Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 37

Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 37
LAUGARDAGUR 2. maí 2015 | HELGIN | 37 Breski sjálfstæðisflokkurinn, UKIP, hefur verið í mikilli uppsveiflu síðustu misserin. Nigel Farage hefur laðað til sín fylgi með afdráttarlausum málflutningi gegn Evrópu- sambandinu og gegn innflytjendum, sem hann slengir fram af nokkrum galgopaskap. Lengi vel leit út fyrir að hann gæti komist í lykilstöðu við stjórnarmyndun nú eftir kosningarnar, en þeir draumar virðast foknir út í veður og vind. Ræður þar mestu hið sérstaka kosningakerfi Bretlands, því þrettán prósenta fylgi virðist ekki ætla að skila flokknum nema einum þingmanni á breska þinginu. Sá þingmaður yrði væntanlega Farage sjálfur, sem einnig er þingmaður flokksins á Evrópuþinginu. FYLGISAUKNINGIN SKILAR SÉR EKKI NIGEL FARAGE Leiðtogi Breska sjálfstæðis- flokksins hefur eitthvað verið að missa flugið undanfarið. NORDICPHOTOS/AFP Staða breska Verkamannaflokksins er það tæp að nánast er hægt að tala um hrun. Að minnsta kosti í Skotlandi, þar sem flokkurinn hefur til langs tíma borið höfuð og herðar yfir aðra flokka. Í þetta skiptið er honum ekki spáð nema örfáum þing- mönnum frá Skotlandi, jafnvel engum. Leiðtoga flokksins, Ed Miliband, hefur engan veginn tekist að nota forystu sína í stjórnarandstöðu heilt kjör- tímabil til þess að styrkja stöðu flokksins. Að vísu virðist hann ætla að bæta við sig nokkru fylgi á landsvísu, en gæti engu að síður orðið minni en Íhaldsflokkurinn, sem þó ætlar ekki heldur að ríða feitum hesti frá þessum kosningum. HRUN Í SKOTLANDI, STÖÐNUN Á LANDSVÍSU ED MILIBAND Leiðtoga Verkamannaflokksins hefur ekki tekist að afla fylgis, þrátt fyrir heilt kjörtímabil í stjórnarandstöðu. NORDICPHOTOS/AFP FARAGE Leiðtogi síðan 2010 MILIBAND Leiðtogi síðan 2010 Cameron hefur hún tryggt sér atkvæði frá fólki sem annars hefði kosið Verkamannaflokkinn. Um leið tekur hún reyndar þá áhættu að fæla frá flokknum kjósendur sem annars myndu halda sig við Íhaldsflokkinn. Sterk staða hennar myndi einnig styrkja mjög málstað Skota, sem í kosningabaráttunni síðasta haust fengu býsna afdráttarlaus loforð frá bresku stjórninni um að Skot- land fengi meiri völd innan ríkja- sambandsins ef sjálfstæði yrði hafnað. Lítið hefur orðið úr efndum þeirra loforða til þessa, og kannski á það sinn þátt í hinu sterka fylgi Skoska þjóðarflokksins nú. Sturgeon hefur sagt að Margaret Thatcher hafi verið helsti hvatinn að baki því að hún ákvað að leggja fyrir sig stjórnmál. En með öfugum formerkjum reyndar. „Ég hataði allt það sem hún stóð fyrir,“ sagði hún um Thatcher. Hún hefur einnig ýmsar áherslur sem eru frábrugðnar því sem stóru flokkarnir standa fyrir. Hún hefur meðal annars lagt mikla áherslu á umhverfismál og er sérstaklega áhugasöm um að Bretar hætti við að koma sér upp nýjum kjarnorku- vopnum. Þá hefur hún boðað samvinnu við smærri flokka á borð við Græn- ingja og Plaid Cymru, sem þar með eiga nú í fyrsta sinn raunverulega möguleika á að koma baráttumál- um sínum almennilega á dagskrá í breskum stjórnmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA EVRÓPUSAMBANDIÐ BERST GEGN LOFTSLAGSBREY TINGUM. Aðgangur á tónleikan a er ókeypis ÞEGAR HJÖRTUN SLÁ Í TAKT! Sérstakur gestur á tónleikunum verður söngkonan Ragnheiður Gröndal. Fyrstir koma, fyrstir fá. Miðapantanir á harpa.is og í miðasölu Hörpu. Evrópsk tónlistarveisla í Hörpu 10. maí kl.20.00, tileinkuð baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Íslenska Balkansveitin Skuggamyndir frá Býsans mátar hrynfasta tóna við kraftmikla keltneska alþýðutónlist írsku hljómsveitarinnar FullSet. Í TILEFNI E VRÓPUDAGSINS D Y N A M O R E Y K J A V ÍK
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.