Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 30
Fólki er mikilvægt að fá að mæta til vinnu, eiga vinnufélaga og vera virkt í samfélag- inu. Sigurður Viktor Úlfarsson Hjá Múlalundi tökum við að okkur mjög fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir víðs vegar um samfélagið til lengri eða skemmri tíma. Öll þessi verkefni skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku auk þess að skila hágæðaverki til viðskipta- vina. Mörg fyrirtæki ná með við- skiptum sínum við Múlalund að flétta saman daglega starfsemi og samfélagsverkefni sem er frábær blanda. Þetta eru ýmist sérfram- leiðsluverkefni eða fjölbreytt verk sem þarf að vinna í höndunum. Verkefni til lengri tíma eru sér- staklega mikilvæg,“ segir Sigurður Viktor Úlfarsson, framkvæmda- stjóri Múlalundar vinnustofu SÍBS. Þar vinna dugmiklir einstaklingar sem hafa þurft að takast á við fötlun og veikindi, bæði andleg og líkamleg, í kjölfar slyss eða heilsu- brests. Vörur sérframleiddar fyrir viðskiptavini Múlalundur sérframleiðir vörur sem hannaðar eru sérstaklega fyrir tiltekna viðskiptavini með þeirra útliti, áletrunum eða hönnun. Dæmi um þetta eru sérhæfðir plastvasar, möppur eða fundabæk- ur með áletrun viðskiptavinar. Stór hluti landa korta á Íslandi er seldur í plastvasa frá Múlalundi til að auka endingu, Andrésar Andarmöppurnar eru þekktar og matseðlar og hótelmöppur Múla- lundar eru notuð víða um land. Alúð í hverju handtaki „Auk sérframleiðslunnar tökum við að okkur ýmiss konar handa- vinnuverkefni. Mörg fyrirtæki kjósa að nýta sitt starfsfólk í annað og fá okkur í handavinnuna. Ef þú þarft að raða, klippa, pakka, líma eða hvað sem er þá erum við til í tuskið. Innflutningsfyrir- tæki eins og Stilling fá okkur til að líma íslenskar leiðbeiningar og strikamerki á vörur, við brjótum öskjur fyrir Valitor sem fylgja með greiðslukortum í bönkum og pökkum servíettum fyrir Reykja- vik Letterpress og brjótum til dæmis öskjur, vigtum og göngum frá holla HAp+ brjóstsykr- inum fyrir IceMedico. Við höfum pakkað fatnaði og merkt fyrir fatahönnuð, gerum ýmiss konar markpósta fyrir fyrirtæki þegar nauðsynlegt er að gera eitthvað alveg sérstakt sem þarfnast alúðar og mannskaps, og margt f leira. Tvisvar í viku pökkum við fyrir Ávaxtabílinn og sjáum algjörlega um þann þátt í þeirra starfsemi. Þá tökum við að okkur að plasta Daglegt starf fléttað saman við samfélagsleg verkefni Einar Einarsson, lagerstjóri hjá Stillingu, segir að samstarfið við Múlalund hafi gengið eins og í sögu. Hildur Sigurðar­ dóttir, annar stofnenda Reykjavík Lett­ erpress, segist hiklaust mæla með samstarfi við Múlalund. Múlalundur hefur átt í sam-starfi við Stillingu, eitt elsta varahlutafyrirtæki á Íslandi, um árabil. Einar Einarsson, lagerstjóri hjá Stillingu, segir sam- starfið hafa gengið vel og að mikil ánægja sé með vinnuna sem starfs- fólk Múlalundar inni af hendi. „Múlalundur sér um að merkja efnavörur fyrir Stillingu með var- úðarmerkingum og leiðbeiningum á íslensku,“ segir Einar. Hann segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á að leiðbeiningarnar séu bæði ítarlegar og á íslensku. „Við leggjum mikla áherslu á að allar leiðbeiningar fylgi og þá sérstaklega á íslensku,“ segir Einar. Hann segir Stillingu njóta ákveðinnar sérstöðu á markaðinum hvað þetta varðar. „Þessu er mjög víða ábótavant hjá okkar sam- keppnisaðilum og því leggjum við okkur öll fram við að gera þetta faglega fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Einar. Hann segir að Stilling sendi vörur beint til Múlalundar þar sem starfsfólk tekur við þeim og vinnur þær bæði hratt og örugglega. „Við sendum vörurnar beint til Múla- lundar og fáum þær fljótt til baka merktar með íslenskum varúðar- merkingum,“ segir Einar. Hann segir þau hafa heyrt af þjónustu Múlalundar fyrir mörgum árum. „Við fréttum af þessari þjónustu fyrir mörgum árum, svona verkefni hjá okkur koma upp með litlum fyrirvara og í törnum og því vantaði okkur hjálp við að merkja þessar vörur,“ segir hann. Einar segir samstarfið við Múla- lund hafa gengið glimrandi vel. „Samstarfið hefur gengið alveg frábærlega,“ segir hann. Þar sé hægt sé að treysta á fagleg og örugg vinnubrögð. „Starfsmenn Múla- lundar koma verkefnunum fljótt og vel frá sér og samskiptin við þá eru góð og skýr,“ segir Einar. Einar segist tvímælalaust mæla með því að fyrir- tæki nýti sér þjónustu Múlalundar. Múlalundur hefur átt í sam-starfi við hönnunar- og prentstofuna Reykjavík Letterpress í að minnsta kosti fjögur ár og segir Hildur Sigurðar- dóttir, grafískur hönnuður og annar stofnandi fyrirtækisins, að sú reynsla hafi verið vonum framar. „Við erum bara afskap- lega ánægðar með það samstarf,“ segir Hildur. Hún segir vönduð vinnubrögð einkenna starfsemi Múlalundar. „Múlalundur hefur tekið við alls konar pökkunarverkefnum fyrir okkur og öðrum frágangi á prent- verkefnum, aðallega pökkum,“ segir Hildur. Hildur segir starfs- fólk Múlalundar bæði hraðvirkt og vandvirkt. „Þau bregðast hratt við og skila góðu verki,“ segir hún. Hildur segir að verkefnin hjá Reykjavík Letterpress séu oft umfangsmikil og að Múlalundur hafi getað brugðist við og sinnt þeim verkefnum af mikilli fag- mennsku. „Þetta er dálítið magn sem við þurfum að senda frá okkur og þeir voru bara best í stakk búnir til þess að gera það fyrir okkur,“ segir Hildur. „Það hefur komið rosa vel út og komið sér vel fyrir okkur að geta leitað til þeirra,“ segir hún. Hildur segir að Múlalundur hafi orðið fyrir valinu, einfaldlega vegna þess að þeim hafi þótt þeir færastir. „Þeir reyndust bara bestir og voru hraðastir,“ segir hún. „Við eigum bara góða reynslu af þeim,“ bætir hún við. Þegar Hildur er spurð að því hvort hún myndi mæla með samstarfi við Múlalund er svarið afdráttarlaust. „Alveg hiklaust,“ segir hún. „Maður mætir engu nema góðu viðmóti þar,“ segir Hildur. Bregðast hratt við og skila góðu verki Farsælt samstarf um árabil Sigurður Viktor Úlfarsson, fram kvæmdastjóri, segir viðskipti við Múlalund einfaldasta samfélags verkefnið. vörur, t.d. bækur eða vörur í til- boðspakkningar, og erum með góðan búnað í það. Margir tengja Múlalund fyrst og fremst við möppur og plastvasa en fjöl- breytni verkefna er miklu meiri,“ segir Sigurður. Einfaldasta samfélags­ verkefnið og gott verð „Hjá Múlalundi fást svo allar almennar skrifstofuvörur, pappír og ritföng á einum stað. Við segjum að þetta sé einfaldasta samfélags- verkefnið, bara að panta og fá vörurnar sendar um allt land daginn eftir,“ segir Sigurður. Hann segir ánægjulegt að byggja upp sjálfstraust og þrótt fólks með þátt- töku á vinnumarkaði. „Fólki er mikilvægt að fá að mæta til vinnu, eiga vinnufélaga og vera virkt í samfélaginu.“ Allar upplýsingar má finna á heimasíðu Múlalundar og úrvalið í vefversluninni kemur svo sannarlega á óvart. „Eru ekki einhver verkefni sem taka óþarfa tíma á vinnustaðnum? Þá er um að gera að láta Múlalund sjá um þau,“ segir Sigurður. Múlalundur vinnustofa, sem hefur í 60 ár skapað störf fyrir fólk með skerta starfsorku, býður einstakling- um og fyrirtækjum allt fyrir skrifstof- una en sinnir auk þess fjölbreyttum sérverkefnum fyrir viðskiptavini. KYNNINGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.