Hlynur - 15.04.1982, Side 20

Hlynur - 15.04.1982, Side 20
Jón Sigurðsson, skólastjóri afhendir Ernu Bjarnadóttur verðlaun fyrir besta námsár- angur á stúdentsprófi vorið 1982. Á siðasta hausti tók við skólastjórn Samvinnuskólans Jón Sigurðs- son. Þó ungur sé að árum, er han kunnur fyrir störf sín að þjóðmál- um og hafði um fimm ára skeið verið ritstjóri dagblaðsins Timans. Skólastjórar Samvinnuskólans hafa jafnan verið pennar góðir og Jón hefur skrifað um ýmis efni í blöð. í starfi sínu í vetur hefur Jón sýnt að mikils má af honum vænta og Samvinnuskólinn fær von- andi aö njóta starfs hans um mörg komandi ár. Jón Sigurðsson, skólasijóri Bifröst — Hvað hefur komið þér mest á óvart í starfinu við Samvinnuskólann? — Eg hélt satt að segja, að slíkur ferskur og, ef ég mætti orða það svo hátíðlega, heilbrigður félagsandi, sem ríkir að Bifröst væri einfaldlega ekki til nema í bókum mjög velvilj- aðra höfunda. Sem unglingur kynnt- ist ég slíkum félagsanda ekki og sennilega hef ég, eins og flestir aðrir gera reyndar, ályktað af eigin reynslu. En þessi félagsandi er hér til og virðist dafna mjög vel. Ef eitthvað getur kallast menningarlíf, þá er það þetta, enda felur þetta litla samfélag okkar í sér strangt nám, mikil félags- störf og talsverðan aga. Það sem mestu varðar er, að menn koma hingað til að læra sjálfviljugir, ráða sjálfir félagsmálum sínum og aginn er að langmestu leyti sjálfsagi. Eins er um þá listastarfsemi, sem hér fer fram, að hún er um fram allt eigið frumkvæði, eigin sköpun nemend- anna. — Er skólinn líkur því, sem þú gerðir þér í hugarlund, áður en þú komst hingað? — Eins og ég sagði, hefur félags- andinn komið mér ánægjulega á ó- vart. Að öðru leyti haði ég kynnt mér málefni skólans að sjálfsögðu og fengið glöggar upplýsingar um náms- skipan og starfsháttu. Að því Ieyti hefur það ef til vill einkum farið fram úr vonum mínum hversu létt og áreynslulítið, eiginlega sjálfkrafa, störfin ganga í höndum starfsliðs og nemenda. — Hvernig sérðu fratntíð skólans fyrir þér? — Eg get í fljótu bragði ekki séð, hvað það væri, sem ætti að hindra skólastörfin í framtíðinni, fremur en gerst hefur á liðnum tíma. Það veldur auðvitað hver á heldur og öll mann- leg viðleitni er annmörkum háð, en með Guðs hjálp og góðra manna verða störfin varla erfiðari í framtíð en í fortíð. Hitt er annað mál, að Samvinnu- skólinn verður jafnan að bregðast við nýjum og síbreytilegum aðstæðum í þjóðlífi og atvinnulífi. Við verðum stöðugt að ganga fremstir og undir 20 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.