Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 15

Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 15
MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Ferðaþjónustufyrirtækið Allra­handa GL, sem rekur Gray Line og Airport Express, tapaði 517 milljónum á síðast ári. Fyrirtækið á í viðræðum við viðskiptabanka sinn um endurskipulagningu lána. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins. Tap Allra­ handa jókst verulega á milli ára en það nam 195 milljónum árið 2017. Tekjur námu 3 milljörðum króna og drógust saman um 19 prósent. Rekstrargjöld námu hins vegar 3,4 milljörðum og drógust saman um tæp 14 prósent. Eignir félagsins námu 2,5 milljörðum króna í árs­ lok 2018 og eigið féð 473 milljónum. Stærsti hluthafi Allrahanda með 49 prósenta hlut er fjárfestingar­ félagið Akur og eru helstu hluthafar þess lífeyrissjóðir. Stofn end urnir Þórir Garðars son og Sig ur dór Sig­ urðsson eiga hvor 25 prósenta hlut. Í ársreikningi kemur fram að skammtímaskuldir hafi verið hærri en veltufjármunir í lok síðasta árs en um mitt árið fóru stjórnendur félagsins í endurskipulagningu á rekstrinum til að jafna rekstrarhall­ ann. „Sú vinna heldur áfram 2019 og mun koma til með að skila hagstæð­ ari afkomu,“ segir í reikningnum. Þá kemur fram að á þessu ári hafi hluthafar félagsins komið með aukið fjármagn og að samningar við viðskiptabanka félagsins um endur­ skipulagningu lána séu í vinnslu. „Það er mat stjórnenda þegar litið er til þeirra þátta sem áunnist hafa á árinu 2019 að framtíðarhorfur félagsins eru jákvæðar.“ Allrahanda og Reykjavík Sight­ seeing Invest tilkynntu í júlí að félögin hefðu sent Samkeppniseftir­ litinu greinargerð um fyrirhugaða sameiningu. – þfh Allrahanda tapaði hálfum milljarði Bandaríska sjóðastýringar­fyrirtækið Baron Capital Management, sem var stofnað af milljarðamæringnum Ron Baron, keypti um hálfs prósents eignarhlut í Marel í hlutafjárútboði félagsins sem lauk í júní. Þetta má lesa út úr nýju árshlutauppgjöri bandaríska félagsins en í lok júní átti sjóðurinn Baron Growth Fund, sem er stýrt af Ron Baron, rúmlega 4,1 milljón hluta í Marel og er markaðsvirði þess eignahlutar í dag um 2,4 millj­ arðar íslenskra króna. Í fréttabréfi til sjóðsfélaga Baron Capital er sérstaklega vikið að fjárfestingu sjóðsins í Marel og þeim tækifærum sem sjóðsstjórar telja að Marel standi frammi fyrir. Þannig búast þeir við því að EBIT­ framlegð fyrirtækisins muni halda áfram að aukast samhliða sterkum tekjuvexti. Á það er bent að hlutfall EBIT­framlegðar af sölu á búnaði sem er notaður til vinnslu á kjúkl­ ingi sé nú um tuttugu prósent á meðan hlutfallið sé um tíu prósent í öðru kjöti og fiski. Vænta þeir þess að framlegðin í kjúklingi muni batna enn frekar og að af koman í kjöti verði að lokum sambærileg og í kjúklingi. Baron Capital er með eignir í stýringu að jafnvirði um þrjá­ tíu milljarða B a n d a ­ r í k j a ­ dala. Í ný a f ­ stöðnu hlutafjárútboði Marels, sem var efnt til samhliða skráningu félags­ ins í kauphöllina í Amsterdam í júní, voru 100 milljónir nýrra hluta seldar á genginu 3,7 evrur á hlut, jafnvirði um 51 milljarðs króna á núverandi gengi. Frá skráningu á markað í Hollandi hefur hluta­ bréfaverð Marels hækkað um liðlega fjórtán prósent og er markaðsvirði félagsins í dag um 443 milljarðar króna. Fjöldi alþjóðlegra f jár­ festa í hluthafahópi Marels hefur margfaldast frá því í ársbyrjun 2018. Samanlagður eignarhlutur þeirra í félaginu hefur þannig aukist á tímabilinu úr þremur p r ó s e n t­ um í um þ r j á t í u prósent. – hae Baron með yfir tveggja milljarða hlut í Marel Fulltrúi Bankasýslu ríkis­ins í stjórn Arion banka gerði engar athugasemd­ir við þær breytingar sem gerðar voru á ráðningar­samning i Höskuldar Ólafssonar, þáverandi bankastjóra, um mitt ár 2017 og samþykktar af stjórn bankans. Þær breytingar, sem tengdust annars vegar upp­ sagnarfresti og hins vegar samningi um starfslok, þýddu að bankinn þurfti að gjaldfæra hjá sér samtals 150 milljóna króna kostnað vegna launa og launatengdra gjalda þegar Höskuldur lét af störfum í apríl á þessu ári. Höskuldur hefur neitað því að hann hafi verið rekinn heldur hafi hann sagt starfi sínu lausu. Samkvæmt heimildum Markað­ arins voru fyrrnefndar breytingar á ráðningarsamningi Höskuldar samþykktar samhljóða af öllum stjórnarmönnum bankans. Full­ trúi Bankasýslunnar í stjórn Arion banka á þessum tíma var Kirstín Þ. Flygenring en stofnunin hélt þá utan um þrettán prósenta hlut ríkisins í bankanum. Sá hlutur var síðan seldur til Kaupþings, sem þá var stærsti hluthafi bankans, í árs­ byrjun 2018 fyrir um 23,4 milljarða króna. Bjarni Benediktsson, fjármála­ og efnahagsráðherra, lét hafa það eftir sér í fjölmiðlum í lok síðustu viku, spurður um starfslokasamning Höskuldar, að fyrir honum liti þetta út „sem ótrúlegt bruðl“. Í svari til Markaðarins segir Arion banki að breyting á ráðningarsamn­ ingi Höskuldar hafi verið gerð þegar alþjóðlegt hlutafjárútboð og skrán­ ing bankans á markað á Íslandi og í Svíþjóð var í undirbúningi. Þetta hafi verið gert í kjölfar þess að þáverandi stjórnarformaður bank­ ans, Monica Caneman, hafi stigið til hliðar. „Markmiðið var að tryggja að bankinn nyti starfskrafta Höskuld­ ar fram að hlutafjárútboði og skrán­ ingu og í framhaldi af henni. Fyrir lá að það hefði einfaldlega skaðað og tafið útboðs­ og skráningarferli bankans ef mannabreytingar yrðu bæði á stöðu stjórnarformanns og bankastjóra svo skömmu fyrir fyrirhugaða skráningu. Miklir hags­ munir voru í húfi og mat sú stjórn sem þá sat það afar mikilvægt að tryggja nauðsynlegan stöðugleika með því að gera breytingar á ráðn­ ingarsamningi bankastjóra,“ segir í svari Arion. Starfslok Höskuldar hafi verið að fullu í samræmi við þann samning sem gerður var við hann árið 2017 og samanstóð af uppsagnarfresti og samningi um starfslok. Bankinn viðurkennir að kjörin hafi „vissu­ lega [verið] óvenjuleg en aðstæður voru óvenjulegar í ljósi skráningar bankans á markað og mikilvægis þess að stöðugleiki ríkti í þessum æðstu stjórnunarstöðum bankans á þeim tíma.“ Ekkert varð hins vegar af fyrir­ huguðum áformum um útboð og skráningu Arion banka haustið 2017 þegar ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisf lokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var slitið um miðjan september. Bankinn var að lokum skráður á hlutabréfamarkað í kauphöllunum á Íslandi og í Sví­ þjóð í júní ári síðar. Laun Höskuldar á árinu 2018 námu samtals 67,5 milljónum króna auk árangurstengdra greiðslna að fjárhæð 7,2 milljónir. Þær greiðslur komu hins vegar til vegna rekstrar­ árangurs á árinu 2017. Hagnaður bankans á síðasta ári dróst saman um nærri helming og nam tæp­ lega 7,8 milljörðum. Arðsemi Arion banka á eigið fé var aðeins 3,7 pró­ sent. hordur@frettabladid.is Bankasýslan blessaði 150 milljóna starfslok Höskuldur Ólafsson lét af störfum sem bankastjóri Arion banka í apríl síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Fulltrúi Bankasýslunn- ar í stjórn Arion banka gerði engar athuga- semdir við breytingar á ráðningarsamningi þáverandi bankastjóra sumarið 2017. Var sam- þykkt samhljóða af stjórn bankans. Kostaði bankann 150 milljónir í starfslokagreiðslur til Höskuldar Ólafssonar. 13% var eignarhlutur ríkisins í Arion banka þegar samn- ingur um starfslok banka- stjórans var samþykktur í stjórn bankans. Ronald Baron, stofnandi og framkvæmda- stjóri Baron Capital. Þórir Kjartans- son, stjórnarfor- maður Allra- handa. “Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum og ráðgjöf um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,, Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir 443 milljarðar króna er mark- aðsvirði Marels í dag. Hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað um liðlega 55 prósent frá áramótum. 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.