Hlynur - 15.12.1984, Blaðsíða 24
Birgir
Framkvæmdastjórn
í fáum dráttum
Kári er maður nefndur Sigurðsson. Býr hann á
Húsavík noður þar sem land var numið eigi allseint.
Sagt er að trauðla láti Kári sinn hlut og all sæmilega
sé það rúm skipað er hann situr. Þá hefur Kári þann
kost sem margir öfundast yfir en hann er manna
bestur til dráttar norður þar.
Haldið hefur Kári nokkrar sýningar á verkum sínum
þar sem sauðmórauður almúginn hefur fest fé sitt og
kallast slíkt fjárfesting. Hanga nú skillerí á veggjum
hér og hvar og þykir flestum betra en eigi.
Þar kom að Kári komst í röð forystusauða LlS en
þeir menn eru höfuðlís kallaðir. Fannst honum að
vonum þar margur kyndugur svipurinn svo eigi sé
minnst á vaxtarlag. Brá því Kári tússpenna sínum á
loft og festi á blað það sem sjáanlegt var ofan
banakringlu. Var það álit almennings að það væri nóg.
Látum við hér með fylgja svipi þá en firrum oss allri
ábyrgð og tjóni sem verða kann af hræðslugráti ungra
barna eða sundurhökkuðum hjörtum kvenna, enda
myndu þá slík líffæri ónýt hvort eð væri.
Julíus
Lúsastjórn mér Ijúft er hér ad kynna,
þótt líklega sé margt að henni að finna.
En stjórnarmaður sérhver til starfa þó er fús,
þótt strembið reynist margsinnis að vera yfirlús.
Þeir halda fund, - Ijúf er sérhver lota,
fá lítinn blund, í annað þarf að nota
næturstund.
Biggi Mar er alltaf hreint á iði,
og elskar það að vera uppi á sviði,
og tilbúinn er jafnan að færa ýmsa fórn
ef formannssætið eygir hann að ná í hverri stjórn.
Halur sá nógu virðist nenna,
nóg er þrá ennþá hans til kvenna,
seisei já.
Júlli Thor hann ræður margar ritar,
og raunar marga fundi við það stritar
kófsveittur með pennann að koma þvi á blað,
sem kjaftaglaðir ræðuskálkar hafa afrekað.
Eftir á, þegar líkur þrasi,
þá má sjá kappann lyfta glasi,
og súpa á.
Kári sjaldan velur vegi hála,
og víst er kappinn snillingur að mála.
Það efalaust má segja að lífið hans sé list,
þótt líklega sé matarlystin siðust bæði og fyrst.
Um Lúsamál löngum kappinn þrasar,
þótt leið sé hál, Kári sjaldan hrasar,
við Lúsaskál.
24
HLYHUR