Hlynur - 15.04.1982, Page 23
og þau eru ekki fá færin, sem vætt eru.
UM SUNDIN BLÁ
• Árið 1964 var byggt olíuskip. Árið
1968 keypti Sambandið skipið og
skírði Litlafell. Síðan hefur það flutt
fljótandi orku með ströndum lands-
ins. En það er með skip eins og ann-
að, að þau komast á efri ár, og nú
liggur Litlafellið í Reykjavíkurhöfn,
verkefnalaust.
Kári er maður nefndur, Valvers-
son. Hann hefur nú um skeið starfað
við stýri skrifstofu Skipadeildar, en
er frægur sægarpur og hefur staðið
við stýri á mörgu stoltu fleyi SÍS, þó
einna lengst á fjölum Litlafells. Kári
bar það undir forstöðumenn Skipa-
deildar, hvort ekki mættu starfsmenn
Sambandsins einn dag finna, að köld
er sjávardrífa. Þeim fannst það þjóð-
ráð.
Kári Valversson, skipstjóri stingur út stefnuna.
HLYNUR 23