Hlynur - 15.12.1984, Blaðsíða 7
deild flytur mikið með Ríkisskip en
um Holtabakka fer vara til allra
landsmanna.
Annars fer það sífellt í vöxt að
vörur séu settar í gám á fram-
leiðslu- eða afgreiðslustað og fluttir
f þeim sama gámi aftur frá skipi á
ákvörðunarstað. Hér á Reykjavík-
ursvæðinu er mikið af vörum flutt
til notenda í gámum.
Bogi segir okkur, að á Holta-
bakka vinni milli 70-75 manns.
Þegar skip er í höfn er oft unnið frá
klukkan átta að morgni til tíu að
kvöldi, og það er unnið vel, leggur
Bogi áherslu á. Æði oft koma
skipin með um 1000 tonna farm og
tekur jafnmikið til baka. Þrátt fyrir
það er í mörgum tilvikum hægt að
losa og lesta skip á einum degi svo
stoppið i höfn verðursjaldan langt.
Á Holtabakka er allt talstöðva-
vætt. Verkstjórar, bílstjórar og lyft-
aramenn hafa talstöðvasamband
siná milli, sem gerir alla afgreiðslu
fljótari og kemur í veg fyrir margan
misskilning. Öll tæki eru af full-
komnustu gerð og í höndum æfðra
manna má gera góða hluti.
Það er stöðugur straumur manna
inn til Boga, síminn glymur látlaust
og talstöðin þagnar ekki. Okkur er
ekki til seturnnar boðið. Við göng-
um út. Starf hafnarverkamannsins
er eflaust á margan hátt léttara en
áður var en ábyrgðin hefur ekki
minnkað. Við höfnina þarf að vera
valinn maður f hverju rúmi. Þegar
við förum út um hliðið fylgir okkur
ískur og væl í krönum og lyfturum.
Jólavarningurinn hleðst upp. Von-
andi eiga þeir sem við höfnina
vinna og á skipunum eru gleðileg
jól.
Ur vörugeymslunni, Arnar Reynisson og Alexander Eyjólfsson (nær).
Stórir dráttarbílar taka við gámunum. Þessi gámur er sívalur, sennilega einhver
vökvi í honum.
Sigurður Petursson 2. styrimaður fylgist með losun Disarfellsins. Að baki hans
er Sæmundur Guðmundsson, gamall í hettunni hjá Sambandinu.
Þeir eru mikil tæki stærstu lyftararnir á Holtabakka og fara
léttilega með 25-30 tonn.
Þegar okkur bar að rétt fyrir hádegi var langt komið að
losa skipið. Hér sést yfir lestina og hvernig er umbúið þar.