Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 82
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 42
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Brandarar
Baldvin Alan var einn af þrem-
ur valinn í hlutverk Billy Elliot
í Borgarleikhúsinu en varð
fyrir því óláni að togna í lær-
vöðva skömmu fyrir frumsýn-
ingu og sýndi í fyrsta skipti í
gær. Hann segist vera orðinn
stálsleginn.
„Ég er orðinn mjög fínn, þetta
er allt búið að batna.“
Varstu að æfa á sviðinu þegar
þú tognaðir? Nei, ég var bara
að hita upp fyrir fimleika og
fann verk í lærinu. Ég talaði við
þjálfarann og hann sagði að
þetta gæti verið tognun, sem
það reyndist vera. Við höldum
að þetta hafi verið eitthvað
sem var búið að byggjast upp.
Það hefur verið dálítið álag
á þér. Hvenær byrjaðir þú að
æfa fyrir Billy Elliot? Ég byrjaði
1. júní 2014 og var að allt sum-
arið í fyrra svo ég hef verið að
æfa í næstum ár.
Varstu ekki svekktur þegar
þú varðst var við meiðslin? Jú,
dálítið. Sérstaklega að mega
ekki dansa.
Ertu í dansskóla? Ég var í Dans-
skóla Sigurðar Hákonarsonar í
Kópavogi og æfði samkvæmis-
dans áður en ég byrjaði í þessu
verkefni.
Býrðu í Kópvogi? Nei, nei. Ég á
heima í Hveragerði og var bara
keyrður á æfingar þrisvar til
fjórum sinnum í viku. Svo það
voru ekkert mikil viðbrigði að
þurfa að keyra í bæinn þegar ég
byrjaði í Billy.
Hvenær gastu svo tekið upp
þráðinn aftur? Bara rétt fyrir
páska. Við vorum alltaf þrír að
æfa saman fyrir titilhlutverk-
ið og hinir tveir hafa sinnt því
fram að þessu. En mín frum-
sýning var í gær. Svo er ég að
fermast á morgun í Hveragerð-
iskirkju.
Frumsýndi í gær og
fermist á morgun
Draumur Baldvins Alan rættist í gær er hann söng og dansaði fyrir áhorfendur
á sviði Borgarleikhússins sem Billy Elliot eft ir langa bið og langt æfi ngarferli.
Á ÆFINGU „Ég byrjaði að æfa 1. júní 2014 og var að allt sumarið í fyrra svo ég er búinn að æfa í næstum ár,“ segir Baldvin.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Lögreglumaður ber að dyrum
og ungur drengur kemur til
dyra.
Lögreglumaður: „Er pabbi
þinn heima?“
Drengur: „Neibb.“
Lögreglumaður: „En mamma
þín?“
Drengur: „Nei, hún hljóp líka
og faldi sig þegar hún sá þig
út um gluggann.“
Baddi: „Við hittumst þá klukk-
an korter yfir 10.“
Jonni: „En ég er ekki með
klukku.“
Baddi: „Það er allt í lagi. Þú
bíður bara eftir því að klukkan
slái 11 högg og kemur þremur
korterum fyrr.“
Leikurinn byrjar á því að allir
raða sér í hring og snúa inn.
Einn „er hann“ og hleypur
umhverfis hringinn, velur sér
keppinaut, slær létt á sitjandann
á honum og hleypur af stað.
Keppinauturinn á að hlaupa í
gagnstæða átt og markmiðið er
að verða á undan í skarðið. Sá
þeirra sem fyrr nær þangað á
að snúa sér út úr hringnum.
Sá sem ekki nær í skarðið „er
hann“ næst og svo koll af kolli
uns allir snúa út úr hringnum.
Heimild: Leikjahandbók ÍTR
Hlaupið
í skarðið
HLAUPA Í SKARÐIÐ Hér er sprett duglega úr spori og spurning hvor hlauparinn
nær skarðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bragi Halldórsson
146
gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn,
„við verðum of sein.“
Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús?