Hlynur - 15.04.1982, Síða 44
Urdráttur úr reglum um heilbrigðis-
og öryggisstarfssemi innan fyrirtækja
l.gr.
I fyrirtækjum þar sem eru 1—9 starfsmenn skal atvinnu-
rekandi og/eða verkstjóri hans stuðla að góðum aðbún-
aði, hollustuháttum og öryggi á vinnustað í nánu sam-
starfi við starfsmenn fyrirtækisins og félagslegan trúnað-
armann þeirra, sbr. þó 2. mgr. þessarar greinar.
Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins getur þó ákveðið, ef
þurfa þykir, að fyrirkomulag það sem um ræðir í 2. gr.
gildi einnig fyrir starfshópa sem getið er í þessari grein,
þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, sbr. til dæmis
40. og 44. gr. laga nr. 46/1980.
2- gr.
I fyrirtækjum þar sem eru 10 starfsmenn eða fleiri skal
atvinnurekandi tilnefna af sinni hálfu öryggisvörð og
starfsmenn skulu kjósa úr sínum hópi öryggistrúnaðar-
mann.
3- gr.
í fyrirtækjum þar sem eru 50 starfsmenn eða tfeiri skal
stofna öryggisnefnd. Starfsmenn kjósa úr sínum hópi tvo
fulltrúa og atvinnurekandi tilnefnir tvo fulltrúa.
Báðir fulltrúar atvinnurekanda í öryggisnet'nd teljast
öryggisverðir og báðir fulltrúar starfsmanna öryggistrún-
aðarntenn.
Sé starfsmannafjöldi sveiflukenndur skal miðað við
meðalfjölda næsta árs á undan, en tillit þó tekiö til aukn-
ingar eða minnkunar á umsvifum fyrirtækisins.
Kosning og tilnefning fulltrúa í öryggisnefnd skal, eftir
því sem kostur er, vera með þeim hætti að fulltrúar hafi í
sínum daglegu störfum yfirsýn yfir mestan hlutastarfsem-
innar og/eða að þeir séu til staðar svo mikinn hluta starfs-
tímans sent kostur er.
4- gr.
Fari starfsemi fyrirtækisins fram í sjálfstæðum starfs-
einingum eða útibúum þannig, að ætla megi að öryggis-
nefnd fyrirtækisins hafi ekki nægilega yfirsýn yfir starf-
sentina, geta atvinnurekandi og þeir aðilar sem undirbúa
kosningu fulltrúa starfsmanna, sbr. 7. gr., gert með sér
samkomulag um að fyrirkomulag samkvæmt 1, —3. gr.
reglna þessara skuli viðhaft í einstökum starfseiningum
eða útibúum.
6. gr.
Atvinnurekandi tilnefnir fulltrúa sína ur hópi stjórn-
enda fyrirtækisins. Tilnefningin skal að jafnaði vera til
tveggja ára í senn, sbr. 4, mgr. 8. gr.
7. gr.
Félagslegir trúnaðarmenn starfsmanna eöa trúnaðar-
menn viðkomandi stéttarfélaga skulu sjá um undirbúning
og framkvæmd kosninga fulltrúa starfsmanna. Sá fram-
angreindra aðila sem frumkvæði hefur skal tilkynna hin-
um aðilunum um fyrirætlanir sínar.
8. gr.
Kosning öryggistrúnaðarmanna og fulltrúa starfs-
manna í öryggisnefnd skal fara fram með skriflegri at-
kvæðagreiðslu sem stendur a. m. k. einn vinnudag þar
sem öllum starfsmönnum, sem kosningarétt hafa, ergef-
inn kostur á þátttöku eða með skriflegri kosningu á starfs-
mannafundi er boðaður hefur verið með a. m. k. tveggja
sólarhringa fyrirvara.
Kjörgengir eru allir starfsmenn fyrirtækisins nema stjórn-
endur, en æskilegt er, að viökomandi hafi starfað a. m. k.
I ár við fyrirtækið.
Kosningarétt hafa allir starfsmenn fyrirtækisins nema
stjórnendur án tillits til ráðningarforms, ráðningartíma og
starfshlutfalls.
Kosning fulltrúa starfsmanna skal að jatnaði vera til
tveggja ára í senn.
9. gr.
Atvinnurekandi skal tilkynna Vinnueftirliti ríkisins um
þá aðila sem tilnefndir eru öryggisverðir og kosnir eru
öryggistrúnaðarmenn. Þeir sem undirbúa kosningu full-
trúa starfsmanna sbr. 7 gr. skulu tilkynna viðkomandi
stéttarfélögum um sömu aðila.
44 HLYNUR