Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 108
Gott og girnilegt
Nú er ljúffenga Goða upphengiáleggið komið í umhverfis-
vænni umbúðir úr pappa. Því er ekkert mál að flokka og endurvinna.
Betra fyrir umhverfið
Goði - alltaf góður
NÝTT
Með góðri sAmvisku
Listafólkinu Árna Jónssyni og Geirþrúði Einarsdóttur verður skammdegið að yrkisefni á
sýningunni Sólarlampi sem opnuð
verður í dag klukkan 17 í Harb
inger á Freyjugötu 1. Þar er sólarljósi
varpað á draumkennda svefnmollu
sem fylgir tímabilinu þar sem nóttin
er sameinuð deginum. Sýningin er
sú fyrsta í sýningaröðinni Rólegt og
rómantískt sem samanstendur af
sex sýningum á sex mánuðum í Har
binger fyrri hluta þessa árs.
Samhliða myndlist vinnur Árni
við leikmyndagerð í leikhúsi og
kvikmyndum. Það nýtir hann oftar
en ekki í verkum sínum þar sem
hann notar vídeó, ljósmyndir og inn
setningar til að sviðsetja atburði og
tilfinningar.
Geirþrúður Einarsdóttir er mennt
aður klæðskeri og hefur starfað sem
slíkur og einnig í myndlist,. Hún
vinnur út frá formum sem hún finnur
í umhverfi sínu og vekja áhuga henn
ar og efnisval hennar er fjölbreytt.
Ókeypis aðgangur er að sýningum
í Harbinger og allir eru velkomnir.
Sýningin Sólarlampi stendur yfir til
9. febrúar. – gun
Sólarlampi, skammdegi og rútínuleysi í aðalhlutverkum
BÆKUR
Heltekin
HHHHH
Flynn Berry
Þýðandi: Hermann Stefánsson
Útgefandi: JPV
Fjöldi síðna: 303
Búast má við fjölmörgum þýddum
glæpasögum á markað þetta árið,
líkt og þau fyrri. Ein af þeim fyrstu,
ef ekki sú fyrsta, er Heltekin eftir
Flynn Berry. Bókin var valin ein af
tíu bestu glæpasögum ársins 2017
af Washington Post og höfundurinn
hlaut jafnframt Edgarverðlaunin
fyrir bókina, en þau eru veitt fyrir
bestu frumraun skáldsagnahöf
undar. Sem sagt góð byrjun hjá
Berry sem sendi frá sér aðra skáld
sögu á síðasta ári.
Söguþráðurinn er í stuttu máli
sá að Nora fer í heimsókn til systur
sinnar Rachel sem býr í litlu þorpi
í grennd við Oxford. Hún kemur
að systur sinni myrtri. Nora er viss
um að morðið sé tengt alvarlegri
líkamsárás sem Rachel varð fyrir
fimmtán árum áður. Nora hefur
sína eigin rannsókn og leit hennar
að morðingja systur sinnar verður æ
þráhyggjukenndari, um leið og ýmis
leyndarmál koma upp á yfirborðið.
Það verður að segja eins og er að
þessi glæpasaga, stendur ekki undir
gríðarlegu hrósi. Hún er hins vegar
gott byrjandaverk, vel skrifuð og
læsileg en hvorki sérlega spennandi
né grípandi. Berry tekst þó ágætlega
að lýsa flóknu sambandi systra sem
byggist á mótsagnakenndum til
finningum. Þungamiðja sögunnar
er sorg Noru. Í glæpasögum eru per
sónur sem hafa orðið fyrir þungum
missi oft furðu fljótar að jafna sig, en
hér er sorgin höfð nístandi og yfir
þyrmandi, sem gerir söguna afar
trúverðuga.
Nora og Rachel eru dregnar skýr
um dráttum en hið sama á ekki við
um allar persónur bókarinnar. Karl
mennirnir renna mikið til saman og
auðvelt er að ruglast á þeim. Þegar
líða tekur á söguna er freistandi að
óska þess að meiri spenna færist í
verkið. Það gerist ekki en í staðinn
kemur höfundur lesendum nokkr
um sinnum á óvart með fremur
óvæntum uppljóstrunum. Lausn
morðgátunnar er hins vegar engan
veginn óvænt heldur fremur rökrétt.
Margt er vel gert í Heltekin sem
verður samt aldrei sérlega eftir
minnileg glæpasaga. Hún ætti þó
að stytta unnendum glæpasagna
stundirnar. Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Heltekin er læsileg
og snyrtilega unnin saga um sorg
og þráhyggju en spennu skortir
tilfinnanlega.
Sálfræðitryllir
um sorg og
þráhyggju
Geirþrúður og Árni glaðbeitt á sýningunni í Harbinger.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 47L A U G A R D A G U R 1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9