Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 47
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Maðurinn minn og vinur, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Jónsson
lést að heimili sínu Mýrarvegi 113
laugardaginn 17. ágúst.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 23. ágúst kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Akureyrar eða heimahlynningu.
Júlía Sjöfn Sigurjónsdóttir
Guðrún Dóra Sigurðardóttir Peter E. Nielsen
Sigrún Ásdís Sigurðardóttir Óskar Bragason
Sigurjón Einarsson Guðlaug Þóra Reynisdóttir
Jóhann Ingi Einarsson Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Herdís Tryggvadóttir
lést fimmtudaginn 15. ágúst. Útför
hennar fer fram frá Hallgrímskirkju,
föstudaginn 23. ágúst, klukkan 15.
Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir
Þorsteinn Þorgeirsson Ásta Karen Rafnsdóttir
Sigríður Þorgeirsdóttir Magnús Diðrik Baldursson
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson María Heimisdóttir
Barnabörnin: Elísabet, Herdís, Sóla, Tryggvi, María
Elísabet, Ásgeir Þór, Gunnar Þorgeir, Herdís Athena,
Hörður Tryggvi, Gísli og langömmubörnin: Hekla Lúísa,
Tryggvi Veturliði og Ísold Aurelia.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Nanna L. Pétursdóttir
lést þriðjudaginn 6. ágúst
á hjúkrunarheimilinu Grund.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Bestu þakkir fyrir góða
umönnun til starfsfólks á deild A3
á hjúkrunarheimilinu Grund.
Ásta Margrét Kristinsdóttir Bryngeir Sigfússon
Á. Svava Magnúsdóttir Ingvar Ágústsson
Berglind Magnúsdóttir Ægir Ó. Hallgrímsson
barnabörn og langömmubörn.
Eiginkona mín,
Helga Alice Vilhjálmsson
lést fimmtudaginn 15. ágúst á
Landspítalanum í Fossvogi.
Magnús Magnússon
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Herdís Bjarney
Steindórsdóttir
Gullengi 23,
Reykjavík,
er látin.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 26. ágúst kl. 15.
Snæbjörn Þór Ingvarsson
Marteinn Þór Snæbjörnsson Wally Bluhm
Lilja Dís Snæbjörnsdóttir Teddy Sidelmann Rasmussen
Guðbjartur Mar Snæbjörnsson
Ingvar Skúli Snæbjörnsson
Snæbjörn Kári Marteinsson
Emma Olivia Bluhm
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jóhanna María
Gunnarsdóttir
Lindasíðu 27, Akureyri,
lést á heimili sínu þann 9. ágúst
síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 13.30.
Kristján Sævar Þorkelsson
Sólveig Kristjánsdóttir Gauti Valur Hauksson
Gunnar Óli Kristjánsson Nína Jensen
Þorsteinn Sævar Kristjánsson
Kristján, Tómas, Jóhanna, Vésteinn og Hrafnkell
Okkar innilegustu þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns, föður,
sonar, tengdasonar, tengdaföður og
bróður okkar,
Jóhanns Sigurðssonar
Seljuskógum 14,
Akranesi.
Sigurrós Ingimarsdóttir
Þórhildur Orradóttir
Einar Gestur Jónasson
Guðný Sigurrós Jóhannsdóttir
Sigurður Kai Jóhannsson
og fjölskyldan Skarði, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Elskulegur eiginmaður,
faðir, fósturfaðir, tengdafaðir,
sonur, bróðir og afi,
Sigvaldi Páll Gunnarsson
frá Ólafsfirði,
lést 8. ágúst á Landspítala Hringbraut.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
föstudaginn 23. ágúst kl. 13.00.
Bjarnheiður Erlendsdóttir
Freydís Björk Sigvaldadóttir Þorbergur Atli Þorsteinsson
Gunnar Þór Sigvaldason Eva María Oddsdóttir
Adam Bjarki Sigvaldason
Eva Björk Ægisdóttir
Gunnar Þór Sigvaldason Bára Finnsdóttir
S. Finnur Gunnarsson
Sigríður Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð, vinarhug og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Önnu Vignis
frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir færir fjölskyldan
starfsfólki Hornbrekku á Ólafsfirði, sem og öðrum þeim
sem komu að hjúkrun hennar og umönnun.
Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir Sveinn Ingi Sveinsson
K. Haraldur Gunnlaugsson Alda María Traustadóttir
Guðný Gunnlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólöf Friðjónsdóttir
Eystri-Leirárgörðum,
Leirársveit,
lést 30. júlí 2019.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Pálmi Þór Hannesson Valgerður Kristjánsdóttir
Magnús Ingi Hannesson
Susanne Kastenholz Karl Ulrich Kastenholz
barnabörn og barnabarnabörn.
Konan sér um afmælis-daginn og ég veit ekk-ert hverju hún ætlar að finna upp á. Við héldum stórar veislur þegar ég varð fimmtugur og sex-
tugur og á öðrum afmælum hafa börn
og barnabörn verið með okkur líka. Nú
vildum við bara vera tvö saman,“ segir
Theódór Júlíusson leikari, oft kallaður
Teddi, sem er sjötugur í dag. Hann er í
26 stiga hita í Berlín með eiginkonunni,
Guðrúnu Stefánsdóttur, sem var miða-
sölustjóri Borgarleikhússins þar til fyrir
skömmu.
Spurður hvort leiðir þeirra hafi legið
fyrst saman í leikhúsinu svarar hann:
„Nei, við erum skólafélagar frá Siglufirði
og vorum 19 ára þegar við giftum okkur.
Þá áttu karlmenn að vera orðnir 21 árs
og konur 18 til að mega ganga í hjóna-
band svo ég þurfti undanþágu.“
Teddi kveðst hafa orðið sviðsvanur
á Siglufirði, enda faðir hans prímus-
mótor í leikfélaginu, en byrjað á að læra
bakaraiðn og það hafi verið á Ísafirði
sem hann byrjaði fyrir alvöru að leika,
er hann starfaði þar í Gamla bakaríinu.
„Svo tók ég við bakaríinu á Siglufirði
og við f luttum þangað aftur og síðar
til Dalvíkur. Þá kynntist ég Leikfélagi
Akureyrar og árið 1978 var mér boðinn
fastur samningur þar. Upp úr því fór ég í
leiklistarnám í London en Guðrún varð
eftir á Akureyri með dæturnar fjórar.
Við bjuggum á Akureyri í ellefu ár. Oft
komu góðir leikstjórar þangað, mig
langar að nefna Bríeti Héðinsdóttur, ég
lék Búa Árland í Atómstöðinni undir
hennar stjórn og það var einn mesti
skóli sem ég hef komist í.“
Af eftirminnilegum hlutverkum
nefnir Teddi Sölva Helgason í Ég er gull
og gersemi, í leikgerð og stjórn Sveins
Einarssonar, segir það alltaf hafa setið
í sér. „Líka hlutverk Tevje mjólkurpósts
sem Stefán Baldursson valdi mig í þegar
hann kom norður að setja upp Fiðlarann
á þakinu. Svo var ég gestaleikari hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1988 og þegar
Borgarleikhúsið var opnað ári síðar var
mér boðinn samningur þar og Guðrún
ráðin í miðasöluna. Það voru tímahvörf
og í hönd fóru skemmtileg þrjátíu ár hjá
Leikfélagi Reykjavíkur.“
Þátttaka í á þriðja tug kvikmynda í
fullri lengd er á ferilskrá Tedda og fyrri
ferðir hans til Berlínar hafa flestar verið
í tengslum við kvikmyndahátíðir en
ein var vorferð með leikhúsfólki. Nú er
hann þar í einkaerindum.
gun@frettabladid.is
Vildum bara vera tvö
Theódór Júlíusson á eftirminnileg hlutverk að baki í íslenskum leikhúsum og kvik-
myndum og í dag fagnar hann því að hafa verið sjötíu ár á leiksviði lífsins.
Teddi bregður sér í mörg hlutverk, hér er hann hann sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT