Fréttablaðið - 19.01.2019, Qupperneq 57
Umsóknir ásamt upplýsingum um störfin
eru á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is.
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
kopavogur.is
Grunnskólar
Dönskukennari í Kópavogsskóla
Forfallakennari í Álfhólsskóla
Frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðvar
Námsráðgjafi í Salaskóla
Leikskólar
Aðstoðarleikskólastjóri í Læk
Aðstoðarmatráður í Baug
Deildarstjóri í Austurkór
Deildarstjóri í Læk
Íþróttakennari í Efstahjalla
Leikskólakennari í Austurkór
Leikskólakennari í Baug
Leikskólakennari í Efstahjalla
Leikskólakennari í Kópastein
Leikskólakennari í Læk
Stjórnsýslusvið
Verkefnastjóri íbúatengsla
Velferðarsvið
Deildarstjóri íbúðakjarna
Deildarstjóri Roðasala
Iðjuþjálfi í þjónustudeild aldraðra
Starfsfólk í félagslega heimaþjónustu
Starfsmaður í Dvöl
Starfsmaður í dagþjálfun Roðasala
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Vélvirki og málmsuðumaður
Deilir auglýsir laus störf vélvirkja og málmsuðumanns
á starfssvæði Hellisheiðarvirkjunnar. Reynsla og þekk-
ing af viðgerðum og viðhaldsstörfum við orkuver er
kostur en ekki skilyrði. Hæfniskröfur starfsmanna til
viðbótar við iðnmenntun eru nákvæmni, samviskusemi
og góð almenn verkkunnátta. Fullum trúnaði er heitið
og öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á Jóhann Jónasson á
netfangið jj@dts.is.
Deilir sérhæfir sig í vélaþjónustu við orkuver og
veitustarfsemi. Starfsmenn Deilis eru sérfræðingar í
gufuhverflum, djúpdæluvirkjunum og tengdum búnaði
og veita orkufyrirtækjum faglega þjónustu varðandi
vélaupptektir, ástandsgreiningu og varahlutaþjónustu.
Sjá nánar á www.deilir.is
Vegagerðin vinnur að öruggum og greiðum samgöngum í þágu samfélagsins alls. Vegagerðin vinnur að uppbyggingu
samgöngukerfisins með lagningu vega og þjónustu við vegakerfi landsins, þróun almenningssamgangna og samþættingu
mismunandi samgönguforma.
Nú vantar okkur öflugan fræðslustjóra til að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Um er að ræða nýtt starf innan
Vegagerðarinnar. Starfið er á starfsstöð Vegagerðarinnar í Reykjavík og um er að ræða 100% starf.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla af fullorðinsfræðslu æskileg.
• Farsæl og árangursrík reynsla af fræðslumálum/símenntun.
• Reynsla af breytingastjórnun æskileg.
• Framúrskarandi samskiptafærni.
• Frumkvæði, metnaður og drifkraftur í starfi.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags og
umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri
(sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is) og í síma 522 1000. Umsókn skal fylgja ítarleg
ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna
umræddu starfi. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Fræðslustjóri
hjá Vegagerðinni
Ábyrgð og verkefni
• Umsjón með starfsþróunarstefnu
og fræðsluáætlun Vegagerðarinnar.
• Umsjón og utanumhald með fræðslu-
og þjálfunarmálum.
• Þarfagreiningar vegna símenntunar.
• Nýliðafræðsla.
• Samskipti við starfsmenntasjóði
og menntastofnanir.
Verkefnastjóri
íbúatengsla
kopavogur.is
P
ip
a
r\TB
W
A
\ S
ÍA
Helstu verkefni:
• Ber ábyrgð á stefnumörkun á sviði
þátttökulýðræðis og innleiðingu
verkefna á því sviði.
• Skipuleggur íbúafundi eftir atvikum í
samráði við fagsvið, deildir og stofnanir.
• Stýrir verkefninu „Okkar Kópavogur“
sem snýr að þátttöku íbúa bæjarins við
ráðstöfun fjármagns til framkvæmda.
• Stýrir framkvæmd íbúakosninga.
• Ber ábyrgð á innleiðingu Heimsmarkmiðs
Sameinuðu þjóðanna nr. 16.7: Teknar
verði ákvarðanir á öllum sviðum þar sem
brugðist er við aðstæðum og víðtæk
þátttaka tryggð.
• Heldur utan um ábendingarkerfi
bæjarins í samráði við gæðastjóra.
Laust er til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra íbúatengsla. Hlutverk verkefnastjóra
er að sinna tengslum bæjarins við íbúa og halda utan um öll samskipti, önnur en þau
sem falla undir almannatengsl. Horft er til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Verkefnastjóri heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Páll Magnússon,
pallm@kopavogur.is, s. 441 0000. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags innan BHM.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar kopavogur.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo
sem opinber stjórnsýsla, verkefnastjórnun,
fjölmiðlafræði eða sambærilegt.
• Góð samskipta- og samstarfshæfni.
• Reynsla af kynningarmálum og/eða blaða-
eða fréttastörfum kostur.
• Framkoma á opinberum vettvangi kostur.
• Reynsla af verkefnastjórnun kostur.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni í ræðu og riti.
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
• Þekking á opinberum rekstri kostur.
• Þekking á starfsemi sveitarfélaga kostur.
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á