Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 44
Ferðir LAUGARDAGUR 2. MAÍ 20154
Það sem kom Helgu Sigur-bjarnadóttur innanhúss-hönnuði helst á óvart á
ferðalagi sínu um Afríku var hvað
fólk var almennt glatt og ham-
ingjusamt þrátt fyrir að hafa ekki
mikið á milli handanna. Hún fór
ásamt eiginmanni sínum, Gunn-
ari Má Gunnarssyni, og fleiri Ís-
lendingum til Tansaníu til að klífa
Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku.
„Við byrjuðum á að vera í einn og
hálfan dag í bæ sem heitir Moshi,
tókum svo fjóra daga í að fara upp
fjallið og vorum tvo daga á leiðinni
niður,“ segir Helga.
Þegar Helga og samferðamenn
hennar voru að hefja gönguna
upp fjallið var keyrt upp í lítinn
bæ sem er í um tvö þúsund metra
hæð. Þar mættu þau börnum sem
voru að koma heim úr skólan-
um. „Börnin búa þarna í skógin-
um og ganga um tíu kílómetra í og
úr skóla á hverjum degi og ekkert
endilega í skóm sem eru í þeirra
númeri, það var ótrúleg upplif-
un að koma þarna. Það var líka
afskaplega fallegt þarna og gang-
an var skemmtileg. Í byrjun göng-
unnar var mikið af gróðri, sól og
um þrjátíu stiga hiti. Þegar við
vorum komin efst upp í fjallið var
umhverfið orðið frekar tungllegt
og hitastigið um frostmark þann-
ig að landslagið og umhverfið allt
var mjög ólíkt á leiðinni.“
Ekki svo erfið ganga
Til þess að ganga á Kilimanjaro
segir Helga ekki nauðsynlegt að
vera þaulvanur fjallgöngugarp-
ur. „Gangan er tæknilega séð ekki
erfið þótt það sé að sjálfsögðu
gott að hafa gengið eitthvað áður
en lagt er í hann. Það sem er erf-
iðast við það að fara upp fjallið er
hæðaraðlögunin, að vera í þessu
þunna lofti. Það er ekki hægt að
æfa fyrir það og það fer mismun-
andi í fólk. Þegar við komum
þreytt niður fjallið og súrefnið
jókst þá urðu allir svo glaðir að
geta andað eðlilega aftur og allt
varð eitthvað svo fallegt. Það var
sérstaklega gaman að koma inn í
regnskógana, að sjá alla fegurðina,
finna lyktina og heyra hljóðin.“
Í fylgd milli herbergja
Hópurinn fór einnig í tvo safarí-
garða í ferðinni og segir Helga að
skemmtilegt hafi verið að fylgj-
ast með dýrunum í sínu náttúru-
lega umhverfi. „Það var magnað
að sjá það, ljónin lágu bara í mak-
indum við hliðina á bílnum sem
við vorum í og þegar við fórum
úr herberginu okkar niður í veit-
ingasalinn var okkur fylgt því ljón-
in geta komið alla leið inn. Hótel-
ið sem við gistum á var inni í saf-
arígarðinum og einu sinni þegar
við sátum úti á svölum og vorum
að njóta frísins þá komu fílar inn
í garðinn og við gátum þá séð þá í
mikilli nálægð,“ segir Helga.
Margir þeirra sem ferðast til
Afríku segja það líkt og að sýkj-
ast af bakteríu því þeir vilji fara
þangað aftur og aftur. Helga tekur
undir það. „Jú, „Afríkubakterí-
an“ er bráðsmitandi, það er engin
spurning um að ég ætla að fara
þangað aftur,“ segir hún og brosir.
Smitaðist af
Afríkubakteríunni
Helga Sigurbjarnadóttir gekk á hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro, fyrir stuttu
ásamt hópi Íslendinga. Hún segir engan vafa á að hún fari aftur til Afríku,
upplifunin hafi verið það mikil, landslagið fallegt og fólkið skemmtilegt.
Í Kibo hut-grunnbúðunum fyrir toppinn. Þarna var hópurinn búinn að að ganga í sex tíma og var að undirbúa sig fyrir að gangan á
toppinn hæfist. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Þessa glöðu krakka hittu Íslendingarnir á leiðinni upp Kilimanjaro.
Á leiðinni upp fjallið var umhverfið fjölbreytt, neðarlega var mikið um gróður en ofar var
það líkt og á tunglinu.
www.gaman.is / gaman@gaman.is / Gaman Ferðir fljúga með WOW air
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
eða 4 fullorðna.* Ferðatímabil frá 4. júlí 2015.
Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7
nætur og 20 kg taska báðar leiðir.
Tenerife
Apartmentos Aguamar ***
*Verð á mann frá 93.800 kr. miðað við 2 fullorðna.
79.100 kr.Frá:
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
(2-12 ára).* Ferðatímabil frá 1. júní 2015.
Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7
nætur, hálft fæði og 20 kg taska báðar leiðir.
Alicante
Albir Playa ****
*Verð á mann frá 115.900 kr. miðað við 2 fullorðna.
95.900 kr.Frá:
Meiri sól
með Gaman Ferðum!
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
(2-12 ára).* Ferðatímabil frá 6.júní 2015.
Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7
nætur, hálft fæði og 20 kg taska báðar leiðir.
Costa Brava
Aqua Montegut Hotel ****
*Verð á mann frá 91.600 kr. miðað við 2 fullorðna.
77.000 kr.Frá:
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
(2- 6 ára).* Ferðatímabil frá 1. júní 2015.
Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7
nætur með hálfu fæði og 20 kg taska
báðar leiðir.
Tenerife
Costa Adeje Palace ****
*Verð á mann frá 126.500 kr. miðað við 2 fullorðna.
103.900 kr.Frá: