Fréttablaðið - 21.08.2019, Page 37
Rifsberjahlaup er einstaklega gott, til dæmis með ostum, á ristað brauð eða með villi-
bráð, önd eða reyktu kjöti. Það er
einfaldara en margur heldur að
búa til rifsberjahlaupið, bara gefa
sér smá tíma. Einnig er nokkuð
misjafnt hvernig fólk gerir það,
sumir vilja nota hleypi á meðan
aðrir segja að þess þurfi ekki.
Sumir sjóða berin með stönglum
og smá vatni í hálftíma, sía soðið
með klút og sjóða það síðan með
sykri. Aðrir setja allt í einn pott og
sía síðan. Áður fyrr var meiri sykur
settur með rifsinu heldur en nú er
gert. Í þessari uppskrift er 700 g
sykur á móti einu og hálfu kílói af
berjum.
Hér er dönsk uppskrift
af rifsberjahlaupi
1½ kg rifsber með stönglum,
hreinsið
3 dl vatn
700 g sykur
Þetta er lítil uppskrift sem passar í
um það bil tvær krukkur.
Látið vatn og rifs í pott og látið
malla í 30 mínútur. Sigtið saftina
frá í gengum hreinan bómullar-
klút. Pressið klútinn í lokin til að
ná sem mestum safa frá berj-
unnum. Setjið hreinu saftina í pott
ásamt sykrinum. Látið suðuna
koma upp og látið smámalla í
30-40 mínútur eða þar til þetta
verður að hlaupi.
Ef hlaupið stífnar ekki látið þá
suðuna koma aftur upp.
Skolið krukkur með sjóðandi
vatni. Sumir setja örlítið koníak í
krukkurnar og veltið því í þeim til
að sótthreinsa enn betur.
Setjið hlaupið í krukkurnar og
lokið strax. Látið kólna á borði
áður en þær eru settar í kæliskáp.
Bláberjahlaup
Þeir sem eru svo heppnir að komast
í gott bláberjalyng ættu endilega að
búa til bláberjahlaup. Í góðu veðri
er ótrúlega skemmtilegt að tína ber
og um að gera að láta börnin hjálpa
til við tínsluna. Svo er hægt að baka
pönnukökur og borða þær með
ljúffengri bláberjasultu.
½ kg bláber
1 dl vatn
4 dl sykur
¼ poki hleypir
Hreinsið berin og setjið í pott
ásamt vatninu. Látið suðuna koma
upp og sjóðið í 6-7 mínútur. Þá er
ágætt að nota kartöflustöppu og
músa berin svo safinn komi allur
úr. Nú má velja hvort maður síar
berin í gegnum bómullarklút eða
heldur þeim og úr verður sulta. Ef
þetta á að vera sulta er sykurinn
settur saman við án þess að sía. Ef
berin eru síuð þarf að vigta safann
og sjá hversu mikinn sykur þarf
að nota og hleypi. Sjóðið aftur upp
og látið malla þar til þetta fer að
þykkna í 5-15 mínútur. Fer eftir
hversu þroskuð berin eru.
Jarðarberjasulta
Veljið góð jarðarber þegar sulta er
gerð. Best að þau séu vistvæn.
1 kg jarðarber
750 g sykur
1 sítróna
Hitið ofninn í 200°C. Setjið
sykurinn í eldfast mót og bakið
hann í 20 mínútur. Skolið berin
og skerið niður. Setjið berin í pott
og hitið upp. Hrærið. Þegar berin
eru orðin saftleg er sykrinum bætt
saman við og allt látið malla í
nokkrar mínútur.
Þegar sultan er farin að búbla
er hún tekin af hitanum og smá
sítrónusafi kreistur yfir.
Sjóðið krukkur og setjið
sultuna strax í og lokið. Kælið á
borði áður en sett er í ísskáp.
Það er gott að nota jarðarberja-
sultu út á gríska jógúrt, á pönnu-
kökur eða ristað brauð.
Nú er tími til að sulta úr berjum
Svo virðist sem rifsberin séu mjög gróskumikil og fín, að minnsta kosti hér sunnanlands. Það
er ekki seinna vænna að útbúa ljúffengt hlaup úr berjunum áður en þau verða of þroskuð.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Það er hægt að nota nýtínd ber í bakstur eða gera úr þeim hlaup og sultur.
Bláberjahlaup eða -sulta eftir því sem fólk vill. Nú er tími til að tína berin.Það er mjög gaman að prófa sig áfram með rifsberjahlaup.
Jarðarberjasulta er mjög góð út á
jógúrt en líka með pönnukökum.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is
HEILSURÆKT
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
u heilsurækt kemur út 24. ágúst nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R