Hlynur - 15.04.1982, Page 29

Hlynur - 15.04.1982, Page 29
Lárus sendir kveðjur Holtagarðahagyrðingar Lárus Hermannsson. Óskar Pórðarson • Eins og elstu menn muna, birtust í árslok 1980 og í ársbyrjun 1981 nokkuð úr „andlegri fóðurbók" starfsmanna vörulagersins í Holta- görðum. Hjá Innflutningsdeild starfaði um langt skeið Lárus Hermannsson og var hann liðtækur við gerð hins and- lega fóðurs. Fyrir skömmu kom Lár- us í heimsókn á ritstjórn Hlyns og rétti okkur eftirfarandi texta: Eg var að glugga í útkomin blöð af Hlyni, blaði samvinnustarfsmanna, og sá ég, að fyrrverandi vinnufélagi minn, Oskar Pórðarson frá Haga, fór þar á kostum miklum, eins og honum oft hefur verið lagið, og lét hvína í kviðlingareiðanum, sem ég kann vel að meta. I því sambandi minnist hann á hinar svokölluðu andlegu fóður- bækur, sem til urðu fyrir okkar til- stilli, mín og hans, aðallega þó inn- komnar vísur frá öðrum aðilum og Páll Kristjánsson hélt til haga. En þar sem ég veit, að Oskar hefur gaman af bæði sínum vísum sem og stundum annarra, þá er ekki úr vegi að birta fleiri sýnishorn, sem til eru úr fóðurbókunum, eftir hann og fleiri. Óskar ljóðar á Lárus: Veröi mynduð vinstri stjórn, víst má að því ganga. Að Lárus verði að færa fórn, feykilega stranga. Lárus svarar: Margar hefi ég fórnir fært fyrir land og þegna. Pað er aðeins köppum kært köllun sinni að gegna. Að sjálfsögðu var nú ekki lagt út í það, að svara öllum þeim vísum, sem Óskar orti. En ég set svona til sýnis nokkrar, sem mér varð á að setja á blað, bæði til hans og fleiri. Við þurfum engin ljóð að laga líkar allt svo vel hjá þér. Okkar heiðurskarl úr Haga heldur uppi merki hér. Ef mér dettur drápa í hug dult verð með að fara. Rætt var um að ráða bug, a reynsluleysi Skara. Vísa um sjálfan mig: Um lyftarann hefur Lárus spurt, Iengi var hann hér um kjurt. Hann er núna horfinn burt, ég held ég viti ekki hvurt. Af þessari gerði Lárus fyrri part en Óskar botnaði: Ljúft er að hafa lyklavöld og loka hina inni. En seinna koma syndagjöld sem ei verða minni. Páll orti fyrripart til Arnórs og bað undirritaðan um seinnipartinn: Arnór smalar úfið haf eltir rýra sauði. Sínum hrútum geldum gaf góða sneið af brauði. Áfram um Arnór okkar, góðbónd- ann: Aldrei verður Arnór mát óhemjandi af fjöri. Litaða punga og lummur át og laufabrauð með smjöri. Um læstar dyr og leyfisveitingar Hjalta: Okkur væri í því fengur ef þið vissuð hver ég er. Örna sinna af þú gengur áttu að kaupa miða hér. Þá er svo sem hægt að setja á blað vísur, sem urðu til um afreksmanninn HLYNUR 29

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.