Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 55
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
SVO ER ÞAÐ AUÐ-
VITAÐ ÞVÍLÍKUR
INNBLÁSTUR AÐ HAFA FENGIÐ
ÞÆR UNNI OG EYJU Í LÍF MITT.
Aðeins 11.900 kr.
6 laga heilsukoddi frá Simba.
Stærð: 50 x 70 cm.
SIMBA HYBRID®
heilsukoddi
Aðeins 15.900 kr.
6 laga heilsukoddi frá Simba.
Stærð: 50 x 70 cm.
SIMBA HYBRID®
heilsukoddi
með Outlast®
OUTLAST
Háþróað efni sem heldur jöfnum
hita. Jacquard bómull
í Hybrid koddanum.
FÍNN DÚNN
Lag af sérstaklega fín gerðum
og mjúkum anda dúni
sem gefur koddanum
náttúrulega öndun.
HITASTÝRING
3D hitastýringarefni sem tryggir
hámarks öndun og loftflæði
gegnum koddann.
NANOTUBE TÆKNI
Í miðjum koddanum er lag af
smágerðum svamprörum .
Þú getur stillt hæð og stífleika
koddans með því að bæta í eða
taka úr þessu lagi.
MICROFIBRE
Næst er lag af Microtrefjum sem gera þessa
hlið koddans bæði mjúka, endingargóða og
hentuga fyrir þá sem eiga við ofnæmi að stíða.
JACQUARD BÓMULL
Silkimjúk hágæða bómull með frábærri öndun 300 gsm.
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OUTLAST
KOMINN
AFTUR!
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Í k völd spi la r tón l ist a rmaðurinn Eðvarð Egilsson á Vínyl Bistró. Tónleikarnir eru liður í Extreme Chill Festival, sem í ár er með breyttu sniði, og fer fram í Reykjavík 12.15.
september. Því má segja að tónleik
arnir í kvöld sé nokkurs konar upp
hitun fyrir tónlistarhátíðina.
Byrjaði alveg upp á nýtt
„Pan Thorarensen, sem sér um
hátíðina, hafði samband við mig
og spurði hvort ég hefði áhuga á
að spila. Ég er búinn að vera að
vinna í þessari plötu í tæplega
tvö ár, það er alltaf þessi klassíska
frestunarárátta. En þegar hann bað
mig að spila, ákvað ég að slá bara til
og vera með. Í kvöld frumflyt ég því
nýtt efni á Vínyl,“ segir Eðvarð.
Fyrr á árinu fékk Eðvarð aðstöðu
í Hljóðheimum sem hann var ein
staklega ánægður með.
„Það veitti mér mikinn innblástur
og ég hef verið að byggja upp
stúdíóið síðan, sem ég kalla Stúdíó
Sprungu. Það var þá sem ég ákvað
að setjast niður og klára plötuna. Ég
var búinn að gera heila aðra plötu
en hlustaði á hana og var ekki nógu
ánægður með hana. Svo ég byrjaði
bara upp á nýtt. Það eru nokkur
tilbúin lög og alveg 150 uppköst að
lögum.“
Tók U-beygju í tónlistinni
Þetta verða fyrstu tónleikar Eðvarðs
undir eigin nafni, en hann semur
einnig tónlist undir nafninu Kír
uma. Áður samdi hann einnig undir
nafninu Eddie House en þá var hann
partur af hljómsveitinni Steed Lord.
„Ég bjó í Los Angeles í níu ár,
þá var þetta frekar ólíkt og við
vorum mikið að spila og túra. Það
er öðruvísi upplifun. Þegar á leið
fór ég að hafa meiri og meiri áhuga
á kvikmynda og klassískri tón
list. Síðustu fimm ár hef ég unnið
með skrifstofu í New York og hef í
gegnum hana verið fenginn til að
semja tónlist við auglýsingar fyrir
fyrirtæki á borð við Mercedes Benz
og Lincoln. Mér finnst það ótrúlega
skemmtilegt,“ segir Eðvarð.
Kíruma er meira elektrónísk tón
list, og var stef frá Eðvarði notað í
tölvuleikinn Pro Evolotution Soccer
2019.
„Ég hef samt aldrei sest niður fyrir
framan fólk við píanó eða hljóm
borð og spilað það sem ég er að
semja hérna heima. Ég er spenntur
að opna fyrir það líka, það er svo
miklu persónulegra. Nú er þetta
bara ég, bara Eðvarð Egilsson.“
Ætlaði alltaf aftur út
Þegar Eðvarð var út i í Los
A ngeles ha fði hann mik inn
áhuga á því að færa sig meira út
í kvikmyndatónlist. Hugurinn
leitaði þó heim og lendingin var að
fara í nám við Listaháskóla Íslands
að læra klassískar tónsmíðar, þótt
hugmyndin hafi alltaf verið sú að
fara aftur út til Los Angeles eftir það.
Á einu og hálfu ári var þó allt breytt,
hann varð ástfangin og eignaðist
dóttur.
„Þetta breyttist allt heldur betur.
Ég byrja í skólanum og að læra hjá
svo frábærum kennurum. Ég nýt
leiðsagnar Páls Ragnars Pálssonar,
hann er minn maestro eiginlega.
Svo læri ég hjá Atla Ingólfssyni og
er að byrja byrja læra á slagverk hjá
Áskeli Mássyni.“
Dóttirin breytti öllu
Eðvarð kynntist sellóleikaranum
Unni Jónsdóttur og í dag eiga þau
dótturina Eyju.
„Við erum mikið að músísera
saman, það er frábært að geta
skilið hvort annað svona vel með
það. Þannig að Eyja venst líka því
að heyra foreldra sína stanslaust
spilandi. Hún er fimm mánaða
og finnst mjög gaman að spila á
gítarinn og sellóið, en við treystum
henni ek k i alveg stra x f y rir
sellóinu,“ segir Eðvarð hlæjandi.
Hann segir að það að hafa eignast
Eyju hafi haft mikil og góð áhrif á
tónlistargerðina hjá honum.
„Það opnaði svo fyrir margt og
kjarnaði mig svo mikið. Það veitti
mér svo mikið öryggi. Ég þori meira
að vera ég sjálfur og spila það sem
er mér sjálfum kært. Svo er það auð
vitað þvílíkur innblástur að hafa
fengið þær Unni og Eyju í líf mitt.“
Eðvarð spilar í kvöld á Vínyl
Bistro, Hverf isgötu 76. Það er
ókeypis inn og tónleikarnir hefjast
klukkan 21.00.
steingerdur@frettabladid.is
Föðurhlutverkið
opnaði nýjan heim í
tónlistargerðinni
Tónlistarmaðurinn Eðvarð spilar í fyrsta sinn undir eigin nafni á
Vínyl Bistró í kvöld. Eftir níu ár í Los Angeles ákvað hann að flytja
heim til að læra klassíska tónlist. Planið var alltaf að halda aftur
út, en það átti heldur betur eftir að breytast.
Tónleikarnir í kvöld eru nokkurs konar upphitun fyrir tónlistarhátíðina Extreme Chill. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð