Hlynur - 15.12.1984, Blaðsíða 38
Umsjón:
Eva Örnólfsdóttir
Litavísur
Ég heiti Óli rauði, og allir þekkja mig,
því allir jólasveinar nota rautt í föt á sig.
Rauð eru eplin góðu og reyniberin smá,
og rauður er hann kjóllinn, sem hún Gunna á að fá.
Viðlag:
Já, við litum og við litum og við litum stórt og smátt.
Við litum grænt og brúnt og rautt og gult og fagurblátt.
Já, við litum og við litum allt, sem litir geta prýtt,
og líki okkur það ekki, við byrjum upp á nýtt.
Ég heiti Stjáni blái og blátt ég lita flest,
- berjaklasa, fjóluvönd og ævintýrahest.
Blá eru líka vötnin og blár er fjörðurinn,
og bláa litinn notarðu á sjálfan himininn.
Já, við litum o. s. frv.
Ég heiti Gústi græni, á grös og skóg og hey
þú getur notað litinn minn. Á vetrum sézt ég ei.
En þegar vorið kemur, þá kem ég fljótt í Ijós
og klæði grænu engi, tún og blöð á hverri rós.
Já, við litum o. s. frv.
Ég heiti Geiri guli og er gulur eins og sól,
gulur eins og fífill eða kertaljós um jól.
Og blandaður með rauðu er ég eins og kvöldroðinn,
með ósköp litlu bláu eins og græni skógurinn.
Já, við litum o. s. frv.
Sigríður Ingimarsdóttir.
(Ort eftair erlendri fyrirmynd).
38
HLYNUR