Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 24
wna MTrTMnc TMn
Skyldi ekki svona falleg kona hafa truflandi áhrif á skipsstjórnar- pær eru ákveðnar á svip þessar.
menn?
Aflanum hampað.
• Pví var þaö að laugardaginn 17.
apríl s. 1. lét Litlafell úr höfn með
fimmtíu samvinnustarfsmenn innan-
borðs. Skipstjóri var Kári Valvers-
son. með einvala skipshöfn.
Veöur var þungbúið og jók rign-
ingu og vind, þegar á daginn leið. En
menn voru hressir og kátir og mættu
til leiks með hin ýmsu tegundir veið-
arfæra, allt frá krók bundnum viö
snærishönk til handfærarúllu. Eng-
inn kom með troll.
Var nú siglt fyrir mynni Hvalfjarð-
ar, suður í átt til Vatnsleysustrandar
og loks inn Kollafjörð, bak eyja.
Rennt var víða og var slík mergð færa
í sjó, að á stundum kræktist saman
undir kjöl. Brá fyrir miklum svip-
brigðum, Þegar sá stóri beit á, sem
breyttust í vorblítt bros, þegar ein-
hver yngismeyjan fann handtök ein-
hvers yngissveins á hinum endanum.
Aflinn, sem túrinn gaf af sér var
þrír stórfiskar. Landkrabbar kalla
þessa fiska marhnúta og láta börn sín
veiða af bryggjusporðum. Einnig
komu upp tvær sprökur, vænar.
Mæltu svo illar tungur, að mælst
hefðu um fimm sm á lengd og tveir á
breidd, sú stærri. Hefur, að sögn,
ekki meira fley verið gert út á mar-
hnútaveiðar.
Katrín formaður tekur öruggum höndum
færínu. Þvilíkur vettlingur!
Sumir höfðu vandaðar stengur.
Greinilega er gaman að veiða.