Fréttablaðið - 04.01.2012, Síða 24
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Pamela J. Woods brautskráðist fyrst
doktorsnema með sameiginlega gráðu
frá Háskóla Íslands og Washington-
háskóla í Seattle fyrir áramót. Þetta
er jafnframt í fyrsta skipti sem dokt-
orsnemandi brautskráist sameiginlega
frá Washington-háskóla og erlendum
háskóla.
„Þeim í Washington leist nú upphaf-
lega ekkert sérstaklega á þetta fyrir-
komulag þar sem það átti sér enga hlið-
stæðu innan skólans. En eftir miklar
bréfaskriftir og bollaleggingar sáu
skólayfirvöld sig loks um hönd og féllust
á þennan ráðahag,“ viðurkennir Pamela
fyrir blaðamanni og hlær. „Þannig að ég
varð tilraunaverkefni sem heppnaðist og
kem til með að verða notuð sem fordæmi
í sambærilegum málum.“
Pamela hóf doktorsnám sitt í líffræði
í upphafi árs 2008, fyrst við Hólaskóla
og Háskóla Íslands og loks Washington-
háskóla en tveir síðarnefndu skólarnir
hafa um árabil átt í margvíslegu sam-
starfi.
Doktorsvörn Pamelu fór fram í Banda-
ríkjunum 22. nóvember og ber doktors-
verkefnið heitið Vistfræðilegur breyti-
leiki og fjölbrigðni í bleikju. „Í stuttu
máli sagt rannsakaði ég hvaða áhrif
umhverfi og fæða getur haft á útlit
bleikju sem reyndist afar ólíkt milli
svæða,“ útskýrir hún og segir Ísland
ákjósanlegan rannsóknarvettvang vegna
þess hversu algeng og fjölbreytt fersk-
vatnsbúkerfi séu hér fyrir hendi. Auk
þess sé öflugt og vandað rannsóknar-
starf unnið í háskólum landsins.
Spurð hvers vegna hún hafi valið sér
þetta viðfangsefni, segist Pamela einmitt
hafa viljað rannsaka hvernig lífverur
þróast með tilkomu ytri skilyrða. „Nið-
urstöðurnar, það er hversu ólík bleikja
reyndist eftir svæðum, sýna fram á
hversu erfitt getur verið að alhæfa eitt-
hvað um einstakar fisktegundir. Þannig
sýna þær jafnframt að tillit þarf að taka
til fjölbrigðni fisktegunda eins og bleikju
og umgangast þær af varkárni viljum við
ekki að þær verði fyrir slæmum áhrifum
af völdum veiða.“
Pamela er fædd og uppalin í bænum
Ledyard í Connecticut. Hún segist hafa
vitað sáralítið um land og þjóð áður en
hún flutti hingað frá Seattle fyrir fjórum
árum. Í raun hafi þar hálfgerð tilviljun
ráðið för. „Kunningi sem vissi hvað ég
ætlaði að rannsaka benti mér á að hafa
samband við Skúla Skúlason, rektor við
Hólaskóla, en hann varð seinna leiðbein-
andi doktorsverkefnisins ásamt Sig-
urði Snorrasyni prófessor við Háskóla
Ísland og Thomas P. Quinn prófessor
við Washington-háskóla. Eftir símtal við
Skúla „gúglaði“ ég Ísland og varð svo
hugfangin af myndunum að áður en ég
vissi af hafði ég pantað farmiða til lands-
ins,“ rifjar hún upp og segist ekki hafa
orðið fyrir vonbrigðum.
„Ísland er yndislegt land og flest fell-
ur mér í geð, mér finnst meira að segja
veðrið frábært!“ segir hún og hlær.
„Nú er bara vonandi að mér gefist færi
á að stunda áfram rannsóknir hérna.
Svo væri gaman að ná betri tökum á
tungumálinu en ég skráði mig einmitt í
íslensku í vor.“ roald@frettabladid.is
Pamela J. woods: fyrsti doktorsneminn frá HÍ og UH
Notuð sem fordæmi
Stolt „Vissulega var flókið að stýra rannsókn frá tveimur löndum en við það fékk ég góða reynslu
sem á eftir að nýtast vel,“ segir Pamela J. woods um rannsókn sína. fréttablaðið/anton
afmæli
Davíð Schev-
ing thor-
SteinSSon
athafnamaður
er 82 ára.
gunnar
þórðarSon
tónlistarmað-
ur er 67 ára.
Steingrímur
guðmunDS-
Son tónlistar-
maður er 54
ára.
Páll axel
vilbergSSon
körfuknatt-
leiksmaður er
34 ára.
breSka leikkonan Julia ormonD er 47 ára.
„Ef maður fæst við það sama of lengi fer það að skorta ögrun
og verður of auðvelt, en slíkt jafnast á við koss dauðans.“
47
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Eggertsdóttir
Árskógum 6, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 24. des. sl., verður
jarðsungin frá Seljakirkju í dag 4. jan. kl. 13.00.
Björgvin J. Jóhannsson Sigríður Þórsdóttir
Eggert Þ. Jóhannsson Valborg Harðardóttir
Hörður Jóhannsson Anne Malene Skåberg
Herdís Jóhannsdóttir
Ingvar J. Jóhannsson Árborg Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Dr. Med.dent.
Eyjólfur Þór Busk
lést mánudaginn 26. desember.
Jarðsetning fór fram í kyrrþey í Þýskalandi.
Gisela, Henning, Jens, Alexander
og fjölskyldur
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar elskulega sonar,
föður, tengdaföður, unnusta, bróður
og vinar,
Ragnars Leifs
Þrúðmarssonar
Hoffelli, Hornafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Hólmfríður Leifsdóttir Þrúðmar Sigurðsson
Snæbjörn Sölvi Ragnarsson
Þrúðmar Kári Ragnarsson Waraporn Chanse
Hildur Björg Ragnarsdóttir Heiðar Ingi Eggertsson
Gunnþóra Gunnarsdóttir
Þrúðmar Þrúðmarsson Ingibjörg Steinsdóttir
Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir Sigurbjartur Pálsson
Rúnar Þrúðmarsson Erna Hlín Þórðardóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Erna Þorsteinsdóttir
lést á hjartadeild Landspítalans 2. janúar. Útför fer
fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn
14. janúar kl. 14.
Gunnar Ólafur Eiríksson Guðríður Hilmarsdóttir
Gísli Guðni Sveinsson
Guðmundur Þórarinn Tómasson Sigurveig Birgisdóttir
Lilja Þorsteina Tómasdóttir Jón Guðbrandsson
Ásdís Steinunn Tómasdóttir Sigfús Gunnar
Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Steinn Guðmundsson
Boðaþingi 5, áður Háaleitisbraut 31,
sem lést miðvikudaginn 28. desember, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. janúar kl. 13.00.
Anna Þorvaldsdóttir
Dóra Steinsdóttir Páll Guðbergsson
Ásta Steinsdóttir Jörgen Pétur Guðjónsson
Guðmundur Steinsson
Þorvaldur Steinsson Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Gréta Þorbjörg
Steinþórsdóttir
Freyjugötu 30, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
5. janúar klukkan 13.00.
Ragnar Bragason
Þorsteinn Bragason Ólöf Örnólfsdóttir
Kristín Bragadóttir Karl Einarsson
Steinþór Bragason Hildur Þorbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Ingibjörg Jónasdóttir
Hverfisgötu 3, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar á Siglufirði,
fimmtudaginn 29. desember. Útförin fer fram frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn 7. janúar kl. 14.00.
Jónas Jónsson Jónsteinn Jónsson
Ari Jónsson Jóhanna Jónsdóttir
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR