Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 20
KYNNINGARBLAÐ
TT er búið að
ganga alveg sleitu-
laust, það hefur aldrei
dottið úr námskeið í yfir
tuttugu ár.
Sultugerð er skemmtileg
og nú er rétti tíminn til
að tína rifsber, bláber
og önnur ber. Rifsberja-
hlaup er í uppáhaldi hjá
flestum og best er það
heimagerða.
➛6
Framhald á síðu 2 ➛
Heimili
M
IÐ
V
IK
U
D
A
G
U
R
2
1.
Á
G
Ú
ST
2
01
9
Þær Unnur, Brynna og Sandra munu leiða Toppform, nýtt námskeið, í vetur.
Fjölbreytt og faglegt
fram í fingurgóma
Frá því að JSB líkamsrækt hóf starfsemi sína fyrir rúmum 50 árum hafa
þúsundir kvenna leitað þangað til þess að bæta eða jafnvel endurheimta
heilsuna. Bára Magnúsdóttir, stofnandi og eigandi fyrirtækisins, segir að
í vetur verði boðið upp á ríkulegt úrval nýrri og eldri tíma og óhætt er að
fullyrða að nánast hver einasta kona geti fundið eitthvað við sitt hæfi hjá JSB.
Bára segir að nóg sé um að vera á næstunni. „Við vorum að opna eftir sumarfrí og það er
verið að gera klárt í bátana,“ segir
Bára full eftirvæntingar. „Það eru
yfir sjötíu tímar í töflunni,“ segir
hún. „Vinsælasta námskeiðið
okkar er TT en það stendur fyrir
„Frá toppi til táar“ og er fyrir konur
sem eru að laga sig til og taka af sér
aukakíló,“ segir Bára. „Við höfum
verið ansi farsæl í því starfi,“ segir
Bára. Hún segir námskeiðið hafa
nú rúllað látlaust í rúm 20 ár. „TT
er búið að ganga alveg sleitulaust,
það hefur aldrei dottið úr nám-
skeið í yfir tuttugu ár,“ segir hún.
Það hljóti að vera einsdæmi. „Það
hlýtur að vera heimsmet, og það
heitir alltaf það sama,“ segir Bára
hlæjandi. „Þannig að ef þú ert búin
að eiga þriðja barnið þá veistu
hvert þú átt að koma,“ segir hún.
„Þetta er vinsælasta námskeiðið
hjá okkur, fyrr og síðar,“ segir Bára
stolt.
Hvatningarkerfið árangurs-
ríkt
Þátttakendur í TT fá góða leið-
sögn og utanumhald. Þar má
nefna reglulega vigtun, sex vikna
matarlista með fjölbreyttum og
fjölskylduvænum uppskriftum,
vikulegan fræðandi og uppörv-
andi tölvupóst ásamt hvatningar-
fundum eftir þörfum. Bára segir
að námskeiðin séu í stöðugri
þróun og nefnir hún hið tiltölulega
nýja hvatningarkerfi sem skilað
hefur góðum árangri. „Ef þú nærð
ákveðnum TT markmiðum þá
færðu 5% afslátt af næsta nám-
skeiði plús ef þú mætir í ákveðið
marga tíma þá færðu 5%, ef þú
nærð tvöföldu markmiði þá færðu
5%, þannig að þú getur sjálf unnið
þér inn 15% afslátt af næsta nám-
skeiði,“ segir Bára.
Hún segir kerfið hafa slegið í
gegn og árangurinn ekki látið á sér
standa. „Þetta hefur verið geysi-
vinsælt og þá ná þær betri árangri
HVER
VANN?
Sportið á frettabladid.is
færir þér allar nýjustu
fréttirnar úr heimi
íþróttanna.