Fréttablaðið - 21.08.2019, Page 26
Flestir viðskiptavinir okkar eiga það sameiginlegt að vilja áætla oftar, minnka
handavinnuna við áætlanagerð
og nálgast gögnin á þægilegri hátt.
Oft koma margir aðilar að ferlinu
og getur það tekið langan tíma en
með öflugum kerfum er hægt að
stytta ferlið til muna,“ segir Jóhann
Örn B. Benediktsson, ráðgjafi hjá
Cubus.
Fjöldi erlendra sérfræðinga
leggur leið sína til landsins
Cubus hefur haustið með krafti
og hyggst halda fjölda morgun-
verðarfunda á Grand hótel, í
samvinnu við innlenda og erlenda
fyrirlesara. „Við eigum von á sér-
fræðingum frá okkar stærstu sam-
starfsaðilum, m.a. frá Jet Global,
Talend og Prophix. Kynningarnar
gagnast öllum þeim sem hafa
áhuga á að halda betur utan um
áætlanagerðir en skráning er hafin
á vefsíðu Cubus.“
Áætlunarkerfi frá Jet Global
Margir þekkja kerfin frá Jet Global
og má þá helst nefna Jet Reports
sem er í notkun hjá um 15 þúsund
fyrirtækjum í 94 löndum. Jet
Global býður upp á fjölbreytt kerfi
fyrir áætlanagerðir og greiningar.
Nýlega settu þeir á laggirnar for-
ritið Jet Budget sem náði f ljótt
miklum vinsældum.
Algengt er að nota viðskipta-
hugbúnað frá Microsoft til þess
að halda utan um gögn, tekjur og
kostnað hjá fyrirtækjum og má þá
helst nefna Dynamics NAV og AX.
Öll kerfi frá Jet Global virka beint
ofan á hugbúnaðinn og er auðvelt
að draga fram gögn úr gagna-
grunninum.
Yfirsýn yfir áætlanaferlið
á einni vefsíðu
Með Jet Budget hefur áætlanagerð
verið auðvelduð og yfirsýn yfir allt
ferlið sett fram á einni vefsíðu. Þar
geta stjórnendur fylgst náið með
framgangi allrar starfseminnar og
deilt út verkefnum til starfsmanna.
„Ekki er þörf á því að vera með
mörg virk Excel skjöl um stöðu
og áætlanir þar sem allar áætl-
anir eru unnar miðlægt í gegnum
kerfið. Þar með minnkar þú líkur
á misræmi, töfum og mannlegum
mistökum við áætlanagerðina,“
segir Jóhann. Hann bætir við að
þegar búið sé að móta áætlunina
að þörfum fyrirtækisins taki
það stuttan tíma að búa til nýja,
byggða á öðrum forsendum. Því
er hægt að enduráætla mörgum
sinnum yfir árið með nýjum tölum
og upplýsingum þegar þær koma
fram.
„Eftir að áætlunin hefur verið
gerð í Jet Budget er hægt, með
einum smelli, að hlaða henni inn
í viðskiptakerfið til þess að geta
borið saman við rauntölur. Þannig
næst betri yfirsýn yfir reksturinn
og stjórnendur geta brugðist
hraðar við, ef eitthvað er ekki eins
og það á að vera,“ segir Jóhann.
Einfalt í notkun
Jet Budget og Jet Reports eru sam-
þætt kerfi og gefst því kostur á að
halda utan um bæði skýrslugerð
og fjárhagsáætlanir á einfaldan
hátt.
Með Jet Reports fylgir borði í
Excel þar sem hægt er að draga
fram skýrslur og gögn beint úr
þínum viðskiptakerfum. Þess
vegna geta þau viðskipta- og
fjárhagsmódel sem hafa nú þegar
verið smíðuð hjá fyrirtækinu verið
nýtt áfram, en nýjustu tölur og
upplýsingar uppfærast sjálfvirkt
með tengingu við gagnagrunninn.
Hægt er að setja inn formúlur og
tengja saman líkön. Það er því
algjörlega undir stjórnendunum
komið hversu ítarleg áætlana-
gerðin verður og hversu margar
breytur eru settar inn í áætlunina.
Hjá Cubus starfa sérfræðingar í
viðskiptagreind og áætlanagerð
með mikla reynslu og þekkingu úr
hugbúnaðargeiranum. Allar nánari
upplýsingar má finna á cubus.is
eða hjá starfsmönnum okkar.
Viðskiptagreind og áætlanir
Cubus aðstoðar fyrirtæki við að ná tökum á rekstrargögnunum og hámarka sjálfvirkni
gagna. Með því að nýta sér áætlanakerfi er hægt að vinna upplýsingar á skilvirkari hátt.
Jóhann Örn B. Benediktsson, ráðgjafi hjá Cubus, segir að áætlanagerð fyrir-
tækja þurfi ekki að vera handavinna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NÁÐU TÖKUM Á REKSTRARGÖGNUNUM
Með lausnum frá Cubus færðu þá yfirsýn sem
nauðsynleg er til að taka upplýstar ákvarðanir
cubus cubus
Skráning er hafin á næstu viðburði : cubus.is/vidburdaskra
=+
KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA