dans á eftir. Ágóði af þessari skemmtun er notað- ur til helgarferðar starfsfólks til Reykjavíkur og sú ferð var farin helgina 23.-25. apríl og þá prófuð- um við þá nýjung, að Átthagafélag Dýrfirðinga tók þátt í sameiginlegri kvöldskemmtun með borðhaldi og dansi og sóttu þá skemmtun 167 manns. Hún var haldin í Félagsheim- ili Seltjarnarness. Þá má koma fram, að félagar starfsmannafélagsins í þessari ferð voru 32, en á skemmtun- inni fyrir vestan voru 250 manns alls. Andrés Guömundsson, kynnir á árshátíð 1982. Kórsöngur á árshátíðinni. Við héldum að kúrekar væru aðeinsfyrir westan, en þeireru greinilega lika fyrir vestan.

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.