Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 17
Lögmannsstofurnar BBA Legal og Fjeldsted & Blöndal, tvær af stærri stofum landsins, hafa gengið frá samkomulagi um sam- einingu. Áætlað er að samruninn muni taka gildi í haust, samkvæmt heimildum Markaðarins. Saman- lögð velta félaganna var um 860 milljónir króna í fyrra. Sameinuð lögmannsstofa fyrir- tækjanna verður í turninum við Höfðatorg þar sem BBA Legal er nú til húsa. Þá verður starfrækt skrif- stofa í London í gegnum dóttur- félag sem verður stýrt af Gunnari Þór Þórarinssyni hæstaréttarlög- manni en hann gekk nýlega til liðs við Fjeldsted & Blöndal. Helstu hluthafar BBA Legal, hver um sig með rúmlega 21 prósents hlut, eru þeir Einar Baldvin Árna- son, Baldvin Björn Haraldsson, Ásgeir Árni Ragnarsson og Atli Rafn Þorbjörnsson. Í árslok 2018 störfuðu átján manns hjá BBA Legal og námu tekjur stofunnar um 490 milljónum króna. Hagnaður lögmannsstofunnar var ríf lega 88 milljónir króna og jókst um 12 milljónir frá fyrra ári. Þannig nam hagnaður á hvern af stærstu eigendum félagsins því um 18,5 milljónum króna. Eigendur Fjeldsted & Blöndal, sem fækkaði úr fjórum í þrjá í fyrra, eru þeir Halldór Karl Halldórsson, 860 milljónir var samanlögð velta lögmannsstofanna á árinu 2018. Mér finnst þessi sala í raun og veru rökrétt í ljósi þess að þeir voru ósáttir. Kristján Þ. Davíðs- son, stjórnarfor- maður Brims Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is ÞG Verk, sem er eitt stærsta verktakafyrirtæki landsins, hagnaðist um 550 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 762 milljónir árið 2017. Stjórn félagsins hefur lagt til að greiddur verði út arður að fjárhæð 100 milljónir króna vegna síðasta rekstrarárs. Eigið fé félagsins nam 1.982 milljónum króna í árslok 2018 og eignir 3.695 milljónum. Rekstrartekjur námu 10 milljörð- um á síðasta ári og stóðu nokkurn veginn í stað á milli ára. Heildar- tekjur drógust hins vegar saman um tæp 11 prósent og skýrist það af því að á árinu 2017 voru seldar fasteignir fyrir 1,1 milljarð en engin fasteign var seld á síðasta ári. ÞG Verk var stofnað árið 1998 af Þorvaldi H. Gissurarsyni sem er enn forstjóri og eigandi félagsins. Á árinu störfuðu 172 starfsmenn hjá félaginu og námu launagreiðslur samtals 1,7 milljörðum króna. Þar af námu laun framkvæmdastjóra 55 milljónum króna. ÞG Verk hefur á undanförnum árum byggt hundruð íbúða fyrir almennan íbúðamarkað, meðal annars í fimm mismunandi bygg- ingum á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur. Markaðurinn greindi frá því fyrr á árinu að ÞG Verk hefði selt eða samþykkt kauptilboð í allar íbúðir nema tvær, samtals þrjátíu íbúðir, í fyrstu tveimur húsum á Hafnar- torgi. Þá var haft eftir Þorvaldi í byrjun árs að verkefnið kostaði í heild um 13 til 14 milljarða. Um það bil helm- ingur fjárhæðarinnar væri lánsfé frá Landsbankanum. – þfh 550 milljónir í hagnað ÞG Verk er með íbúðir á sölu á Hafnartorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Stjórnarformaður Brims segir að eftir sölu Gildis á stórum hlut í fyrirtækinu til FISK Seafood megi vænta þess að meiri ein-hugur verði í hluthafa- hópi sjávarútvegsfyrirtækisins um framtíðarstefnu þess. FISK Seafood, eins og Brim, sjái tækifæri í aukinni sölustarfsemi í Asíu. Eins og Markaðurinn greindi frá í byrjun vikunnar keypti FISK-Sea- food, dótturfélag Kaupfélags Skag- firðinga, nær allan 8,5 prósenta hlut Gildis lífeyrissjóðs í Brimi, áður HB Grandi, fyrir um fimm milljarða. Fyrir eignarhlutinn í Brimi fékk Gildi meðal annars afhentan hluta af bréfum FISK-Seafood í Högum, en fyrirtækið átti samanlagt tæp- lega 4,6 prósenta hlut í smásölu- risanum. „Mér finnst þessi sala í raun og veru rökrétt í ljósi þess að þeir voru ósáttir. Brim er á markaði til að fólk geti keypt og selt hlutabréfin að vild og það er ekki annað hægt en að virða þá ákvörðun hluthafa um að selja sig út,“ segir Kristján Davíðs- son, stjórnarformaður Brims, í sam- tali við Markaðinn. Kristján kom inn í stjórn Brims í vor en hann var forstjóri og aðstoðarforstjóri fyrir- tækisins á árunum 2003-2005. „Í leiðinni verð ég að fagna því að fá sterkan aðila úr sjávarútveg- inum sem hefur mikla reynslu, þekkingu og skilning á því hvernig maður rekur sjávarútvegsfyrirtæki í útflutningi.“ Sala Gildis kemur í kjölfar þess að kaup Brims á sölufélögum í Japan, Hong Kong og Kína voru samþykkt á hluthafafundi félags- ins síðustu viku. Seljandinn er ÚR sem er í eigu Guðmundar Kristjáns- sonar, stærsta hluthafa Brims. Gildi greiddi atkvæði gegn tillögunni og hafði gagnrýnt hana í aðdraganda fundarins. Kristján leiðir líkur að því að ein af ástæðunum að baki því að FISK Seafood kom inn í hlut- hafahóp Brims séu tækifærin sem felast í öflugu markaðsstarfi í Asíu. „Það má gera sér í hugarlund að þeir sjái það sem styrkleika að Brim, til viðbótar við að vera sjávarút- vegsfyrirtæki sem þeir þekkja og skilja, er eftir kaupin í mjög sterkri stöðu á mjög mikilvægum mörk- uðum fyrir sjávarfang sem verða enn mikilvægari í framtíðinni,“ segir Kristján. „Það er augljóst mál að Asíu- markaðir eru ekki bara stærstu sjávarfangsmarkaðir í heimi heldur felast þar einnig gífurleg tækifæri í framtíðinni og ekki síst vegna þess að Ísland er með fríverslunarsamn- ing við Kína. Þetta eru fjölmennir markaðir og lífskjaravöxturinn hefur lyft hundruðum milljóna úr fátækt á skömmum tíma.“ Spurður um hvort hvarf Gildis og innkoma FISK Seafood auðveldi mótun framtíðarstefnu segir Krist- ján að vænta megi þess að meiri ein- hugur verði í hluthafahópnum. „Það má vænta þess þegar hlut- hafi, sem er sá eini sem hefur, að mér virðist, verið ósáttur við þessa stefnu er farinn út og inn er kominn annar, sem kaupir sig inn í fyrir- tækið og kaupir stefnu þess með, þá verði meiri einhugur í hluthafa- hópnum,“ segir Kristján. FISK Seafood er þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með tæplega 5,3 prósenta aflahlutdeild á meðan hlutdeild Brims, sem er með mestu aflahlutdeild allra íslenskra útgerða, mældist 9,76 prósent í mars síðastliðnum. Meiri einhugur um framtíðarstefnuna Stjórnarformaður Brims segir að eftir sölu Gildis á stórum hlut í fyrirtækinu megi vænta þess að meiri einhugur verði í hluthafa- hópnum. FISK Seafood sjái tækifæri í aukinni sölustarfsemi í Asíu eins og Brim. Gildi heldur áfram að beita sér með virkum hætti. FISK Seafood er orðinn einn stærsti hluthafinn í HB Granda eftir kaupin í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Lögmannsstofurnar BBA Legal og Fjeldsted & Blöndal sameinast  Baldvin Björn Haraldsson og Halldór Karl Halldórsson. sem er jafnframt framkvæmdastjóri stofunnar, Haf liði K. Lárusson og Þórir Júlíusson. Rekstrartekjur stof- unnar voru samtals 369 milljónir í fyrra og héldust nánast óbreyttar á milli ára. Stöðugildi hjá Fjeldsted & Blöndal voru að meðaltali ellefu talsins á liðnu ári. Hagnaður lögmannsstofunnar, sem gengur iðulega undir nafninu Fjeldco, nam rúmlega 114 milljón- um króna á árinu 2018 og minnkaði um fimm milljónir á milli ára. Nam hagnaður á hvern eiganda vegna afkomu síðasta árs því um 38 millj- ónum króna. – hae Glitnir lætur til sín taka Salan á eignarhlutnum í Brimi er alls ekki eina dæmið um það að lífeyrissjóðurinn Gildi beiti sér til að framfylgja hluthafa- stefnu sinni. Í ársbyrjun 2015 var tekin sú stefnumarkandi ákvörðun á vettvangi sjóðsins að beita sér með beinum hætti á hluthafafundum fé- laga sem Gildi ætti verulegan eignarhlut í með tillögugerð. Sú stefna hefur beinst að sjónarmiðum er lúta að jafn- ræði hluthafa, minnihluta- vernd, starfskjarastefnum og nú síðast þeim tilnefningar- nefndum sem víða hefur verið komið á fót. Vorið 2017, þegar mikil átök stóðu yfir í VÍS á milli hóps einkafjárfesta og sumra lífeyr- issjóða, seldi sjóðurinn stóran hluta bréfa sinna í trygginga- félaginu – eignarhluturinn minnkaði úr 7,1 prósenti í 2,7 prósent á skömmum tíma – og sagði Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, að sjóðnum hugnaðist ekki stjórnarhættir félagsins. Gildi ákvað í byrjun þessa árs að ganga ekki inn í kaup Kólfs á á hlut framtakssjóðsins Horns II í Hvatningu sem fer með tæplega 40 prósenta hlut í Bláa lóninu. Gildi, sem hélt á ríflega 18 prósenta hlut í Horni II, ákvað þá að selja sig út úr fé- laginu, einn lífeyrissjóða í hlut- hafahópnum, og var ástæðan meðal annars sögð tengjast „verulegum annmörkum á skjalagerð sem tengist fjár- festingunni“, eins og það var orðað í frétt ViðskiptaMogg- ans um málið. Þá hefur Gildi einnig beitt sér til að hafa áhrif á starfs- kjarastefnu stjórnenda fyrir- tækja á borð við N1 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.