Hlynur - 15.12.1984, Blaðsíða 31
Vetrarbæklingur KPA
Út er komið vetraráætlun KPA fyrir
veturinn 1985. Verður honum dreift
til starfsmannafélaga og mun liggja
frammi á flestum vinnustöðum og
kaffistofum. Ella geta menn spurt
um hann hjá formanni sínum.
Að vanda er bæklingurinn fullur
af tilboðum um áhugaverðar
vetrarferðir. Þar má nefna skíða-
vikur allan veturinn í Björnrike í
Hárjedalen sem er um sjö tíma
akstur frá Stokkhólmi. Þar er mjög
gott skíðaland og góð fjallahótel
og bústaðir. Þarverðurlíkavináttu-
vika 9-16 mars nk. Svo má minna
á vináttuvikuna 17-23 mars á
Skinnabru í Noregi sem margir
íslendingar hafa sótt. Páskavika er
í Tornedalen 2-8 apríl þar sem m.
a. verður boðið uppá ferð með
hundasleða. Svo má ekki gleyma
konungsleiðinni sem gengin verð-
ur 13-20 aprll.
Þegar kemur fram I maí koma
svo tilboð um ýmiskonar veiði í ám
og vötnum viðsvegar um norður-
lönd. Auk þess er m. a. góð ferð til
Hollands í apríl og ferð á heims-
meistarakeppnina í íshokký sem
fram fer í Prag í apríllok.
Allar þessar ferðir eru ódýrar en
vissara er að panta með góðum
fyrirvara. Fyrir utan það að fara í
ódýra ferð og njóta dvalar í
skemmtilegu og fjölbreyttu lands-
lagi hitta menn allsstaðar kátt fólk
og bindaoft vináttutengsl til lítfstíð-
ar.
Loks má geta þess að í bækl-
ingunum eru auglýst til leigu fjöldi
orlofshúsa og sumarbústaða, flest-
ir í Svíþjóð. Það getur verið mjög
gaman að leigja sér bústað ein-
hvern tíma og fara sinna eigin
ferða um fjöll og byggðir.
Að öllu leyti er með góðri sam-
visku hægt að hvetja fólk til að
huga vel að bæklingi KPA og því
sem þar er boðið. Það er ekki víða
sem fólki með áhuga fyrir útiveru
og skíðaferðum er boðið annað
eins.
NORDJOBB
Fyrir nokkru var að tilhlutan for-
sætisráðherra norðurlanda skipuð
nefnd til að stuðla að aukinni
norrænni efnahagssamvinnu. For-
maður er Per G. Gyllenhammar,
forstjóri Volvo I Svíþjóð og nefndin
löngum kennd við hann. Af íslands
hálfu er í nefndinni Erlendur Ein-
arsson, forstjóri Sambandsins.
Ein af hugmyndum nendarinnar
til að efla norræna samvinnu og
venja fólk við að hugsa á norræna
vísu er að ýta úr vör verkefni sem
kallast Nordjobb-’85. Stefnt er að
því að sumarið 1985 geti 1000
norræn ungmenni sótt um sumar-
vinnu í einhverju hinna norðurland-
anna, og þetta verði síðan fastur
þáttur í samstarfi landanna.
Miðað er við 6-8 vikna starf yfir
sumarmánuðina fyrir fólk á aldrin-
um 18-25 ára. Störfin eru mismun-
andi og geta ef vill verið hluti af
starfsnámi viðkomandi. Laun
verða greidd í samræmi við venjur
á hverjum stað fyrir viðkomandi
starf. I þessu sambandi verður
lögð áhersla á, að æskufólkið geti
kynnst öðru æskufólki í því landi
sem það dvelur og einnig öðrum
þátttakendum. Væntanlega verða
skipulagðar samkomur eftir því
sem unnt er í því skyni.
Húsnæði verður á einkaheimil-
um eða á stúdentagörðum og skól-
um og ætlast er til að þátttakendur
greiði sjálfir kostnað af því. Einnig
greiði þeir sjálfir ferðakostnað, en
unnið er að samkomulagi við flugfé-
lög og aðra um hagstæð fargjöld.
Samvinnuhreyfingin hér á landi
hefur boðið fram störf í þessu
skyni og þeir sem hug hefðu á því
að fara utan geta fengið nánari
upplýsingar hjá Guðmundi Guð-
mundssyni, fræðslufulltrúa og
Baldvin Einarssyni, starfsmanna-
stjóra Sambandsins. Munu kaup-
félagsstjórar og framkvæmdastjór-
ar samvinnufyrirtækja á hverjum
stað vera innan handar um öflun
upplýsinga.
Ekki er Ijóst að hvaða marki
samvinnusamtök á hinum norður-
löndunum eru með í þessu starfi
en ef fólk óskar eftir að vinna hjá
þeim verður eflaust að geta þess
sérstaklega. Um skeið hefur KPA,
samtök norrænna samvinnu- ’
starfsmanna, unnið að því að
koma á samskonar skiptum innan
samvinnuhreyfingarinnar og velmá
vera að þetta verði til þess að ýta
undir þá viðleitni.
HLYNUR
3