Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 61

Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 61
Forstöðumaður á nýju heimili Fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt starf Óskað er eftir forstöðumanni til starfa á heimili fatlaðs fólks í nýjum íbúðakjarna á Klukkuvöllum í Hafnarfirði. Um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf hið fyrsta, helst ekki síðar en 1. júlí. Umsóknarfrestur er 15. maí 2015. Helstu verkefni og ábyrgð: • Fagleg ábyrgð á þjónustunni út frá ríkjandi hugmyndafræði. • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri heimilisins og umsjón með fjármálum íbúa. • Skipulagning og yfirumsjón með móttöku íbúa. • Skipulagning starfseminnar og yfirumsjón með innra starfi. • Ráðning annarra starfsmanna og stjórnun starfsmannamála. • Samstarf við íbúa, aðstandendur og aðra samstarfsaðila. Hæfnikröfur: • Þroskaþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla á heimilum fólks með fötlun • Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun • Þekking á skipulagsvinnu • Góð samskipta- og samstarfsfærni • Sveigjanleiki og jákvæðni • Almenn tölvukunnátta, s.s. Word og Excel • Rík áhersla er lögð á hugmyndafræði og fagleg vinnubrögð Umsækjandi þarf að geta tekið virkan þátt í innra starfi félags- ins og haft stefnu þess og góða starfshætti að leiðarljósi í starfi. Hann tekur þátt í fjölbreyttum og spennandi verkefnum í sam- vinnu við góðan starfsmannahóp í skemmtilegu vinnuumhverfi. Nánari upplýsingar veita Þórhildur Garðarsdóttir og Erna Einarsdóttir í síma 414 0500 á virkum dögum. Atvinnumsókn sendist á thorhildur@styrktarfelag.is eða erna@styrktarfelag.is. Upplýsingar um félagið og atvinnuum- sókn má finna á heimasíðu þess www.styrktarfelag.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags. Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími: 590-5100 | klettur.is Bifvélavirkja, vélvirkja eða starfsmann með reynslu af vörubílaviðgerðum vantar til starfa á vörubílaverkstæði Kletts. Verkstæðið er mjög vel tækjum búið og öll starfsaðstaða til fyrirmyndar. Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Svein Símonarson í síma 825 5752 eða svsi@klettur.is KLETTUR - SALA OG ÞJÓNUSTA LEITAR EFTIR STARFSFÓLKI www.gardabaer.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ Bæjarskrifstofur Garðabæjar • þjónustufulltrúi Álftanesskóli • umsjónarkennari á yngsta stigi Sjálandsskóli • kennari Leikskólinn Krakkakot • sérkennslustjóri Nánari upplýsingar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is www.vedur.is 522 6000 Gæða- og upplýsinga- öryggis stjóri Umsóknarfrestur til og með 18. maí nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is.  og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferil- skrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis- og auðlinda- ráðuneytið. Hjá stofnuninni starfa um 135 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræða- svið. Auk þess starfa um 110 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Hlutverk stofnunarinnar er öflun, varðveisla og úrvinnsla gagna, sem og miðlun upplýsinga á helstu eðlisþáttum jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, jörð, snjó, jöklum og hafi. Starfsemin fer fram á fjórum sviðum: Eftirlits- og spásviði, Athugana- og tækni sviði, Úrvinnslu- og rannsóknasviði, Fjár mála- og rekstrarsviði og Skrifstofu for stjóra. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum. Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða gæða- og upplýsingaöryggisstjóra sem ber ábyrgð á gæða- og upplýsingaöryggi hennar. Starfið heyrir undir Skrifstofu forstjóra og mun við komandi sitja í framkvæmdaráði stofnun arinnar. Veðurstofan vinnur að innleiðingu stjórnunar- kerfis skv. stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001 og hefur meirihluti starfseminnar gengist undir gæðavottum skv. ISO 9001. Meginhlutverk Ber ábyrgð á mótun gæðastefnu og upp lýs inga öryggisstefnu stofnunarinnar og hefur eftirlit með því að þeim sé framfylgt Sér til þess að ferli starfseminnar séu skil greind sem og lykilþættir þeirra og jafn framt að sjá til þess að stofnunin setji sér markmið og árangur í ljósi þeirra sé mældur Ber ábyrgð á að upplýsingaeignir séu skilgreindar og að öryggi upplýsinga sé tryggt Hefur umsjón með umbótaferlum Ber ábyrgð á vottun samkvæmt alþjóð- legum stöðlum og reglum ásamt því að vera tengiliður gagnvart vottunar- eða eftirlitsaðila Sér um rekstur og uppfærslu gæða hand- bókar (rekstrarhandbókar) Hefur umsjón með frekari uppbyggingu stjórnunarkerfisins Heldur uppi markvissri kynningu á gæða- og upplýsingaöryggismálum og stuðlar að aukinni vitund starfsmanna Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhalds- nám á sviði gæðastjórnunar og/eða upplýsingaöryggismála Yfirgripsmikil þekking á hugmyndafræði og aðferðum gæða- og upplýsinga öryggis- stjórnunar, s.s. ISO 9001 og ISO 27001 Farsæl reynsla af gæða- og upplýsinga- öryggisstjórnun Hæfni til að innleiða breytingar og stjórna þeim Góð hæfni í samstarfi og mannlegum samskiptum Farsæl reynsla af hópastarfi og teymisvinnu Skipulagshæfni og nákvæmni Mjög gott vald á íslensku og góð kunnátta í ensku Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Helga Rún Runólfsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. Forstöðumaður Dvalaheimilis aldraðra í Stykkishólmi Stykkishólmsbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns Dvalarheimilis aldraðra, Stykkishólmi. Um er að ræða 100% stöðu við hjúkrunar- og stjórnunarstarf. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 1. júlí n.k., eða eftir nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga. Starfssvið: Umsjón og ábyrgð á rekstri Dvalarheimilisins. Umsjón og ábyrgð á umönnun heimilisfólks á dvalarheimili og á hjúkrunardeild. Menntunar- og hæfniskröfur: Hjúkrunarfræðimenntun og íslenskt hjúkrunarleyfi. Reynsla við stjórnun, starfsmannahald og rekstur á sviði heilbrigðis-þjónustu, frumkvæði, metnaður, hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og öguð vinnubrögð. Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, sem er sjálfseignarstofnun, tók til starfa 9. ágúst 1978. Á heimilinu eru 5 dvalarrými og 13 hjúkrunarrými auk dagvistar. Sextán íbúðir fyrir aldraða eru tengdar Dvalarheimilinu. Starfsfólk eldhússins í Dvalarheimilinu sér um mat fyrir vistmenn, en einnig fyrir þá íbúa í búseturréttaríbúðunum sextán sem þess óska og fyrir starfsfólk og nemendur Grunnskóla Stykkishólms. Umsóknir skulu berast bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið baejarstjori@stykkisholmur.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 22. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri, sími: 433 8100/863-8888 og netfang: sturla@stykkisholmur.is Upplýsingar um Stykkishólm má finna á heimasíðu bæjarins www.stykkisholmur.is Sturla Böðvarsson Bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar Ráðhúsinu Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.