Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 19
Líflegt
hjá
Stf.KRON
• Félagsstarfið hér hefur verið með
ágætum og höfum við skarað fram úr
sjálfum okkur í ár, því fyrir utan hið
hefðbundna starf svo sem sumarferð,
leikhús og árshátíð, þá var haldið
þorrablót og jólaball fyrir börn
starfsmanna.
• Á þorrablótinu og jólaballinu lék
fyrir dansi KRON-bandið, en það er
starfsmannahljómsveit, sem skaut
upp kollinum á árshátíðinni í haust.
Tvær söngkonur höfðu bæst í hóp-
inn, svo þetta var orðið 6 manna
band, allt, utan einn, starfsfólk
KRON.
• Góð þátttaka hetur venö a
skemmtunum hjá okkur í vetur og
góð stemning. Má sérstaklega geta
um jólaballið, sem tókst alveg frá-
bærlega vel. Við sprengdum utan af
okkur Fáksheimilið, ýmsir starfs-
menn, sem vildu gjarnan leggja sitt af
mörkum, komu með dýrindis veislu-
tertur og fyrir utan kaffi, kökur og
gos dreifðu jólasveinar eplum og sæl-
gætispokum. KRON-bandið fékk
alla til að syngja með og voru margir
þreyttir í fótum og á fugladansi er
heim var haldið. Jólaball fyrir börn
starfsmanna verður örugglega árviss
skemmtun hér eftir.
• Aðalfundur starfsmannafélagsins
var haldinn I. mars. Nokkur um-
skipti urðu á stjórn, enda ágætt, að
fólk þar hringsóli svolítið. Stjórn
skipa núna: Rebekka Práinsdóttir,
Guðrún Þorsteinsdóttir, Steingrímur
Ingólfsson, Bára B jarnadóttir, Sigur-
björg Björnsdóttir, Sæunn Jóhanns-
dóttir, Gunnhildur Kristjansdóttir og
Ólafur Sigurðsson.
Meðlimir KRON-bandsins. F. v.: Arthúr, Sigurvin, Áslaug, Bergþóra og Víðir. Gunn-
ar rótari laumast á bak viö Bergþóru.
Á jólaballi.
• Starfsfólk KRON skiptist á 12
vinnustaði og eiga 7 þeirra fulitrúa í
stjórn. Við höfum reynt að dreifa
kröftunum sem mest til að fá bein
persónuleg tengsl við sem flestar
búðir, en það skiptir greinilega miklu
máli varðandi þátttöku starfsfólks.
hinmg hötum við rekið okkur á, að
miklu varðar, að verslunarstjórar séu
jákvæðir gagnvart starfsmannafé-
laginu og taki þátt í starfi þess, þá
koma aðrir á eftir. Pað eru jú versl-
unarstjórarnir, sem mest samskipti
hafa út á við.— Rebekka Þráinsdóttir.
HLYNUR 19