Fréttablaðið - 21.08.2019, Side 55

Fréttablaðið - 21.08.2019, Side 55
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is SVO ER ÞAÐ AUÐ- VITAÐ ÞVÍLÍKUR INNBLÁSTUR AÐ HAFA FENGIÐ ÞÆR UNNI OG EYJU Í LÍF MITT. Aðeins 11.900 kr. 6 laga heilsukoddi frá Simba. Stærð: 50 x 70 cm. SIMBA HYBRID® heilsukoddi Aðeins 15.900 kr. 6 laga heilsukoddi frá Simba. Stærð: 50 x 70 cm. SIMBA HYBRID® heilsukoddi með Outlast® OUTLAST Háþróað efni sem heldur jöfnum hita. Jacquard bómull í Hybrid koddanum. FÍNN DÚNN Lag af sérstaklega fín gerðum og mjúkum anda dúni sem gefur koddanum náttúrulega öndun. HITASTÝRING 3D hitastýringarefni sem tryggir hámarks öndun og loftflæði gegnum koddann. NANOTUBE TÆKNI Í miðjum koddanum er lag af smágerðum svamprörum . Þú getur stillt hæð og stífleika koddans með því að bæta í eða taka úr þessu lagi. MICROFIBRE Næst er lag af Microtrefjum sem gera þessa hlið koddans bæði mjúka, endingargóða og hentuga fyrir þá sem eiga við ofnæmi að stíða. JACQUARD BÓMULL Silkimjúk hágæða bómull með frábærri öndun 300 gsm. Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði OUTLAST KOMINN AFTUR! HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umöllun um málefni líðandi stundar. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Í k völd spi la r tón l ist a r­maðurinn Eðvarð Egilsson á Vínyl Bistró. Tónleikarnir eru liður í Extreme Chill Festival, sem í ár er með breyttu sniði, og fer fram í Reykjavík 12.­15. september. Því má segja að tónleik­ arnir í kvöld sé nokkurs konar upp­ hitun fyrir tónlistarhátíðina. Byrjaði alveg upp á nýtt „Pan Thorarensen, sem sér um hátíðina, hafði samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á að spila. Ég er búinn að vera að vinna í þessari plötu í tæplega tvö ár, það er alltaf þessi klassíska frestunarárátta. En þegar hann bað mig að spila, ákvað ég að slá bara til og vera með. Í kvöld frumflyt ég því nýtt efni á Vínyl,“ segir Eðvarð. Fyrr á árinu fékk Eðvarð aðstöðu í Hljóðheimum sem hann var ein­ staklega ánægður með. „Það veitti mér mikinn innblástur og ég hef verið að byggja upp stúdíóið síðan, sem ég kalla Stúdíó Sprungu. Það var þá sem ég ákvað að setjast niður og klára plötuna. Ég var búinn að gera heila aðra plötu en hlustaði á hana og var ekki nógu ánægður með hana. Svo ég byrjaði bara upp á nýtt. Það eru nokkur tilbúin lög og alveg 150 uppköst að lögum.“ Tók U-beygju í tónlistinni Þetta verða fyrstu tónleikar Eðvarðs undir eigin nafni, en hann semur einnig tónlist undir nafninu Kír­ uma. Áður samdi hann einnig undir nafninu Eddie House en þá var hann partur af hljómsveitinni Steed Lord. „Ég bjó í Los Angeles í níu ár, þá var þetta frekar ólíkt og við vorum mikið að spila og túra. Það er öðruvísi upplifun. Þegar á leið fór ég að hafa meiri og meiri áhuga á kvikmynda­ og klassískri tón­ list. Síðustu fimm ár hef ég unnið með skrifstofu í New York og hef í gegnum hana verið fenginn til að semja tónlist við auglýsingar fyrir fyrirtæki á borð við Mercedes Benz og Lincoln. Mér finnst það ótrúlega skemmtilegt,“ segir Eðvarð. Kíruma er meira elektrónísk tón­ list, og var stef frá Eðvarði notað í tölvuleikinn Pro Evolotution Soccer 2019. „Ég hef samt aldrei sest niður fyrir framan fólk við píanó eða hljóm­ borð og spilað það sem ég er að semja hérna heima. Ég er spenntur að opna fyrir það líka, það er svo miklu persónulegra. Nú er þetta bara ég, bara Eðvarð Egilsson.“ Ætlaði alltaf aftur út Þegar Eðvarð var út i í Los A ngeles ha fði hann mik inn áhuga á því að færa sig meira út í kvikmyndatónlist. Hugurinn leitaði þó heim og lendingin var að fara í nám við Listaháskóla Íslands að læra klassískar tónsmíðar, þótt hugmyndin hafi alltaf verið sú að fara aftur út til Los Angeles eftir það. Á einu og hálfu ári var þó allt breytt, hann varð ástfangin og eignaðist dóttur. „Þetta breyttist allt heldur betur. Ég byrja í skólanum og að læra hjá svo frábærum kennurum. Ég nýt leiðsagnar Páls Ragnars Pálssonar, hann er minn maestro eiginlega. Svo læri ég hjá Atla Ingólfssyni og er að byrja byrja læra á slagverk hjá Áskeli Mássyni.“ Dóttirin breytti öllu Eðvarð kynntist sellóleikaranum Unni Jónsdóttur og í dag eiga þau dótturina Eyju. „Við erum mikið að músísera saman, það er frábært að geta skilið hvort annað svona vel með það. Þannig að Eyja venst líka því að heyra foreldra sína stanslaust spilandi. Hún er fimm mánaða og finnst mjög gaman að spila á gítarinn og sellóið, en við treystum henni ek k i alveg stra x f y rir sellóinu,“ segir Eðvarð hlæjandi. Hann segir að það að hafa eignast Eyju hafi haft mikil og góð áhrif á tónlistargerðina hjá honum. „Það opnaði svo fyrir margt og kjarnaði mig svo mikið. Það veitti mér svo mikið öryggi. Ég þori meira að vera ég sjálfur og spila það sem er mér sjálfum kært. Svo er það auð­ vitað þvílíkur innblástur að hafa fengið þær Unni og Eyju í líf mitt.“ Eðvarð spilar í kvöld á Vínyl Bistro, Hverf isgötu 76. Það er ókeypis inn og tónleikarnir hefjast klukkan 21.00. steingerdur@frettabladid.is Föðurhlutverkið opnaði nýjan heim í tónlistargerðinni Tónlistarmaðurinn Eðvarð spilar í fyrsta sinn undir eigin nafni á Vínyl Bistró í kvöld. Eftir níu ár í Los Angeles ákvað hann að flytja heim til að læra klassíska tónlist. Planið var alltaf að halda aftur út, en það átti heldur betur eftir að breytast. Tónleikarnir í kvöld eru nokkurs konar upphitun fyrir tónlistarhátíðina Extreme Chill. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.