Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 3

Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 3
Veður Austan 10-18 m/s snemma dags, hvassast syðst og víða rigning, en hægari og þurrt norðan til á landinu. Styttir upp suðvestan- lands síðdegis, og lægir víða annað kvöld. SJÁ SÍÐU 16 Lyklaskipti í Seðlabankanum Ásgeir Jónsson tók við embætti seðlabankastjóra í gærmorgun af Má Guðmundssyni, sem hefur gegnt því síðan 2009. Formleg lyklaskipti fóru fram rétt upp úr níu í gærmorgun. Ásgeir var skipaður til fimm ára af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í júlí en hann var þá dósent við Háskóla Íslands og jafnframt forseti Hagfræðideildar. Alls voru umsækjendur sextán talsins en þrír drógu umsókn sína til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. UMHVERFISMÁL Nýr þjóðgarður á hálendi Íslands mun ekki festa í sessi örfoka land og hægt verður að græða upp land innan þjóðgarðsins. Þetta segir Guðmundur Ingi Guð- brandsson, umhverfis- og auðlinda- ráðherra, og telur mikilvægt að endurheimta gróðurþekju sem eitt af verkefnum Íslands í baráttu gegn hlýnun jarðar. Hann segir það mikilvægt að hálendisþjóðgarður stöðvi ekki uppgræðslu og endurheimt gróð- urs á hálendinu. „Eitt af tækifær- unum við Miðhálendisþjóðgarð er einmitt að auka möguleikana á að endurheimta gróður og jarðveg. Slíka endurheimt má til dæmis sjá í Vatnajökulsþjóðgarði í dag. Mið- hálendisþjóðgarður er síður en svo ávísun á örfoka land eða ávísun á það að uppgræðslu innan hans yrði hætt eða komið í veg fyrir að ráðist yrði í þannig verkefni. Æskilegt er að endurheimt landgæða geti átt sér stað á svæðinu, meðal annars sem liður í átaki í loftslagsmálum,“ segir Guðmundur Ingi. Fréttablaðið sagði frá því á for- síðu sinni síðastliðinn mánudag að Landgræðslan og Skógræktin væru uggandi yfir því að mögulegur þjóð- garður gæti komið í veg fyrir upp- græðslu á hálendinu. Stofnanirnar hafa báðar sent inn umsögn vegna málsins og bent á þennan vankant. Það ber þó ekki að túlka sem svo að þær séu á móti stofnun þjóðgarðs. Aðeins að hægt verði að endur- heimta þann gróður sem tapast hefur vegna sauðfjárbeitar þar síð- ustu árhundruð. Sauðfjárbeit eða veiðar verða ekki bannaðar innan þjóðgarðs- ins. Bændur, sem nýtt hafa hálendi landsins til upprekstrar munu því ekki þurfa að óttast það að tapa afréttum og almenningum sem þeir hafa nýtt í aldir. Að mati Guðmundar Inga er mik- ilvægt að nýting innan þjóðgarðsins verði sjálfbær. „Það er mikilvægt að nytjar innan marka þjóðgarðsins verði sjálf bærar og nefndin sem vinnur að tillögum um þjóðgarðinn hefur lagt áherslu á að hefðbundnar sjálfbærar nytjar verði áfram leyfð- ar, svo sem veiðar og beit. Með til- komu nýrra landgræðslulaga frá því í fyrra þarf síðan að setja viðmið um sjálf bæra landnýtingu.“ sveinn@frettabladid.is Örfoka land ekki fest í sessi með þjóðgarði Guðmundur Ingi Guðbrandsson leggur áherslu á að hægt verði að græða upp land á hálendi Íslands þrátt fyrir að það verði innan þjóðgarðs. Mikilvægt sé að beit á svæðinu verði sjálfbær og að endurheimt gróðurþekju verði flýtt. Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur staðið í ströngu síðan hann tók við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SAMGÖNGUR Alger óvissa ríkir nú um framtíð Þingeyrarf lugvallar en hann hefur ekki verið notaður fyrir áætlunarflug síðan árið 2016, þegar eitt áætlunarflug var þangað. Völlurinn er mikið skemmdur og er kostnaður við nauðsynlegar endur- bætur á f lugbrautinni á bilinu 300 til 400 milljónir. Flugvöllurinn var hugsaður sem varavöllur fyrir Ísa- fjarðarflugvöll. Bæjarst jór i Ísaf jarðarbæjar segir málið öryggismál og er afar óánægður með samskiptin við Isavia, sem hefur umsjón með flug- völlum landsins. Arnór Magnússon, umdæmis- stjóri Isavia á Vestfjörðum, segir í samtali við Fréttablaðið að hann sjái ekki fyrir sér að ráðist verði í viðgerðir á vellinum á næstu árum. „Við í sjálfu sér erum alls ekki á móti því að gera völlinn upp en við bara höfum ekki fjármagnið. Það er ráðuneytið sem stýrir því.“ – ókp Mikil ó vissa um flugvöllinn UMHVERFISMÁL Stefnt er á að fram- kvæmdir við endurheimt votlendis í Borgarfirði hefjist í dag. Svæðið sem um ræðir er í eigu ríkisins en hefur ekki verið nýtt sem ræktarland eða tún í áraraðir. Landgræðslan fer fyrir verkefninu. „Við höfum verið að fylgjast með svæðinu síðastliðin tvö ár og munum halda áfram að fylgjast með hérna eftir framkvæmdir,“ segir Sunna Áskelsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landgræðslunni. Mælingar hafa verið á losun gróðurhúsalofttegunda á svæðinu ásamt því að grunnvatnshæð hefur verið mæld. Með endurheimtinni segir Sunna að gera megi ráð fyrir að grunnvatnsstaða á svæðinu hækki. „Þegar vatnsstaðan hækkar þá minnkar losun gróðurhúsaloft- tegunda og með tímanum gerum við ráð fyrir því að gróðurfarið breytist,“ segir Sunna. Endurheimt votlendis hefur lengi verið á stefnuskrá stjórnvalda og segir Sunna tilvalið að af la gagna samhliða framkvæmdunum, þann- ig sé hægt að sýna fram á ávinning af þeim. „Ávinningurinn er margs konar. Við munum til dæmis leggjast í til- raunir á mismunandi aðferðum á því hvernig má laga þau sár sem myndast við framkvæmdirnar,“ segir Sunna. – bdj Framkvæmdir hefjast í dag Sunna við mælingar á gróðurhúsa- lofttegundum. MYND/ÁGÚSTA HELGAD. Miðhálendisþjóð- garður er síður en svo ávísun á örfoka land eða ávísun á það að uppgræðslu innan hans yrði hætt eða komið í veg fyrir að ráðist yrði í þannig verkefni Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.