Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 34
Meðal
annars
verður
haldið
námskeið
fyrir
unglings-
stúlkur á
Akureyri.
Dr. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir er stofnandi Forvarna og Streituskólans.
Hann hafði áhuga á að beita mark-
visst forvörnum. Starfsemin hefur
mótast af reynslu á Íslandi en einn-
ig eftir erlendum fyrirmyndum.
Forvarnir eru fyrirtæki sem starfar
að geðheilsueflingu og forvörnum.
Streituskólinn og Streitumóttakan
eru hluti af starfsemi Forvarna.
„Sérfræðingar Forvarna hafa
unnið að nýsköpun aðferða til að
greina og hindra og meðhöndla
kulnun og sjúklega streitu. Þeir
hafa einnig unnið frumkvöðlastarf
í að fræða um, fyrirbyggja og vinna
úr eineltismálum og kynbundnu
of beldi,“ útskýrir Ólafur Þór.
„Streitumóttakan er staður
þar sem starfar fjölfaglegt teymi
sérfræðinga og ráðgjafa og veitir
ráð gegn streitu, greinir kulnun og
veitir markþjálfun og meðferðir
gegn sjúklegri streitu. Streitumót-
takan er starfrækt í Reykjavík og á
Akureyri,“ segir Ólafur þegar hann
er beðinn að segja frá starfseminni
og bætir við að stöðugt sé verið að
bæta við nýjungum. Í vetur verði
til dæmis fræðsla gegn kulnun,
fræðsla um bætt samskipti og
eflingu jafnvægis milli starfs og
einkalífs. Á streitu móttökunni
verður unnið með mikilvægi
hreyfingar og hvíldar, sömuleiðis
hvað fólk getur gert til að ráða
betur við streituna.
„Forvarnagáttin er líka nýjung
en þar getur hver sem er leitað
sér ráða varðandi einelti eða
kynbundna áreitni eða tilkynnt
um slíkt,“ greinir hann frá. „Síðan
erum við með góða samvinnu við
SÍMEY um símenntun og fræðslu
í Streituskólanum auk þess sem
búið er að opna Streitumóttöku
á Læknastofu Akureyrar,“ segir
hann.
„Þeir sem koma á Streitumót-
tökuna leita ráða um varnir gegn
streitu og kulnun, fá ráðgjöf, mark-
þjálfun eða meðferð eftir því sem
við á. Hingað koma þeir sem vilja
verjast streitunni og líka þeir sem
þegar eru komnir í vandræði með
einkenni um kulnun.
Streita er algeng orsök vanlíð-
unar eins og depurðar, kvíða og
svefntruflana. Kulnun í starfi er
algeng ástæða fjarveru frá vinnu
með tilheyrandi fjárhagslegu tapi
og vanlíðan. Fleiri og fleiri virðast
eiga erfitt,“ með að samhæfa starf
og einkalíf,“ útskýrir hann og
bætir við:
„Ekki er vitað nákvæmlega um
þetta en rannsóknir benda til að
yfir helmingur fólks á vinnumark-
aði eigi í erfiðleikum með álag og
streitu. Rannsóknir benda einnig
til að tíðni kulnunar og sjúklegrar
streitu fari vaxandi. Helstu ein-
kenni kulnunar eru depurð, kvíði,
svefntruflanir og skapbreytingar.
Ef þetta fer á alvarlegra stig getur
myndast sjúkleg streita og þá
bætast við einkenni um lélegt
minni, lakari einbeitingu og mikla
þreytu.
Streituskólinn býður upp á:
1. Fræðslu um eðli streitu
2. Endurtekna fræðslu sem hluta
af fræðsluáætlun
3. Fræðsludag
4. Eftirfylgni, þar sem sérfræð-
ingar Forvarna fylgjast með
starfsmönnum fyrirtækisins
Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.stress.is
Tíðni kulnunar og sjúklegrar
streitu hefur aukist mikið
Fylgst með af athygli í Streituskólanum. Þar fara fram ýmiss konar námskeið sem tengjast streitu og álagi.
Ólafur Þór Ævarsson er stofnandi
Forvarna og Streituskólans.
Helga Hrönn Óladóttir, umdæmisstjóri Streitu-skólans og Streitumóttöku-
nnar á Norðurlandi, segir mikla
þörf fyrir fræðslu og ráðgjöf vegna
streitu og kulnunar á Norður-
landi sem annars staðar á landinu.
„Rannsóknir sýna að kennarar,
heilbrigðisstarfsfólk, lögreglan
og fleiri starfsstéttir eru undir
meira álagi en aðrar og því höfum
við reynt að einblína á þann hóp
en auðvitað reynum við að sinna
öllum og allir eru velkomnir.
Viðtökurnar hafa verið virkilega
góðar. Við erum með aðstöðu á
Læknastofum Akureyrar fyrir ein-
staklingsráðgjöf og þar er öllum
heimilt að panta sér tíma beint án
tilvísunar,“ upplýsir Helga. „Heim-
ilislæknar hafa verið duglegir að
vísa fólki til okkar og ég hef átt
mjög gott samstarf við þá. Það er
augljóslega þörf á þessu starfi,“
segir Helga enn fremur.
Hún segir að skólinn byggi á
fræðslu til forvarna. „Segja má
að fræðslan sé einhvers konar
Unnið með streitu og kulnun
Streituskólinn á Akureyri tók formlega til starfa í apríl. Streituskólinn og SÍMEY standa fyrir
Forvarnardegi í Hofi á Akureyri þann 17. október þar sem fjallað verður um streitu og kulnun.
Helga Hrönn
Óladóttir.
Streituskólinn
hefur starfað í
Reykjavík í tæp 20
ár og er eitt fyrsta
fyrirtækið á Ís-
landi til að hljóta
viðurkenningu
Vinnueftirlits rík-
isins til að starfa
að sálfélagslegri
vinnuvernd.
bólusetning gegn streitunni. Við
viljum draga úr þeirri nálgun að
kulnun sé einungis tengd starfi
vegna þess að lífið er samspil af
vinnu og einkalífi og því má ekki
gleyma hinum hlutanum, það
er að segja, hvað fólk gerir utan
vinnu. Allur gangur er á því hvaða
aldur sækir Streituskólann. Við
verðum til dæmis með námskeið
fyrir unglingsstelpur sem er
nýjung. Flestir sem koma eru 20
ára eða eldri. Mig langar að sinna
unglingunum betur. Konurnar
koma til okkar jafnt og karlar enda
geta allir fundið fyrir streitu og
kulnun.“
Helga segir að Streituskólinn
hafi farið í fyrirtæki og stofnanir
með ýmsa fræðslu. Boðið er upp
á skimanir fyrir streitu, kvíða,
þunglyndi, einelti og kynbundinni
áreitni svo eitthvað sé nefnt.
„Í vor gerðum við samning við
SÍMEY þar sem við höldum einnig
námskeið í tímastjórnun og
fræðslu um streitu. Þar getur hver
sem er skráð sig en við höldum
einnig námskeið þar sérstaklega
fyrir stjórnendur. Þá verðum við
með námskeið hjá Þekkingarneti
Þingeyinga í haust,“ segir hún.
Í haust fer af stað gönguhópur
sem kallast „Gengið gegn
streitu“ og er hugsaður sem
stuðningshópur fyrir fólk
á öllum aldri. „Við fórum í
kynningargöngu í vor og mætingin
var framar vonum og nú er
skráningin farin á fullt. Nú, svo
eru það aðstandendur, hópur
sem oft vill gleymast. Hafdís Sif
hjúkrunarfræðingur hefur tekið
þann hóp að sér. Hún býður bæði
upp á einstaklings ráðgjöf og litla
stuðningshópa.“
Þeim sem vilja kynna sér starfið
frekar er bent á að hafa samband
við helga@stress.is og panta tíma
á Læknastofum Akureyrar í ein-
KYNNINGARBLAÐ 11 M I ÐV I KU DAG U R 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA