Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 6
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Diplómanám um
áfengis- og
vímuefnamál
Diplómanám um áfengis- og vímuefnamál er
sjálfstætt 30 eininga þverfræðilegt nám að loknu
BA-, BS- eða sambærilegu háskólaprófi.
Námsleiðin er ætluð þeim sem starfa með áfengis- og
vímuefnasjúkum og fjölskyldum þeirra, s.s. félagsráðgjöfum,
hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, lýðheilsufræðingum,
iðjuþjálfum, guðfræðingum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum
og læknum.
Kennsla fer fram tvo samfellda daga í mánuði sem auðveldar
fólki að sinna náminu meðfram vinnu.
Sæktu um á hi.is fyrir 5. júní.
Nánari upplýsingar á felagsradgjof.hi.is og hjá dr. Steinunni
Hrafnsdóttur í síma 824 0598 og 525 5266.
www.hi.is
FÉLAGSRÁÐGJAFARDEILD
Innritaðir eru nemendur á aldrinum 8-10 ára sem
eru teknir beint í hljóðfæranám, án undangengins
forskólanáms.
Hægt er að komast að á eftirfarandi hljóðfæri:
• Strengjahljóðfæri, þ.e. fiðlu, víólu, selló og gítar
• Einnig á píanó og harmóníku
• Einnig er innritað í fiðluforskóla (5-6 ára börn)
• Einnig er til takmarkað pláss á þverflautu, klarinett og saxófón
• Teknir eru inn nokkrir nemendur fædda 2009 (6ára) í Forskóla I
• Teknir eru inn nokkrir nemendur fædda 2008 (7ára) í Forskóla Il
ATHUGIÐ AÐ FRAMBOÐ Á SKÓLAVIST ER
TAKMARKAÐ.
Skrifstofa skólans á Lindargötu 51 er opin frá kl. 13:00-16:00 virka daga.
Síminn er 562-8477.
Það skal tekið fram að nauðsynlegt er fyrst að skrá nemendur í skólann
með því að hafa samband við skrifstofuna.
Til að tryggja endanlega að innritunin sé frágengin er nauðsynlegt að
innrita nemandann einnig í Rafræna Reykjavík á heimasíðunni
www.rafraen.reykjavik.is á sama tíma og setja Tónmenntaskólann
í 1. val.
Skólastjóri
Innritun nýrra nemenda fyrir skólaárið 2015-2016
stendur yfir núna á vorönn og lýkur í maí.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Tröppur og stigar
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
RLA-05
Áltrappa 5 þrep, tvöföld
6.690
4 þrepa 5.690,-
6 þrepa 7.890,-
7 þrepa 9.690,-
Áltrappa 4 þrep 4.990,-
5 þrep 6.390,-
Áltrappa 3 þrep
3.990
LLA-308
PRO álstigi 3x8 þrep
2,27-5,05 m
18.490
SM-RLG0
Áltrappa 7 þrep, tvöföld
25.590
5 þrep, tvöföld 19.990,-
U
ppfyllir A
N
:131 staðalinn
U
ORKUMÁL „Við erum í góðu samtali
við Breta um það sem tímabært
er að ræða. Hvað sem einhverjir
kunna að halda fram þá er eng-
inn gluggi að lokast á næstu miss-
erum. Ég fullyrði það enda hef ég
spurt orkumálaráðherra Breta að
því sjálf,“ segir Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, um undirbúningsvinnu
stjórnvalda í tengslum við hugs-
anlega lagningu sæstrengs á milli
Íslands og Bretlands og samskipti
við þarlend stjórnvöld.
Charles Hendry, fyrrverandi
orkumálaráðherra Breta og ráð-
gjafi hjá Atlantic Superconnec-
tion Corporation, sagði á fundi
Kjarnans og Íslenskra verðbréfa
um sæstrengsverkefnið nýlega
að bresk stjórnvöld vildu eindreg-
ið taka upp viðræður við íslensk
stjórnvöld um stöðu verkefnisins.
Hins vegar væri engin krafa gerð
til þess að stjórnvöld hér gæfu
afdráttarlaus svör á þessum tíma-
punkti.
Í framhaldi af fundinum
sagði Jón Gunnarsson, formað-
ur atvinnuveganefndar, í viðtali
við Fréttablaðið að hann sæi ekk-
ert því til fyrirstöðu að taka upp
viðræður við Breta um sæstreng
þó undirbúningsvinna standi yfir
hérna heima. Hann vill hraða mál-
inu og fá svör við lykilspurningum
frá Bretum og hér heima.
Ragnheiður segir það rangt að
Bretar sæki fast að setjast niður
til viðræðna um sæstrengsmál.
Samskipti hennar við núverandi
orkumálaráðherra Breta, Matthew
Hancock, og fyrirrennara hans,
Michael Fallon, hafi einkennst af
hinu gagnstæða. Þeir hafi sýnt
skilning á því að verkefnið krefðist
mikillar heimavinnu en hafi boðið
fram aðstoð sína með alla þá þætti
sem þeir gætu. „Við erum að vinna
þetta m.a. eftir forskrift atvinnu-
veganefndar og þetta mál krefst
yfirlegu. Einhverjum kann að
finnast að málið gangi ekki nógu
hratt, en ég er ósammála því. Það
sem vakir fyrir okkur er að vanda
okkur eins og kostur er og gæta að
íslenskum hagsmunum.“
Ragnheiður hnykkir á að sett-
ur hafi verið á fót verkefnahópur
á vegum ráðuneytisins sem sé að
skoða þau átta verkefni sem lögð
voru til í áliti atvinnuveganefndar.
Þau eru öll komin í farveg. Síðast
hafi verið boðið út „ítarleg þjóð-
hagsleg kostnaðar- og ábatagrein-
ing á áhrifum raforkusæstrengs á
íslenskt samfélag“, eins og verk-
efnið er kallað. Straumur fjárfest-
ingarbanki sé um þessar mund-
ir að hefja þá vinnu. Samkvæmt
tímaáætlun verður undirbúnings-
vinnan í hendi um eða eftir næstu
áramót. svavar@frettabladid.is
Segir sæstrengsmál
í hárréttum farvegi
Ragnheiður Elín Árnadóttir vísar því á bug að vinna stjórnvalda við mat á kostum
og göllum við lagningu sæstrengs sé í hægagangi. Hún segir samskipti við Breta
um málið í eðlilegum farvegi og niðurstaðna úr undirbúningsvinnu að vænta.
RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR Hefur ekki gert upp hug sinn um sæstreng– og
sér bæði kosti og galla við verkefnið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Einhverjum kann að
finnast að málið gangi
ekki nógu hratt, en ég er
ósammála því. Það sem
vakir fyrir okkur er að
vanda okkur eins og
kostur er og gæta að
íslenskum hagsmunum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn hefur gefið út ný til-
mæli um heimsóknir á sængur- og fæðingarkvenn-
adeild spítalans. Í tilkynningu frá spítalanum eru
tilmælin sögð byggja á stefnu um heimsóknir og
viðveru við fæðingar sem mótuð var þegar fæðing-
arþjónustunni á spítalanum var breytt árið 2014.
Þannig mælast ljósmæður og læknar til þess að
aðeins einn einstaklingur sé viðstaddur fæðinguna.
Þá séu heimsóknir fyrstu tímana eftir fæðingu ekki
æskilegar. „Fæðingin og tíminn fyrst eftir fæð-
ingu er mikilvægur fyrir tengslamyndun foreldra
og nýbura. Grunnurinn að brjóstagjöf er lagður
á fyrstu tímunum eftir fæðingu og mikilvægt að
móðir og barn fái frið og tíma til að leggja þann
mikilvæga grunn,“ segir í tilkynningunni.
Um tveimur tímum eftir fæðingu flytjast mæður
á meðgöngu- og sængurlegudeild. Er þá mælst til
þess að aðeins nánustu aðstandendur komi í heim-
sóknir, aðeins milli klukkan 16.00 og 19.30. Heim-
sóknir barna yngri en 12 ára eru ekki leyfðar, vegna
RS víruss.
„Mikilvægt er að sýna tillitssemi, skipuleggja
heimsóknir í samráði við foreldra og fresta heim-
sóknum ef fólk er með kvef eða flensu,“ segir í til-
kynningunni. - fbj
Aðeins einn einstaklingur sé viðstaddur fæðingu móðurinni til stuðnings:
Ný tilmæli LSH um heimsóknir
VIÐKVÆMT FERLI Nýjum tilmælum um heimsóknir er ætlað
að vernda viðkvæmt ferli tengslamyndunar milli foreldra og
nýfædds barns. NORDICPHOTOS/GETTY
GÓÐGERÐARMÁL Ný stjórn lands-
nefndar UN Women á Íslandi
tók til starfa á fimmtudag. Starf
landsnefndarinnar hefur aukist
mikið á undanförnum árum en
aldrei hafa fleiri styrkt samtökin
með mánaðarlegu framlagi. Hátt
í 1.100 einstaklingar gengu til
liðs við UN Women á síðasta ári
og íslenska landsnefndin á þriðja
hæsta framlag landsnefnda til
verkefna UN Women.
Guðrún Ögmundsdóttir hag-
fræðingur var endurkjörin for-
maður samtakanna. Nýir inn
í stjórn nefndarinnar eru Örn
Úlfar Sævarsson, texta- og hug-
myndasmiður, og Soffía Sig-
urgeirsdóttir alþjóðastjórn-
málafræðingur sem áður sat í
varastjórn.
Í stjórn sitja sem fyrr Magnús
Orri Schram, Ólafur Stephensen,
Kristjana Sigurbjörnsdóttir, Frí-
mann Sigurðsson, Guðrún Norð-
fjörð, Hrefna Dögg Gunnarsdótt-
ir, Arna Gerður Bang og Karen
Áslaug Vignisdóttir. - vh
Íslenska landsnefndin á þriðja hæsta framlag landsnefnda til verkefna:
Ný stjórn landsnefndar UN Women
STJÓRNIN Ný stjórn landsnefndar var
kosin á fimmtudag.