Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 11
Það er ábyrgðarhluti að stjórna heilu landi og vissu- lega er mikilvægt að setja á sig bæði belti og axlabönd, sérstaklega þegar kemur að háum fjárhæðum sem Ríkis- sjóður Íslands gæti þurft að standa straum af.Síðan þriðji orkupakkinn var tekinn til umræðu á Alþingi hefur mikill tími farið í að ræða þann fyrirvara sem ríkisstjórnin segist ætla að setja á innleiðinguna. Með fyrirvaranum verða reglu­ gerðir orkupakkans innleiddar en gildistöku hluta þeirra frestað, þ.e. þeirra sem gætu farið á svig við stjórnarskrána. Þótt það megi vissulega deila um hvort slíkur fyrirvari hafi eitthvert gildi þá má jafnframt benda á að innleiðingin er ekki eins og hún á að vera og því má búast við að Eftirlitsstofnun EFTA hafi eitthvað út á það að setja. Í þessu samhengi er rétt að skoða nýlegar fréttir af þeirri málsókn sem á sér stað gegn stjórnvöldum í Belgíu. Ástæðan fyrir því að þessi málsókn er áhugaverð er sú að fram­ kvæmdastjórn Evrópusambands­ ins höfðar málið og hún gerir það sökum þess hvernig stjórnvöld þar í landi stóðu að innleiðingu þriðja orkupakkans. Framkvæmdastjórn­ in segir sem sagt að innleiðingin á tveimur af reglugerðum í orkupakk­ anum (2009/72/EB og 2009/73/EB) hafi ekki verið framkvæmd á réttan hátt. Þrátt fyrir þessa miklu samsvör­ un milli þessara tveggja atburða, ófullnægjandi innleiðingu á þriðja orkupakkanum á Íslandi sem og í Belgíu, þá virðist ríkisstjórnin harla róleg. Það má segja að það veki furðu því nú hefur hver lög­ spekingurinn á fætur öðrum bent á hversu hættuleg braut þetta sé. Ekki einvörðungu í ljósi þess að einhliða fyrirvari af Íslands hálfu sé gagns­ laus og því sé ekki hægt að koma í veg fyrir sæstreng eftir að þriðji orkupakkinn hefur verið innleidd­ ur, heldur leikum við okkur einnig að eldinum varðandi innleiðinguna og getum átt von á samningsbrota­ máli gegn Íslandi og að öllum lík­ indum skaðabótamáli. Nú þætti mér fróðlegt að fá frekari upplýsingar um hvort ríkisstjórnin hafi látið leggja mat á hverjar skaðabæturnar yrðu ef svo illa vill til að sótt verði samn­ ingsbrotamál gegn landinu eftir þá hálfkáks innleiðingu sem nú er lagt upp með. Hefur það ef til vill ekki verið kannað? Það er ábyrgðarhluti að stjórna heilu landi og vissulega er mikilvægt að setja á sig bæði belti og axlabönd, sérstaklega þegar kemur að háum fjárhæðum sem Ríkis­ sjóður Íslands gæti þurft að standa straum af. Því er ég hissa á þessu öllu saman. Ég er hissa á því að ríkisstjórnin loki eyrunum gagnvart efasemda­ röddum úr samfélaginu, löglærðum og sérfróðum, í stað þess að kanna málin ofan í kjölinn og tryggja að ekki sé lagt af stað í háskaför. Við verðum auðvitað að geta treyst stjórnvöldum landsins en miðað við það sem á undan er gengið þá er ekki laust við að efasemdirnar séu byrjaðar að naga mann því erfitt getur reynst að spá fyrir um hvað sé fram undan. Það versta er að ég er ekki viss um að ríkisstjórnin viti það heldur. Orkupakkinn á Íslandi og fréttir frá Belgíu Sigurður Páll Jónsson alþingismaður Miðflokksins Formáli: Þann 3. júní  birtist í Fréttablaðinu grein eftir mig sem var svo tyrfin og leiðinleg að varla nokkur manneskja treysti sér til að lesa þau ósköp. Ég ætla því að gera nýja tilraun og reyna að koma inntakinu til skila á manna­ máli. Samkvæmt Hegel – sem var þýskur heimspekingur á 19. öld – er hægt að tala um tvö félagsleg meginöfl sem eru – eftir atvikum – annars vegar hið Góða og hins vega hið Illa. Þessi tvö meginöfl eru ann­ ars vegar Ríkisvaldið og hins vegar Ríkidæmið. Þannig er t.d. auðsætt að í hugum sumra er Ríkisvaldið hið Góða. Ríkisvaldið er afrakstur af starfi allra og endurspeglar þann­ ig almennt eðli einstaklinganna. Auk þess er Ríkisvaldið fórnfúst og styður einstaklingana – háa sem lága – í lífsbaráttunni. Frá þessu sjónarmiði er Ríkidæmið hins vegar hið Illa, vegna þess að það er sundr­ ungarafl sem stuðlar að eigingirni og einstaklingshyggju þar sem ein­ staklingarnir stunda það helst að skara eld að eigin köku. En það er ekki bara ein hlið á þess­ um málum. Þannig er enn fremur auðsætt að í hugum annarra er það einmitt Ríkidæmið sem er hið Góða. Ríkidæmið – auðæfi einstaklinganna – þjónar nú því markmiði að gera einstaklinginn að því sem hann er: mennsk vera. Ríkidæmið gerir þann­ ig einstaklingunum kleift að þroska gáfur sínar og njóta tilverunnar. Frá þessu sjónarmiði hins vegar gerir Ríkisvaldið ekki annað en að hefta einstaklingana og setja skorður við athafnafrelsi þeirra. Frá þessu sjón­ arhorni er Ríkisvaldið því hið Illa. Hitt er svo annað mál að við í nútímanum þurfum ekki að leita á náðir heimspekinnar til þess að átta okkur á þessum hugtökum. Staðreyndin er nefnilega sú að við þekkjum mæta vel úr nánum félags­ legum veruleika það ástand á hlut­ unum þar sem hinir andstæðu pólar – meginöflin tvö – eru í fyrirrúmi. Ég er auðvitað að tala um þann félagsveruleika 20. aldar þar sem annars vegar kommúnisminn og hins vegar kapítalisminn ríktu. Frá sjónarhorni kommúnismans var Ríkisvaldið hið Góða og Ríkidæmið hið Illa; frá sjónarhorni kapítalism­ ans var þessu öfugt farið. Þessi öfgafulli félagslegi veru­ leiki 20. aldar var að sjálfsögðu heimur á villigötum vegna þess að hvort viðhorfið um sig útilokaði hitt: kommúnisminn útilokaði þá einstaklingshyggju sem hafði Ríki­ dæmið að markmiði; kapítalisminn útilokaði þá félagshyggju sem hafði Ríkisvaldið að markmiði. Hvort við­ horfið um sig var þannig einhliða, var einskonar „annaðhvort – eða“ ástand: hafði annaðhvort Ríkis­ valdið eða Ríkidæmið að leiðarljósi. Við hins vegar – við Íslendingar á okkar dögum – við vitum hver sannleikurinn er í þessu máli: Við vitum að sannleikurinn er ekki í formi tvíhyggjunnar sem aðskilur meginöflin tvö; við vitum að sann­ leikurinn er ekki í „annaðhvort – eða“ formi, heldur í forminu „bæði – og“. Bæði Ríkisvaldið, sem þjónar almennum þörfum einstakling­ anna, sem og Ríkidæmið sem er afrakstur af óheftu efnahagslífi, er hið Góða. Þetta er auk þess kerfi sem við Íslendingar þekkjum mjög náið því að þetta er það blandaða hagkerfi sem einkennir velferðar­ samfélagið sem fest hefur rætur á hinum Norðurlöndunum öllum – og að nokkru leyti líka hér á Íslandi. Staðreyndin er sú að Íslendingar vilja velferð þar sem t.d. sjúkra­ húsum, skólum, vegakerfinu – og almennt séð innviðum landsins – er sinnt. Samt kjósa Íslendingar yfir sig trekk í trekk – og raunar nánast alltaf – stjórnmálaafl sem er á villigötum. Sjálfstæðisflokkurinn er á villigötum – og fer ekki í graf­ götur með það – vegna þess að hug­ sjón hans er einhliða. Sjálfstæðis­ flokkurinn leggur megináherslu á einstaklinginn og ríkidæmi hans – hyglar hinum sterkari – en sinnir ekki þörfum þeirra sem minna mega sín nema með hangandi hendi. Sjálfstæðisflokknum hefur tekist að koma í veg fyrir að raun­ verulegt velferðarkerfi nái að dafna hér á landi. Eins hvað ástandið á heimsvísu varðar. Sumir ganga með þá f lugu í hausnum að kapítalisminn hafi sigrað í kalda stríðinu. Samt er það svo að kapítalisminn er ekki síður á villigötum heldur en kommún­ isminn. Kapítalisminn nefnilega er hjartalaus og nærist á græðgi einstaklinganna en sinnir ekki þjóðarhag. Framundan bíða mann­ kyns risastór útlausnarefni – sem kalla á einingu og samhug allra jarðarbarna – svo sem baráttan gegn mengun og náttúruspjöllum sem og baráttan gegn vopnuðum átökum og fyrir friði. Ef okkur jarðarbörnum á að takast að leysa þessi risastóru úrlausnarefni verður okkur að takast að losa okkur við kapítalismann – sem og einhliða hugsunarhátt hans. Hið Góða og hið Illa í pólitískum skilningi – aftur Þór Rögnvaldsson heimspekingur Hér vil ég strax taka það fram að álit mitt á Alþingi Íslendinga er í dag minna en nokkru sinni fyrr. Og var það þó afar takmarkað frá fyrstu tíð. Ég hef jafnan séð obba þingmanna sem meðalskussa sem ramba borubrattir inn á þing, læra þar að þiggja bitlinga og fara svo eftir þingsetu ýmist í störf á vegum stjórnvalda eða á atvinnu­ leysisbætur, þar eð þeir hafa sýnt af sér þann þokka sem fæstir vilja tengja sig við. Við eigum þingforseta sem hefur nær alla sína ævi þurft að fá ríkis­ styrk til að ná andanum, mann sem þykist vera félagshyggjugoð, en er í raun ekkert annað en strengja­ brúða auðmagnseigenda, sníkjudýr og þurfalingur. Við eigum fjármála­ ráðherra sem hefur leynt og ljóst stundað athæfi sem ekki má sjá dagsljós. Þar eigum við mann sem neitar að svara til saka, neitar að birta gögn, skreytir og skákar í skjóli valds. Við eigum forsætisráðherra sem gerði fátt annað í ára raðir en að gagnrýna sjálfstæðismenn og fram­ sóknarmenn sem forhert hyski. Og sá sér svo þann besta leik í stöðunni að opna faðm sinn fyrir hrunverjum og leyfa þeim áfram að njóta ylsins af kjötkötlunum. Að leggjast undir íhald og framsókn var leiðin sem sýndi okkur hve algjör samtrygg­ ingin er hjá stjórnarelítunni. Nær undantekningalaust eru verðandi þingmenn afar gjafmildir á loforð, þeir láta vaða á súðum og ríða röftum en síðan eiga þeir náð­ uga daga á þingi, þar sem þeir starfa helst við að svíkja gefin loforð. Nú er það svo, að vegna þess að ég hef lengi fengist við að yrkja, þá hefur það komið fyrir að þingmenn úr ýmsum flokkum hafa óskað eftir aðstoð minni, þegar þeim hefur verið boðið að flytja ræðu í bundnu máli í þingveislu. Þeir fylla eflaust tuginn sem minnar aðstoðar hafa notið, þótt sjaldnast hafi hið bundna mál ratað í veislu nema þá undir nafnleynd. Í seinni tíð er sjaldgæft að þing­ menn biðji um liðveislu mína. En skýringarinnar er mér sagt að sé að leita í því að ég hef verið of sann­ orður í skrifum mínum um þing­ heim. Þó gerðist það að ónafngreind þingkona úr röðum stjórnarand­ stöðunnar leitaði til mín fyrir ekki svo alltof löngu. Hún vildi fá mig til að yrkja fyrir sig efni sem hún ætlaði að flytja í þingveislu. Ég sagðist geta það. En þegar gagnrýni mín og við­ leitni til að segja sannleikann var rædd, þótti konunni sem ég færi yfir strikið. Hún sagði mér að þetta ætti allt að vera bara vingjarnlegt grín. Hún sagði mér reyndar að staðan væri jafnan sú, að á Alþingi væru allir þingmenn vinir. Þegar þessi augljósa staðreynd kom upp úr hatti þingkonunnar, var ljóst að minnar aðstoðar myndi ekki vera óskað. Þessi skrif mín um þingheim, ráða­ menn, þingveislur og bundið mál, kalla fram í kolli mínum nafn ágæts manns, sem lengi ritaði afar hvassa gagnrýni á stjórnvöld áður en hann fór inn á þing. Og það sem meira er hann ritaði í hverri viku pistil akk­ úrat í þetta blað, Fréttablaðið. Hann benti margsinnis á meinsemdir og ekki er annað hægt en hrósa honum eilíf lega fyrir frábær skrif. Afar slunginn penni og stílvopnin fjöl­ mörg léku í höndum hans einsog spil í höndum töframanns. Sá kunni að segja flórmokurum framsóknar og auðsöfnurum íhaldsins til synd­ anna. Sá gat nú aldeilis látið dreyr­ ann leka af oddi pennans. Hann var sverð og skjöldur, hann var prinsinn á hvíta hestinum sem frelsaði okkur undan oki lyginnar, gunnfáni sann­ leikans var í höndum hans. En núna er hann á þingi og þar er hann inn­ múraður þagnarmeistari, rétt einsog allir hinir hlýðnu rakkarnir. Hann er núna einsog fólkið sem leyfir sér kannski þann munað að gera góð­ látlegt og vinalegt grín að hinni sið­ blindu hjörð sem Íslandi stjórnar. Þar var á ferðinni rithöfundur sem ég hef lengi haft mætur á og mun eflaust áfram virða sem merkan höfund. Fyrir síðustu kosningar var einn maður sem ég mærði, einn maður sem ég vonaði svo sannarlega að kæmist inn á þing til að hræra í svínasultunni og hrista upp í hinni daunillu ládeyðu. Ég vildi fá Guð­ mund Andra Thorsson á þing. Ég hafði þá skoðun að hann myndi verða fylginn sér og láta svikarana, þjófana og lygarana finna til tevatns­ ins. Ég trúði því að hann myndi breyta miklu. Og vissulega breytti hann miklu, því honum tókst að breyta skoðun minni. Þjóðin hátt vill hrópað fá svo hriktir vel í sperrum en þeir sem inn á þingið ná þjóna sínum herrum. Þing og þjóð Kristján Hreinsson heimspekingur og skáld Nær undantekningalaust eru verðandi þingmenn afar gjafmildir á loforð, þeir láta vaða á súðum og ríða röftum en síðan eiga þeir náðuga daga á þingi, þar sem þeir starfa helst við að svíkja gefin loforð. Sumir ganga með þá flugu í hausnum að kapítalisminn hafi sigrað í kalda stríðinu. Samt er það svo að kapítal- isminn er ekki síður á villi- götum heldur en kommún- isminn. 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.