Fréttablaðið - 21.08.2019, Side 10
Ný menntastefna Reykjavíkur-borgar var samþykkt sam-hljóða í borgarstjórn fyrir
nokkru og er innleiðing hennar hafin.
Stefnan byggir á skýrri forgangs-
röðun með áherslu á ákveðna hæfni-
þætti sem leggja grunn að alhliða
menntun og þroska nemenda. Þar
ber hæst félagsfærni, sjálfseflingu,
sköpun og heilbrigði auk læsis.
Það er ekki nóg að móta stefnu,
stóra verkefnið er að hrinda henni í
framkvæmd og fyrsti áfanginn felur
í sér stóraukna áherslu á skólaþróun
með nýjum fjárveitingum til allra
leikskóla, grunnskóla og frístunda-
miðstöðva borgarinnar svo þeir
geti hafið innleiðingu stefnunnar.
Við tryggjum rúmlega 170 starfs-
stöðvum fjármagn til skólaþró-
unarverkefna úr nýsköpunar- og
þróunarsjóði menntastefnunnar:
Látum draumana rætast. Það er
mikil aukning frá því sem áður var,
úr 40 milljónum í fyrra er sú fjárhæð
hækkuð í 200 milljónir til að undir-
strika hve mikla áherslu við viljum
leggja á metnaðarfullt þróunarstarf
sem lið í að efla fagmennsku, starfs-
þróun og gæði í skóla- og frístunda-
starfi borgarinnar.
Sérstök áhersla er lögð á fjöl-
breytt samstarfsverkefni og hlutu
18 slík verkefni samtals 50 milljónir
króna í úthlutun skóla- og frístunda-
ráðs fyrr í sumar. Hæstu einstöku
styrkina fengu Fab lab verkefnið
Skapandi námssamfélag í Breið-
holti; Austur-Vestur, sköpunar og
tæknismiðjur grunnskóla í þremur
hverfum borgarinnar, Það þarf heilt
þorp sem byggir á samstarfi leik-
skóla, grunnskóla og frístundastarfs
um félagsfærni og sjálfseflingu og
Leikur, styðjandi samskipti og lær-
dómssamfélag, samstarfsverkefni sex
leikskóla sem dreifast um borgina, í
samstarfi við Rannung. Þá má nefna
verkefnið Útivist og útinám í Grafar-
vogi með þátttöku allra frístunda-
heimila í hverfinu.
Menntastefna Reykjavíkur er
leiðar ljós borgarinnar í menntamál-
um til 2030. Stefnan byggir á traust-
um grunni aðalnámskrár og Barna-
sáttmálans og hún markar tímamót
því hún var mótuð af þúsundum ein-
staklinga sem bera hita og þunga hins
daglega skóla- og frístundastarfs:
nemendum, kennurum, skólastjórn-
endum, öðru fagfólki að ógleymdum
foreldrum og almenningi. Það er
verkefni okkar stjórnmálamanna
að skapa umgjörð sem tryggir mark-
vissa og árangursríka innleiðingu
menntastefnunnar og við munum
gera það og byggja áfram á þeirri
góðu samstöðu sem náðst hefur um
þetta mikilvæga verkefni.
Spennandi skólaþróun
Skúli Þór
Helgason
formaður
skóla- og
frístunda ráðs
Reykjavíkur
Þar sem maður var staddur í sumarfríi á Ítalíu þá tók maður eftir því að matarverð er um
það bil helmingi lægra en heima á
Íslandi. Það sama hefur maður séð
varðandi vexti af íbúðarhúsnæði en
þeir eru einnig helmingi lægri þar en
á Íslandi. Þá vaknar ávallt upp þessi
spurning hjá mér og sennilega flest
öllum öðrum Íslendingum á ferða-
lögum: Hvers vegna er það?
Svarið er í raun einfalt, við erum
ekki í ESB. Við erum í EES og þó
það tryggi okkur aðgang að innri
markaði ESB þá tryggir það okkur
ekki fullan ávinning í formi lækk-
aðs matarverðs og vaxta. Værum við
aðilar að ESB og með evru sem gjald-
miðil þá værum við að njóta þessa
ávinnings til jafns við aðra borgara
ESB. Þetta er svona einfalt.
Með EES-samningnum var komið
á fót sameiginlegu efnahagssvæði
sem byggist á frjálsum vöruflutn-
ingum, frjálsri för launafólks, frjálsri
þjónustustarfsemi og staðfesturétti,
ásamt frjálsum fjármagnshreyfing-
um (fjórþætta frelsið). Til þess að
þetta fyrirkomulag virki þá þurfa
allir að spila eftir sömu reglum innan
þessa sameiginlega innri markaðar
ESB/EES. Af samningnum leiðir
því að okkur ber að innleiða inn í
íslenska löggjöf allar þær reglur sem
hafa verið samþykktar á vettvangi
EES-samstarfsins. Þess ber að geta
að þetta á einungis við þær reglur
ESB sem varða gildissvið EES-samn-
ings. Samkvæmt upplýsingum á vef
Stjórnarráðsins varðandi samning
um Evrópska efnahagssvæðið þá
hafa 13,4% af þeim lögum og reglum
sem ESB hefur samþykkt frá árinu
1994 til ársloka 2016 verið tekin upp
í EES-samninginn.
Það er því ljóst að við erum ekki að
„gúmmístimpla“ öll lög og reglur ESB
og þannig framselja fullveldi okkar.
Við erum aðilar að alþjóðlegum
samningi og þess vegna þurfum við
að taka upp ákveðna þætti löggjafar
ESB sem falla undir gildissvið EES.
Hins vegar þýðir þetta jafnframt að
værum við ekki að taka upp þessar
reglur þá mundum við ekki lengur
vera aðili að þessum samningi og
þar liggur kjarni málsins. Umræðan
um þennan þriðja orkupakka er
gott dæmi um þetta. Þar sem við
erum aðilar að þessum samningi
þá verðum við að innleiða þennan
orkupakka og ef við gerum það ekki
þá erum við í raun að segja upp EES-
samningnum í heild sinni. Þetta er
svona svipað og að vera á móti hita
en ekki kvefi þ.e.a.s. einkennum
sjúkdóms en ekki sjúkdómnum
sjálfum.
Þessi ESB-mál eru að kljúfa heilu
f lokkana í herðar niður og þetta
byggist allt á þessari grundvallar-
spurningu: Viljum við vera hluti af
ESB eða ekki? EES-samningurinn
tryggir okkur nánast allt það sem
slík aðild hefði í för með sér en þó
ekki þann hluta sem hefði best gildi
fyrir lífskjör almennings í landinu.
Sá hluti kjósenda sem er á móti ESB/
ESS hefur auðvitað rétt á sinni skoð-
un en þá væri hreinlegast að segja
það bara beint út. Ég er hins vegar
nokkuð viss um að sá hluti kjósenda
vildi gjarna fá niðurstöðu í þessi mál
og það er augljós leið til þess.
Í fyrsta lagi þyrfti að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu um að fela
stjórnvöldum að halda áfram/hefja
aðildarviðræður við ESB eða segja
upp EES-samningnum. Það væru
þessir tveir kostir sem væri kosið um
og aðeins þannig fengjum við niður-
stöðu í þetta mál til frambúðar.
Nú hafa Norðmenn kosið tvisvar
um og hafnað aðild að ESB, Bretar
hafa kosið að yfirgefa ESB og í báðum
tilvikum hefur vilji þjóðarinnar
verið virtur af stjórnvöldum. Væri
ekki ráð að við leystum úr þessum
málum á sama hátt, með þjóðar-
atkvæðagreiðslu?
ESB og Ísland – þjóðaratkvæða-
greiðsla um aðildarviðræður
Menntastefnan markar
tímamót með áherslu á
alhliða menntun og þroska
nemenda.
Guðjón Viðar
Valdimarsson
viðskipta-
fræðingur
Væri ekki ráð að við leystum
úr þessum málum á sama
hátt, með þjóðaratkvæða-
greiðslu?
Volkswagen Caddy.
Vertu klár fyrir
veturinn.
Tilboðsverð.
Framhjóladrifinn 2.690.000 kr.
Fjórhjóladrifinn 3.790.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda útfærslna.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9