Fréttablaðið - 19.01.2019, Síða 93

Fréttablaðið - 19.01.2019, Síða 93
Starfandi forseti hefur tekið við í Venesúela eftir að kjörtímabili Nicolás Maduro lauk. Sam- tök Ameríkuríkja viðurkenna hinn nýja forseta en það gerir Maduro ekki og heldur enn í völdin. Sérkennileg staða er komin upp í sósíalistaríkinu Venesúela. Staðan þar hefur vissulega ekki verið stórkostleg að undan-förnu. Nú er hins vegar hnakkrifist um forsetastól landsins. Nýr, starfandi forseti er tekinn við af Nicolas Maduro, allavega samkvæmt venesúelska þinginu. Maduro kveðst hins vegar enn vera forseti. Efnahagshamfarir Til þess að útskýra þá stöðu sem komin er upp þarf að leita aftur í tímann. Venesúela er mikið olíuríki. Þegar sósíalistinn Hugo Chávez komst til valda um aldamótin jókst mikilvægi olíunnar fyrir hið nýja, sósíalíska hagkerfi enn meira. Þetta svarta gull stendur nú undir 95 pró- sentum af öllum útflutningstekjum ríkisins. Samkvæmt skýringu BBC kom landið því afar illa út úr því er olíu- verð hrundi árið 2014. Gjaldeyris- forði ríkisins tæmdist einfaldlega og erfitt var að flytja i n n nauðsynjar. Þar af leiddi hækkað vöruverð og þar með verðbólgu. Peningar íbúa ríkisins urðu verðminni og verð- minni og ríkisstjórnin hefur til að mynda brugðist við með því að prenta meiri peninga og hækka lág- markslaun. Þessar aðgerðir voru olía á eld verðbólg- unnar. Í þokkabót gengur illa að borga af lánum og enn verr að fá ný lán. Og þótt Venesúela hafi kynnt nýjan gjaldmiðil til sögunnar í ágúst síðastliðnum hafði það einfald- lega engin jákvæð áhrif. Verðbólga á síðasta ári, fram í nóv- ember, mældist 1.300.000 prósent. Þetta þýðir að verð hefur tvöfaldast á um nítján daga fresti. Spá Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins fyrir næsta ár stendur í tíu milljónum prósenta. Þótt Maduro kenni Bandaríkj- unum og Kólumbíu um ástandið, segi ríkin stunda spellvirki og efna- hagsleg hryðjuverk, hafa mótmæli gegn ríkisstjórninni orðið æ tíðari í Venesúela. Óánægja íbúa er sem sagt að aukast. Kosið á ný Þann 20. maí í fyrra gengu íbúar í Venesúela að kjörborðinu til þess að kjósa sér forseta. Ætla má að í ríki með milljón prósenta verðbólgu væri forsetinn ekki vinsæll. Skoðana- kannanir í aðdraganda kosninganna, meðal annars frá Varianzas, Hercon og Datanalisis sýndu stjórnarand- stæðinginn Henri Falcón með meira fylgi en Maduro. Framboð Falcóns var reyndar ekki óumdeilt. Bandalag stjórnar- andstöðuflokka hafði ákveðið að sniðganga kosningarnar á þeim grundvelli að þær stæðust ekki grundvallarkröfur um sanngjarnar, frjálsar kosningar. Landskjörstjórn hafði verið sökuð um hlutdrægni enda var tveimur sigurstranglegustu frambjóðendum andstöðunnar meinað að bjóða sig fram. Könnun Meganálisis í apríl 2018 sýndi að 65 prósent aðspurðra teldu Falcón í raun samverkamann Mad- uro. Hann væri einungis í framboði til þess að láta kosningarnar líta út fyrir að vera raunverulegar. Falcón þvertók fyrir allt slíkt á sínum tíma. Sagði pólitíska sniðgöngu einfald- lega ekki virka. Umdeildur sigur Þegar talið var upp úr kjörkössunum kom í ljós að Maduro fékk 67,8 pró- sent atkvæða. Falcón ekki nema 20,9 prósent. Kjörsókn undir fimmtíu prósentum. Maduro lýsti yfir sigri. En sá sigur var, og er, umdeildur. Sameinuðu þjóðirnar, Evrópu- sambandið, Bandaríkin, Ástralía, Samtök Ameríkuríkja og Lima- hópurinn [samtök tólf ríkja sem leita að friðsamlegri lausn á krísunni í Venesúela] lýstu nær samstundis yfir alvarlegum efasemdum um kosn- ingarnar og neituðu að viðurkenna niðurstöðurnar. Það gerðu fleiri ríki sömuleiðis en ríki á borð við Kúbu, Íran, Norður-Kóreu, Sýrland og Kína sögðu Maduro réttkjörinn forseta. Áskorandinn Venesúelska þingið er í höndum stjórnarandstöðunnar og hefur verið frá árinu 2015. Það þóknast Maduro ekki. Hæstiréttur Venesúela, hlið- hollur Maduro, úrskurðaði í mars 2017 að þingið skyldi ekki hafa nein völd lengur. Í framhaldinu ákvað ríkisstjórnin að mynda nýtt þing, stjórnlagaþing, og í því sitja nú ein- göngu menn úr Sósíalistaflokknum. Úrskurður hæstaréttar orsakaði mikil og mannskæð mótmæli og ákvað hæstiréttur því að draga úrskurð sinn til baka. Þingið ákvað að skipa nýjan hæstarétt sem situr nú í útlegð í Panama en ríkisstjórn Maduro viðurkennir útlæga dóm- stólinn ekki. Gamla þingið starfar hins vegar enn þótt stjórnlagaþingið hafi verið myndað og Maduro hlusti einungis á hið nýja þing. Gamla þingið kaus sér nýjan þingforseta í desember síðastliðnum. Sá heitir Juan Guaidó og er maðurinn sem nú tekst á við Maduro um forsetastólinn. Guaidó var tiltölulega óþekktur á heimsvísu áður en hann tók við sem forseti þingsins og hefur verið við- riðinn stjórnmál í tiltölulega stuttan tíma. Hann tók virkan þátt í mann- skæðu mótmælunum árið 2017 og uppskar ör á hálsi eftir að öryggis- sveitir skutu hann með gúmmí- kúlum. Þessi 35 ára gamli jafnaðarmaður lofaði því er hann sór embættiseið að hann myndi veita Maduro sterka andstöðu. Ættingjum pólitískra fanga var boðið á innsetningar- athöfnina sem fór fram þann 5. janúar. Nýr forseti Fimm dögum síðar, þann 10., rann kjörtímabil Maduro út. Þótt formleg innsetningarathöfn fyrir Maduro hafi farið fram viðurkennir þingið ekki lögmæti kosninga síðasta árs og lítur því svo á að það sé ekki búið að kjósa næsta forseta ríkisins. Guaidó hóf því myndun eins konar starfsstjórnar þangað til nýr forseti hefur verið kjörinn. Í ræðu á þingi sagði hann að Venesúela væri í raun orðið einræðisríki og lýsti Guaidó því yfir neyðarástandi. Maduro-stjórnin brást illa vil þessu. Sjálfur líkti Maduro stjórnar- andstöðunni við skólastráka og sagði Guaidó einfaldlega óþroskaðan. Iris Varela fangelsismálaráðherra sagðist svo vera búin að velja sérstaklega fangaklefa fyrir uppreisnarsegginn Guaidó. Hún biði nú eftir því að hann tilkynnti um ríkisstjórn svo hún vissi hverjir gætu fylgt honum í steininn. Beint í kjölfar ræðunnar birtist hins vegar yfirlýsing á vef þingsins þar sem sagði að Guaidó væri tekinn við sem starfandi forseti Venesúela á grundvelli greina 233, 333 og 350 í venesúelsku stjórnarskránni. Sama dag barst svo bréf frá hinum útlæga hæstarétti Venesúela, það er að segja þeim dómurum sem sitja í Panama, þar sem Guaidó var beðinn um að taka við sem starfandi forseti. Stuðningur við Guaidó Samtök Ameríkuríkja lýstu yfir stuðningi við Guaidó. „Við fögnum því að Juan Guaidó sé orðinn starf- andi forseta Venesúela í samræmi við 233. grein stjórnarskrárinnar. Við, alþjóðasamfélagið og venesú- elskir borgarar styðjum þig,“ sagði í tísti frá samtökunum. Fleiri fylgdu í kjölfarið. Brasilía og Kólumbía, kaþólska kirkjan í landinu og Lima-hópurinn. Þann 15. janúar kvaðst Donald Trump Banda- ríkjaforseti vera að íhuga hvort hann ætti að viðurkenna Guaidó sem nýjan forseta Venesúela. Hann þurfti ekki að hugsa sig lengi um og gerði það degi seinna. Guaidó var handtekinn á sunnu- daginn fyrir viku eftir að lögregla stöðvaði för hans norður af höfuð- borginni Caracas. Ekki liggur fyrir hvers vegna en honum var sleppt um klukkustund síðar. Samkvæmt Jorge Rodríguez, upplýsingamálaráðherra í Maduro-stjórninni, handtóku lög- reglumenn hinn starfandi forseta í leyfisleysi. Guaidó er ekki á sama máli. Sagði við AP-fréttaveituna að handtakan hafi verið að beiðni hátt- settra. Framhaldið Venesúelska stjórnarandstaðan stendur að baki Guaidó og vonast til þess að hinn ungi þingmaður, þingforseti og starfandi forseti nái að hrifsa völdin af Maduro svo hann geti næst boðað til nýrra kosninga. Á þessari fyrstu viku hans sem starf- andi forseti hefur hann ekki náð að taka við völdum nema að nafninu til. Þingið ætlar að freista þess að fá herinn til liðs við sig í átökunum um forsetastólinn. Það samþykkti ályktun um að allir þeir hermenn sem „endurreisa lýðræði Venesúela“ fái algjöra friðhelgi. „Þau eru að leggja grunninn að því að fá bæði herinn og lögreglu til liðs við sig. Það gefur hermönnum ástæðu til þess að skipta um lið í staðinn fyrir að halda áfram að styðja Maduro,“ sagði Diego Moya- Ocampos, venesúelskur stjórn- málaskýrandi, við Wash- ington Post í vikunni. Moya-Ocampus sagði svo við AFP að herinn væri í rauninni lykill- inn að þessu öllu saman. V l a d i m i r Padrino López va r n a r m á l a - ráðherra sór Maduro holl- u s t u e i ð á þriðjudaginn. „Venesúelskir hermenn eru reiðubúnir til þess að verja stjórnarskrána, stofnanir ríkisins og þig, forseta Venesúela,“ sagði ráðherrann. Pattstaða er enn í deilunni um venesú- elska forsetastólinn. Hins vegar hefur Guaidó boðað til mótmæla um land allt þann 23. janúar. Þá verður 61 ár liðið frá því Marcos Pérez Jiménez herforingja var steypt af forsetastóli. Tveir forsetar 5. mars 2013 Nicolás Maduro verður forseti Venesúela og tekur við af Hugo Chávez. 2014 Olíuverð hríðlækkar og efna- hagshamfarir byrja af alvöru í Venesúela 2017 Mannskæð fjöldamótmæli fara fram. 165 láta lífið, þúsundir eru handteknar og enn fleiri særast. 29. mars 2017 Hæstiréttur Venesúela sviptir þingið völdum en snýr úrskurð- inum við þann 1. apríl. 21. júlí 2017 Hæstiréttur Venesúela í útlegð er stofnaður í Panama. 30. júlí 2017 Kosið er í nýtt stjórnlagaþing. Einungis Sósíalistaflokksmenn taka sæti á þinginu. 20. maí 2018 Forsetakosningar fara fram í Venesúela. Stjórnarandstaðan sniðgengur þær að mestu þar sem frambjóðendum hennar var mein- að að bjóða sig fram. Kannanir sýndu takmarkaðan stuðning við Maduro sem vann engu að síður stórsigur. Fjölmörg ríki neita að viðurkenna lögmæti kosninganna og það gerir þingið ekki heldur. 5. janúar 2019 Juan Guaidó verður forseti venesúelska þingsins 10. janúar 2019 Kjörtímabil Maduro rennur út. Hann er svarinn aftur inn í emb- ætti en þingið velur sinn eigin forseta, þingforsetann Guaidó. Samtök Ameríkuríkja, Brasilía, Kólumbía og Lima-hópurinn á meðal þeirra sem viðurkenna Guaidó sem nýjan forseta. 13. janúar 2019 Guaidó er handtekinn. Yfirvöld segja það ekki hafa verið að þeirra beiðni en Guaidó er ósam- mála. 16. janúar 2019 Bandaríkin viðurkenna Guaidó sem nýjan forseta. Maduro heldur ræðu í minning- arathöfn um Hugo Chávez. NORDICPHOTOS/AFP Mannskæð mótmæli voru um allt land árið 2017. NORDICPHOTOS/AFP Henri Falcón, mótframbjóðandi Maduro, greiðir atkvæði í forseta- kosningunum. NORDICPHOTOS/AFP Juan Guaidó er orðinn starfandi forseti. Eða að minnsta kosti sam- kvæmt þinginu. NORDICPHOTOS/AFP Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Nicolás Maduro, forseti Venesúela. Juan Guaidó, forseti Venesúela. 1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.