Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 4

Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 4
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 TÆKNI Fjárfesting við uppbygg- ingu íslenska gagnaversiðnaðarins er í kringum 20 milljarðar króna á aðeins fimm til sex árum. Föst og afleidd störf eru þegar um 300 talsins. Þetta kom fram í máli Eyj- ólfs M. Kristinssonar, formanns Samtaka íslenskra gagnavera (DCI), á vorfundi Landsnets fyrir skemmstu. Eyjólfur fjallaði meðal annars um af hverju Ísland hentar vel til uppbyggingar gagnavera. Ekki síst er það náttúruleg kæling sem hefur bein áhrif á rekstrarkostnað fyrirtækjanna sem þurfa að kaupa minni orku til kælingar á vélbún- aði en víða annars staðar. Tiltölulega lágt orkuverð spilar einnig inn í þessa mynd. Gagnaver á Íslandi nýta 20 megavött (MW) af orku og kaupa rafmagn fyrir um 1,4 milljarða króna árlega. Keypt bandvídd er fyrir 500 millj- ónir á ári. Þótt greinin sé ung að árum þá eru þegar bein störf í gagnaverum á Íslandi í dag 70 til 100, en afleidd störf eru mun fleiri eða rúmlega 200 talsins. Eyjólfur svaraði þeirri spurn- ingu af hverju gagnaver á Íslandi eru ekki fleiri og stærri en raun ber vitni. Það sagði hann helst að rekja til þess að gagnasam- band við Bandaríkin væri „ekki frábært“ en nefndi að við erfið- ar aðstæður hefði greinin fengið mikla stoð frá fyrirtækjum á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasam- banda við útlönd. „Hins vegar þarf miklu meira til ef við ætlum að vera samkeppn- ishæf,“ sagði Eyjólfur sem varp- aði fram þeirri spurningu hver aðkoma stjórnvalda gæti verið til að styðja við gagnaversiðnaðinn til framtíðar. Hann nefndi að skattaumhverfi þyrfti að vera samkeppnishæft við helstu samkeppnislönd og að styðja þyrfti uppbyggingu innviða eins og raforku- og fjarskipta- kerfis, eins menntunar sem nýtist greininni og mikilvægi lagalegrar verndar tjáningar- og upplýsinga- frelsis. „Við finnum það að þau lönd sem við erum helst í samkeppni við fá öflugan stuðning frá stjórn- völdum; eru með sterkar mark- aðsskrifstofur á bak við sig og þessi lönd hafa markað sér skýra stefnu um að ná árangri. Árangur- inn hefur ekki líka ekki látið á sér standa,“ sagði Eyjólfur og nefndi Írland sem dæmi en einnig Finn- land og Svíþjóð. Hann sagði tækifærin án nokk- urs vafa fyrir hendi enda væru tvö prósent allrar orku í Bandaríkjun- um þegar nýtt til að reka gagna- ver og aðrar tölur væru til marks um það að gagnaveraiðnaðurinn á heimsvísu yxi hraðar en menn gerðu sér almennt grein fyrir. svavar@frettabladid.is Fjárfesting í gagnaverum 20 milljarðar á 5 til 6 árum Gagnaver á Íslandi nýta 20 megavött af orku og kaupa rafmagn fyrir um 1,4 milljarða árlega. Föst og afleidd störf eru um 300. Græn orka og náttúruleg kæling gera Ísland að góðum kosti til uppbyggingar gagnavera. THOR Um 80 alþjóðlegir aðilar nýttu sér þjónustu gagnavers Advania í Hafnarfirði á síðasta ári. Við finnum það að þau lönd sem við erum helst í sam- keppni við fá öflugan stuðning frá stjórnvöldum. Eyjólfur M. Kristinsson, formaður DCI. EFNAHAGSMÁL Þór unn Guðmunds- dótt ir hæsta rétt ar lögmaður var á fimmtudag kjörin formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Þórunn var kosin í bankaráðið af Alþingi í mars síðastliðnum í stað Ólafar Nordal sem hætti í ráðinu er hún tók við embætti innanrík- isráðherra. Varaformaður banka- ráðsins er Jón Helgi Eg ils son. Þórunn er einn eigenda lög- mannsstofunnar Lex. Hún hefur um 30 ára lögmannsreynslu og hefur starfað samfellt hjá Lex frá árinu 1983. - fbj Formaður Seðlabankaráðs: Þórunn yfir bankaráðinu TEKUR VIÐ Þórunn Guðmundsdóttir lögmaður tekur við af Ólöfu Nordal ráðherra sem formaður bankaráðs Seðlabankans. STJÓRNMÁL Píratar mælast lang- stærsti stjórnmálaflokkurinn á Íslandi ef gengið yrði til kosninga nú með 30 prósenta fylgi. Það er átta prósentustigum meira en í síðasta mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 22,9 prósent og Samfylking- in með 14,1 prósent. Þá fá Vinstri græn 10,6 prósent, Framsókn er með 10,1 prósent og Björt framtíð með 7,8 prósenta fylgi. - srs Auka fylgið um átta stig: Píratar með byr í seglunum 27.4.2015 ➜ 3.5.2015 Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Þýsk gæði 10 MANNS voru kærðir til lögreglu af Samtök- unum 78 fyrir meiðandi orð í garð hinsegin fólks. 104 HEIMILISOFBELDISMÁL komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Á 2 MÁNUÐUM 4,5 milljarða króna mun útgerðin hafa sparað í árslok ef OLÍUVERÐ og gengi Bandaríkjadals haldast út árið. milljón kostuðu sýnatökur lögregl- unnar á höfuð- borgarsvæðinu vegna ölvunar- og fíkniefnaakst- urs á tveimur árum. 33 milljörðum HAFA ÚTGERÐARFYRIRTÆKI þegar samið um að verja til smíði nýrra skipa. 50% er talið að sé fækkun heilablóðfalla á síðasta áratug. 50-52% launahækkanir á 3 árum er krafa SGS. $ 271 # # # STJÓRNMÁL Stjórnskipunar- og eftir litsnefnd þingsins brást í máli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, að mati Ögmundar Jónassonar, for- manns nefndar- innar. Þetta kom fram í kvöld- fréttum Stöðvar 2 í gær. Nefndin fór í pólitískar skot- grafir en mein- ingin er að hún sé hafin yfir slíkt. Nefndin klofn- aði í málinu, en aðallega var deilt um hvort Hanna Birna hefði sagt þinginu ósatt eða ekki. Stjórnarliðar mynduðu meirihluta og telja að málinu hafi lokið með skýrslu umboðsmanns Alþingis. Brynjar Níelsson, varaformað- ur nefndarinnar, segir að nefndin eigi ekki að setja sig í dómarasæti eða starfa sem rannsóknarréttur. Til þess hafi hún embætti eins og umboðsmann Alþingis og Ríkis- endurskoðun. Hann hafnar því að nefndarmenn hafi farið í pólitískar skotgrafir þótt þeir hafi ekki talið eða treyst sér til að fullyrða það að Hanna Birna Kristjánsdóttir hafi sagt ósatt í þinginu. Til stóð að afgreiða skýrslu í nafni allrar nefndarinnar en stjórn- arliðar féllust ekki á það svo minni- hlutinn stendur einn að skýrslunni eða álitinu. Ögmundur Jónasson segir þetta mjög dapurlega niður- stöðu en það sé nauðsynlegt að álit minnihlutans verði rætt í þinginu. Hann segist líta málið mjög alvar- legum augum en ekki hafa tekið neina ákvörðun um hvort hann hætti sem formaður í nefndinni. - þká Ósammála um hvort Hanna Birna hafi sagt þinginu ósatt í lekamálinu: Segir nefndina hafa brugðist HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR BRUGÐIST Ögmundur Jónasson, for- maður nefndarinnar, segir hana hafa brugðist í máli Hönnu Birnu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.