Fréttablaðið - 04.01.2012, Side 12
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR12
UnGVeRjAlAnD „Forsætisráðherran
sór þess eið að vernda stjórnar-
skrána, en í staðinn hefur hann koll-
varpað henni,“ sagði Laszlo Majteni,
einn þeirra fjölmörgu mótmæl-
enda sem komu saman í miðborg-
inni í Búdapest á mánudagskvöld
til að mótmæla nýrri stjórnarskrá
landsins.
Mótmælendurnir skiptu tugum
þúsunda, hugsanlega voru þeir allt
að hundrað þúsund. Með stjórnar-
skrárbreytingunum eru tök stjórn-
málamanna hert á dómsvaldi, seðla-
banka, trúfélögum og fjölmiðlum.
Mótmælendurnir segja að með
nýju stjórnarskránni, sem tók gildi
um áramótin, séu afnumdir þeir var-
naglar gegn valdsækni og valdníðslu
sem settir voru eftir fall kommún-
istastjórnarinnar í lýðræðisbyltingu
austantjaldslandanna árið 1989.
Nýja stjórnarskráin þykir ein-
kennast af íhaldssemi, bæði í efna-
hagsmálum og siðferðismálum.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International eru meðal þeirra sem
gagnrýnt hafa hana fyrir að stan-
dast ekki alþjóðlegar mannréttinda-
reglur.
Í aðfaraorðum nýju stjórnar-
skrárinnar er vísað til hinnar helgu
krúnu Ungverjalands, þrátt fyrir
að Ungverjaland eigi áfram að
vera lýðveldi en ekki konungsríki,
hvað þá heilagt konungsríki. Þar er
einnig vísað til guðs, kristindóms
og hefðbundinna fjölskyldugilda.
Í stjórnarskránni sjálfri er svo til
dæmis hjónaband skilgreint þannig
að það sé samband karls og konu. Þá
er líf skilgreint þannig að það hefjist
við getnað.
Viktor Orban forsætisráðherra
er leiðtogi íhaldsflokksins Fidesz,
sem situr í ríkisstjórn ásamt flokki
kristilegra demókrata. Saman hefur
bandalag þessara tveggja flokka
tæp 53 prósent atkvæða en rúm-
lega tvo þriðju þingmanna landsins,
sem gerir þeim meðal annars kleift
að breyta stjórnarskrá að vild, án
aðkomu annarra flokka.
Evrópusambandið, Bandaríkin og
ýmis alþjóðasamtök hafa gagnrýnt
ýmislegt í stjórnarfari Ungverja-
lands síðan Orban tók við. Meðal
annars hefur gagnrýni beinst að
umdeildum fjölmiðlalögum, sem
þingmeirihlutinn setti árið 2010, og
svonefndum stöðulögum, sem áttu
að tryggja stöðu þeirra Ungverja
sem búsettir eru í nágrannalönd-
unum.
Efnahagslíf Ungverjalands stefn-
ir í kreppu nú á þessu ári sem er
að hefjast og stjórnin hefur leitað
til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir
efnahagsaðstoð, en samningar um
það hafa ekki enn tekist.
gudsteinn@frettabladid.is
MótMæli Tugir þúsunda komu saman fyrir utan Ríkisóperuna í Búdapest á
mánudagskvöld. noRdicphoTos/AFp
Orban sakaður um
einræðistilburði
Tugir þúsunda Ungverja mótmæltu á mánudag nýrri stjórnarskrá landsins, sem
tók gildi um áramót. Viktor Orban forsætisráðherra er sakaður um að hafa koll-
varpað stjórnskipan landsins til að tryggja sjálfan sig og íhaldsstefnu sína í sessi.
Í dag býður Iceland Express ölda flugsæta til London
og Köben á frábæru tilboðsverði, frá 12.999 kr., aðra
leið með sköttum og öðrum greiðslum.
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Takmarkað
sætaframboð, valdar dagsetningar.
Bókunartímabil: Í dag frá kl. 12.00–23.59
Ferðatímabil: 5. janúar – 29. febrúar 2012
Áfangastaðir: London og Kaupmannahöfn
Þú bókar á www.icelandexpress.is
LONDON OG KÖBEN FRÁ:
AÐEINS Í DAG!
noReGUR Fulltrúi Framfara-
flokksins í bæjarstjórn Skien í
Noregi hefur sakað stöðumæla-
verði bæjarins um að hygla
fulltrúum meirihlutans.
Í aðsendri grein í blaðið Vardan
furðar Thor Arild Bolstad sig á
því að hann og fleiri Framfara-
flokksmenn hafi fengið sekt fyrir
að leggja ólöglega við ráðhús
bæjarins, en hann hafi hins vegar
aldrei séð fulltrúa meirihlutans
fá sekt þrátt fyrir mörg tilefni.
Yfirmaður bílastæðamála í
bænum hafnar því að um mis-
munun sé að ræða. Verðir séu
einfaldlega ekki alltaf á vakt og
því séu ekki allir teknir. - þj
Pólitískt hitamál í Skien:
Segir stöðusekt-
ir vera pólitískar
Stöðubrot Bæjarpólitíkin er margslungin
í skien, ef marka má aðfinnslur fulltrúa
Framfaraflokksins. noRdicphoTos/AFp
DÓMSMÁl Þrír karlmenn hafa
verið dæmdir í Héraðsdómi
Suðurlands í tíu og fimmtán
mánaða fangelsi eftir að komið
var að þeim í sumarhúsi í Ölfus-
borgum, þar sem þeir voru að
baksa við að þurrka rúm 374
grömm af kókaíni í bakaraofni.
Einn mannanna sem viður-
kenndi að hafa smyglað kóka-
íninu til landsins var dæmdur í
fimmtán mánaða fangelsi. Hann
kvaðst hafa grafið efnin í jörðu,
þar sem þau hefðu legið í um
ár og því hefði þurft að þurrka
þau.
Hinir tveir, sem voru með
smyglaranum í sumarhúsinu
voru dæmdir í tíu mánaða fang-
elsi hvor vegna þátttöku þeirra í
þurrkuninni. -jss
Þrír dæmdir fyrir kókaínsmygl:
Reyndu að
þurrka kókaín í
bakaraofni
loftfiMleikar Kínverskt loftfimleika-
fólk skemmti á nýárshátíð í Fuzhou
um helgina. noRdicphoTos/AFp
rúðubrot í reiðikasti
Rúðubrot í húsnæði Björgunar-
félags Vestmannaeyja var tilkynnt til
lögreglunnar í umdæminu nýverið.
Þarna hafði drengur á sautjánda ári
brotið rúðuna í reiðikasti en honum
hafði eitthvað sinnast við félaga sinn.
Viðurkenndi hann rúðubrotið og
kvaðst tilbúinn til að bæta tjónið.
lögregluMál