Hlynur - 15.04.1982, Qupperneq 31
Egill Jónasson, hagyrðlngur á Húsavík, ásamt konu sinni, Sigfríði Kristinsdóttur.
Leiðréttingar
• í síöasta blaði brugðu þcir ritstjór-
inn og prentvillupúkinn heldur betur
á leik og flengriðu hvorir öðrum um
síður blaðsins.
Skal þar fyrst til taka að á bls.5 í
myndatexta er húsmóðirin á Ystafelli
rangfeðruð, en hún heitir Kolbrún
Bjarnadóttir. Á síðu 8 er í fyrirsögn
kynntur Gunnar Jónasson, en eins og
allir vita, heitir maðurinn Gunnar
Jónsson, eiris og reyndar kemur fram
í undirskrift greinarinnar.
Á bls. 15 á miðmyndinni neðst á
síðunni er sagt að stúlkan heitir Lov-
ísa Matthíasdóttir, en auðvitað heitir
svona falleg stúlka í höfuðið á ástar-
gyðjunni og heitir Freyja Leifsdóttir.
Parnæst er á bls. 19 í myndatexta
við þriöju mynd aö ofan talað um
Jakob Sigurpálsstin. en hann heitir
Jakob Sigurólason. Á bls. 25 í texta
við mynd nr. 2 frá árshátíð er rangur
maður talinn umboðsmaður Sam-
vinnuferða/'Landsýnar, en umboðs-
maðurinn er Stefán Jón Bjarnason,
sem er þar að afhenda ferðavinning
kvöidsins. Á bls. 31 er ívar Haukur
Stefánsson, talinn frá Fagranesi, en
sá bær er í allt annarri sveit. ívar er
frá Haganesi.
Einhver meinlegasta villan er þó í
myndatexta á bls. 27, þar sem alger-
lega er farið rangt með nafn látinnar
konu Egils Jónassonar. Kona hans
hét Sigfríður Kristinsdóttir. Við birt-
um hér aftur myndina af þeim heið-
urshjónum, um leið og ritstjóri biður
alla afsökunar á þessum hvimleiðu
mistökum.
*
Dregið í ferðahappdrætti LIS
• Dregið hefur verið í ferðahapp-
drætti LÍS, en allir sem mættu á fundi
og ferðakynningar LIS og Samvinnu-
ferða í mars og apríl sl. hjá starfs-
mannafélögunum, fengu happdrætt-
isrniða.
kom á miða nr. 375.
Flug til Toronto í Kanada á miða
nr. 718 og flug til Tromsö í Noregi á
miöa nr. 740.
Hinir heppnu eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við skrif-
Dvöl í sumarhúsi í Danmörku stotu LÍS, sími 21944. Góðaferð!
Katrín.
Páll.
Breytingar
á ritnefnd
Eva. Pálmar.
• Hafi einhver hirt um að líta í blaö-
hausinn á síðasta tbl. Hlyns, hefur sá
hinn sarni séð, að nokkur breyting er
á orðin. Fau Katrín Marísdóttir og
Páll Daníelsson hafa bæði Iátið af
störfum í ritnefnd, Katrín vegna
anna, m. a. í Sf. SÍS og Páll er hættur
störfum hjá Samvinnuhreyfingunni.
• En ntaður kemur í manns staö.
Eva Örnólfsdóttir í Samvinnubank-
anum og Pálmar Arnarson hjá Inn-
flutningsdeild SÍS hafa komið til Iiðs
við Hlyn, svo vænlega horfir um sinn.
• Jafnframt hefur sú breyting orðið
á, að í fyrsta sinn er getið urn ritstjóra
og ábyrgðarmann. Sá er Guðmundur
R. Jóhannsson, sem nokkur ár sat í
ritnefnd. I lefur svo talast til, að hann
sjái a. m. k. um fyrstu tvö tbl. þessa
árs og í næsta blaði kemur í ljós, hvort
um frekari afskipti hans verða að
ræða.
HLYNUR
HLYNUR 31