Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 42
Sagt er að gögnin séu olían í dag og fleiri og fleiri fyrirtæki sjá hag í að nýta gögn til að ná fram skilvirkni og til þess að geta boðið upp á betri þjónustu. Sterkt og gott samband Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Eitt símtal og málið er leyst Vodafone sinnir tæknilegum þörfum okkar hratt og örugglega Nám: Viðskiptafræðingur frá Hí, út- skrifaðist með B.Sc. 2002 og síðar Master í Samskiptafræðum frá Há- skólanum í Gautaborg árið 2013. Störf: Forstöðumaður viðskiptastýr- ingar Creditinfo frá 2016, þar á undan viðskiptastjóri Creditinfo frá 2013. Áður en ég fór út í Master 2011-2013 var ég hjá Valitor við hin ýmsu störf í 7 ár 2004-2011, síðast sem viðskiptastjóri á alþjóðasviði (2008-2011). Fjölskylduhagir: Gift Sveini Þórarinssyni, sérfræð- ingi í greiningardeild Landsbanka Íslands. Börn; Jökull Sveinsson 13 ára, Þóranna Sveinsdóttir 10 ára og Franklín Sveinsson 3 ára. Dagný Dögg Frank-línsdóttir er for-stöðumaður við-skiptastýringar hjá Creditinfo og hefur starfað hjá félaginu síðan 2013. Hún segir að gríðarleg tækifæri séu til vaxtar á erlendum mörkuðum. Fleiri fyrirtæki sjái hag í að nýta gögn til þess að ná fram skilvirkni og til þess að geta boðið upp á betri þjónustu. Hver eru þín helstu áhugamál? Mín helstu áhugamál eru úti- vera, ferðalög og samverustundir með fjölskyldu og vinum. Við erum að ferðast mikið með krökkunum og höfum gaman af því að fara t.d. í borgarferðir með þeim. Erum nú að íhuga að fara í hólreiðaferð með krökkunum í næsta fríi. Einnig langar okkur í skíðaferð, er í kort- unum. Hef einnig lúmskt gaman af garðvinnunni og útihlaupum. Skemmtilegasta hlaup ársins er í uppsiglingu og að sjálfsögðu tek ég þátt. Hef hlaupið nokkrum sinnum hálft maraþon og einu sinni heilt, sem ég mun áreiðanlega endurtaka. Síðan hef ég líka áhuga á listmálun og ljósmyndun. Hvernig er morgunrútínan þín? Ég fer oftast síðust fram úr eða um 7.30, er ekki morgunmanneskja. Maðurinn minn er meiri A-týpa og fer fyrr á fætur. Ég græja mig og tek oft göngutúr í leikskólann með þeim yngsta sem er þriggja ára sem mér finnst mikil gæðastund. Stund- um næ ég svo virkilega góðum 15-20 mínútum heima eftir að allir aðrir eru farnir. Tek þá einn kaffibolla, skoða dagatalið og svara tölvupóst- um. Borða aldrei morgunmat, bara vatn með myntu fyrir kaffibollann. Hvaða bók ertu að lesa eða last síðast? Er að lesa Michele Obama, „Becoming“, byrjaði á henni í sumar fríinu og mæli með henni. Annars gefst ekki mikill tími til lesturs, er að uppgvötva hlaðvarpið núna og er mikið í því að hlusta á hitt og þetta, og oftast á meðan ég dúlla mér í garðinum, þvæ þvott eða skokka 5 km. Síðast hlustaði ég á hlauparann Arnar Péturs í hlað- varpi Snorra Björns. Ef þú þyrftir velja allt annan starfsframa, hver yrði hann? Mér finnst svakalega gaman að skapa og búa til, ég er því viss um að ég hefði getað unað mér við að vera listmálari, húsgagnasmiður, ljós- myndari eða eitthvað slíkt. Gerði mikið af því að teikna og mála þegar ég var yngri og mun örugglega gera meira af því í framtíðinni. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Ætli ég verði ekki farin að stunda skíðagöngu, utanvegahlaup og list- málun. Svo verður vonandi mikið um ferðalög og góðar stundir með fjölskyldu og vinum. Börnin verða orðin svo stór þannig að við verðum með nægan tíma til að uppgötva ný áhugamál, vonandi verður heilsan góð og allir hressir. Þá verður bara gaman. Hvað vinnu snertir býst ég við að vera í krefjandi starfi með skemmtilegu fólki. Mun ávallt sækjast eftir því. Hver eru helstu verkefnin þessa dagana? Stefnumótun, áætlanagerð, Fram- úr skarandi fyrirtæki, þetta eru stóru verkefnin á haustin. Alltaf nóg að gera á þessum tíma. Viðskipta- vinir okkar eru líka í þeim fasa að vilja bæta ákvarðanatöku og sjálf- virkni í sínum ferlum og því nóg að gera í því. Mér finnast haustin mjög skemmtilegur tími. Hverjar eru helstu áskoranirnar í starfinu? Þar sem mann langar að gera allt og verkefnin eru fjölmörg þá er það að forgangsraða helsta áskorunin. Einnig auðvitað að allir í teyminu séu ávallt peppaðir og hafi verkefni við hæfi. Hvaða tækifæri eru fram undan hjá Creditinfo? Það er mikið af tækifærum til frekari vöruþróunar, og þá vöru- þróunar í nánu samstarfi við við- skiptavini okkar. Sagt er að gögnin séu olían í dag og f leiri og f leiri fyrirtæki sjái hag í að nýta gögn til þess að ná fram skilvirkni og til þess að geta boðið upp á betri þjónustu. Dæmi um þetta er t.d. það að nú geta einstaklingar fram- kvæmt greiðslumat á mjög stuttum tíma, eitthvað sem tók áður nokkrar vikur. Svo er gríðarlega mikið af tækifærum til vaxtar erlendis, sem er gaman að fá að taka þátt í. Hefur lúmskt gaman af garðvinnunni Svipmynd Dagný Dögg Franklínsdóttir Dagný Dögg sér mikil tækifæri í frekari vöruþróun hjá Creditinfo. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 9M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.