Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 40

Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 40
Sinfóníuhljómsveit Íslands óskar eft ir að ráða fjármálafull trúa Fjármálafulltrúi annast samskipti við Fjársýslu ríkisins f.h. SÍ og sér um uppgjör tónleika og gerð rekstraráætlana í samvinnu við framkvæmdastjóra. Hann hefur umsjón með launakeyrslum og tímafærslum, ásamt afgreiðslu reikninga. Fjármálafulltrúi hefur að auki umsjón með eignaskrá og vörslu sérsjóða auk annarra fjölbreytilegra verkefna skv. beiðni yfirmanns hverju sinni. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi marktæka reynslu af sambærilegum störfum og framhaldsmenntun í bókhaldi og uppgjöri s.s. próf til viðurkennds bókara. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á fjárhags- og mannauðskerfinu ORACLE/Orri og öðrum kerfum fjársýslunnar. Áhersla er lögð á færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og fagmennsku í vinnubrögðum, skipulagshæfni og metnað til árangurs í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar nk., og starfskjör verða skv. kjarasamningi SFR. Vinsamlega athugið að fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ www.stra.is. Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf. veit nánari upplýsingar , en viðtalstím er frá kl.ir í síma 588 3031 síma i 13-15 . Vinsamlega sendið starfsferilskrár til, alla virka daga meðan á umsóknarferlinu stendur stra@stra.is ásamt .viðeigandi gögnum Sinfóníuhljómsveit Íslands er ein stærsta menningarstofnun landsins með um 100 manna starfslið. Hljómsveitin hefur aðsetur í tónlistarhúsinu Hörpu og heldur um 100 tónleika og viðburði á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, fjölskyldutónleika og skólatónleika fyrir nemendur á öllum aldri. Gildi Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru: Listrænn metnaður - Liðshygð - Fagmennska - Fjölbreytni. Sjá nánar www.sinfonia.is Sálfræðingur Skólaþjónusta Árborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á starfi í skólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun, samstarf fagsviða og stofnana, m.a. um þróun úrræða fyrir börn og foreldra. Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 9500 íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: - ráðgjöf til nemenda, foreldra og kennara, m.a. v/hegðunar- og tilfinningavanda barna - þverfaglegt samstarf um málefni barna í leik- og grunnskólum - sálfræðilegar skimanir og greiningar - fræðsla og námskeið fyrir foreldra, börn og starfsfólk skóla Menntunar- og hæfniskröfur: - kandidatspróf (cand. psych. gráða) í sálarfræði - reynsla af starfi með börnum æskileg - góðir skipulagshæfileikar - hæfni í mannlegum samskiptum Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðslu stjóri, sími 480-1900, 852-3918. Áhugasamir geta sent umsóknir á skolathjonusta@arborg.is eða í pósti merktum fræðslusviði Árborgar v/sálfræðings, Austurvegi 2, 800 Selfoss. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2019. Miðað er við að ráðið verði í stöðuna frá 1. mars nk. eða eftir samkomulagi. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum. Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Sérfræðingur í eignastýringu Lífeyrissjóðurinn hefur þjónað sjóðfélögum sínum frá 1956. Starfsmenn vinna í þágu sjóðfélaga við uppbyggingu lífeyrisréttinda og ávöxtun eigna. Eignasafn nam ríflega 700 milljörðum króna um síðustu áramót og fer ört vaxandi. Árlega greiða um 52 þúsund sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins og um 18 þúsund njóta mánaðarlegra lífeyrisgreiðslna. Markmið sjóðsins er að vera áhugaverður vinnustaður, gæta að jafnvægi milli vinnu og einkalífs og bjóða gott starfsumhverfi fyrir samhentan hóp til að vinna að krefjandi verkefnum. Nánari upplýsingar um sjóðinn eru á vefnum www.live.is Kröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem viðskipta-, hag-, eða verkfræði • Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur • Haldgóð starfsreynsla af fjármálamarkaði • Reynsla af framkvæmd viðskipta með innlend og erlend verðbréf er kostur • Hæfni til að greina flókin fjárfestingarverkefni og kynna þau með skipulögðum hætti • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði í starfi • Gott vald á íslensku og ensku • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma Helstu verkefni: • Virkt samstarf við forstöðumann eignastýringar og aðra viðkomandi starfsmenn • Umsýsla eigna sjóðsins, m.a. eftirlit með ávöxtun og áhættu í eignasafni • Greining á væntri ávöxtun og áhættu eignaflokka til skemmri og lengri tíma • Greining fjárfestingartækifæra • Samskipti við aðila á fjármálamarkaði • Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til stjórnenda og eftirlitsaðila Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir að ráða öflugan einstakling til starfa í eignastýringarteymi sjóðsins. Leitað er að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af fjármálamarkaði og mikinn áhuga á eignastýringu. Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðumaður eignastýringar. Í boði er áhugavert og krefjandi starf við ört vaxandi eignasafn sjóðsins. Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf og þarf umsækjandi að geta sýnt fram á að persónuleg fjármál og önnur fjárhagsleg umsýsla sé flekklaus. ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 L AU G A R DAG U R 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9Atvinnuauglýsingar Sölufulltrúar Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625 Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626 Job.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.