Fréttablaðið - 04.01.2012, Síða 34
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR30
sport@frettabladid.is
Ég vona að allt
gangi vel og öllum
heilsist vel. Þá er ekkert því
til fyrirstöðu að ég fari með
landsliðinu á EM.
snorri steinn guðjónsson
landsliðsmaður
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að finna á
hAnDboltI „Það er ekkert að ger-
ast og við bíðum bara eftir því
sem koma skal,“ sagði leikstjór-
nandi íslenska landsliðsins, Snorri
Steinn Guðjónsson, en hann er
staddur í Danmörku á meðan
landsliðið undirbýr sig fyrir EM
hér heima.
Ástæðan fyrir fjarveru Snorra
er skiljanleg en unnusta hans,
Marín Sörens Madsen, er ólétt og
bíða skötuhjúin komu fjórða fjöl-
skyldumeðlimsins. Marín átti að
eiga annan í jólum en barnið ætlar
að láta bíða eftir sér. Eigi hún ekki
í vikunni verður hún væntanlega
gangsett um næstu helgi.
„EM er mér ekkert efst í huga
sem stendur. Ég held að það væri
nú hjá fæstum í minni stöðu. Ég er
að reyna að sinna konunni og svo
eigum við barn fyrir þannig að
það er nóg að gera. Ég reyni samt
að æfa og halda mér í formi þessa
daga,“ sagði Snorri Steinn en hann
æfir daglega með styrktarþjálfara
síns félags, AG í Kaupmannahöfn,
þannig að hann verði eins klár í
slaginn og hægt er ef hann getur
tekið þátt á EM.
Fer á eM ef allt gengur upp
„Þegar þetta er yfirstaðið tek ég
síðan stöðuna á hlutunum. Hvort
öllum heilsist ekki vel og svona.
Ef það gengur allt upp þá stefni
ég á að taka þátt í mótinu. Tengda-
mamma kemur og verður konunni
minni innan handar þannig að
þetta á að geta gengið upp.“
Leikstjórnandinn viðurkennir
engu að síður að það verði talsvert
skrítið að fara svo snemma frá
nýfæddu barni á stórmót í Serbíu.
„Það verður örugglega mjög
erfitt og skrítið. Þetta er engin
óskastaða. Ég hefði kannski getað
planað þetta betur,“ sagði Snorri
léttur og hló við. „Það er hvorki
gott fyrir mig né liðið að ég missi
af undirbúningnum og æfinga-
leikjunum sem eru fram undan.
Þetta er engu að síður staðan sem
er uppi og hana verður að tækla.“
Eins og Snorri segir verður það
erfitt og skrítið fyrir hann að fara
frá fjölskyldunni á þessum tíma
en hefur hann eitthvað íhugað að
hreinlega sleppa mótinu?
„Kannski ekki beint. Ég hef
alltaf hugsað þetta þannig að ég
yrði að taka stöðuna þegar barn-
ið kemur. Ég hef alltaf reiknað
með og búist við að fara á EM.
Það hefur ekki hvarflað að mér
að hringja í Gumma þjálfara og
segjast ætla að taka mér frí. Ég
vona að allt gangi vel og öllum
heilsist vel. Þá er ekkert því til
fyrirstöðu að ég fari þó svo að það
verði óneitanlega skrítið.“
Landsliðið má mjög illa við því að
missa Snorra Stein úr liðinu enda
hefur hann verið algjör lykilmaður
í liðinu undanfarin ár þar sem
landsliðið hefur verið að ná sínum
besta árangri í sögunni.
Snorri hefur verið í verulega
góðu formi í vetur og farið mik-
inn í ofurliði AG sem er efst í Dan-
mörku og staðið sig vel í Meistara-
deildinni.
„Ég hef verið mjög ánægður með
veturinn hjá mér og verið í fínu
formi. Þetta er búið að vera flott
tímabil bæði hjá mér og liðinu,“
sagði Snorri en hann hefur feng-
ið að spila meira eftir að Magnus
Andersson tók við liðinu en einnig
spilar fleira inn í.
„Arnór [Atlason] hefur líka verið
svolítið meiddur þannig að við
höfum ekki verið að skipta þessu á
milli okkar.“
Snorri segir að landsliðsþjálfar-
inn, Guðmundur Þórður Guðmunds-
son, sé pollrólegur yfir stöðunni og
sé ekki sífellt að athuga með það
hvort barnið sé komið í heiminn.
„Gummi heyrir eðlilega í mér
reglulega sem þjálfari og er að
athuga stöðuna. Hann hefur að
sjálfsögðu fullan skilning á stöð-
unni sem er uppi. Við förum svo
yfir málin þegar barnið kemur í
heiminn.“ henry@frettabladid.is
EM ekki efst í huga mér núna
Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson er í þeirri sérkennilegu aðstöðu að geta ekki tekið þátt í
undirbúningi landsliðsins fyrir EM þar sem hann bíður eftir því að verða faðir í annað sinn. Snorri segir að
eðlilega gangi fjölskyldan fyrir á þessari stund en gangi allt vel stefnir hann að því að fara með á EM.
ákveðinn leikstjórnandi snorri steinn hefur stýrt leik landsliðsins af miklum myndarskap undanfarin ár. Hann er hér í leik
gegn Króatíu sem er einmitt fyrsti andstæðingur Íslands á Em. fréttablaðið/valli
KöRfUboltI Það er óhætt að segja
að KR-ingar mæti með gerbreytt
lið á nýju ári því Hrafn Krist-
jánsson, þjálfari KR, fær nú það
verkefni að koma þremur nýjum
erlendum leikmönnum inn í
leik KR-liðsins. KR-ingar hafa
samið við tæplega tveggja metra
háa serbneska skyttu, Dejan
Sencanski, sem bætist við Banda-
ríkjamennina Josh Brown og Rob
Ferguson sem eru byrjaðir að æfa
með liðinu.
„Þetta er ekki kjörstaða og
ekki það sem lagt var upp með,“
segir Hrafn. Sencanski er 198 cm
þriggja stiga skytta, Brown er 187
cm bakvörður og Ferguson er 203
cm kraftframherji.
„Ég býst alveg við því að
þetta verði svolítið stirt
hjá okkur á fimmtu-
daginn. Vonandi
erum við að stefna
í hraðari leik-
stíl og um leið
leikstíl sem
við höfum
viljað vera
að spi la
í a l l a n
vetur,“
segir
Hrafn. KR sat í 7. sæti deildar-
innar yfir hátíðarnar og Íslands-
meistararnir voru ekki að hrífa
marga í síðustu leikjum sínum
fyrir jól.
„Við erum ekkert að missa
okkur því það eru bara fjögur stig
í annað sætið. Það er gríðarlega
mikilvægur leikur fyrir okkur á
mánudaginn,“ segir Hrafn og er
þar að tala um bikarleik á móti
toppliði Grindavíkur. „Hann skipt-
ir gríðarlega miklu máli varðandi
það að gefa okkur smá vinnufrið
til þess að kýla liðið saman fyrir
lokaátökin. Við erum ekki
í þessu til þess bara
að vera með. Við telj-
um okkur vera að taka
skref til þess að verja
titilinn og það eru öll
önnur lið að því,“ segir
Hrafn sem býst við
breytingum hjá mörg-
um liðum í Iceland
Express-deildinni.
„Það kæmi mér ekk-
ert á óvart þó að það
væri kominn inn auka-
maður hjá helmingi liða
deildarinnar ef ekki
meira,“ sagði Hrafn
að lokum. -óój
KR teflir fram þremur nýjum útlendingum á nýju ári:
Hrafn vill meiri hraða
Frakkar eru núverandi heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar og eiga nú möguleika á því að vinna
fimmtu gullverðlaunin í röð á EM í Serbíu. Frakkar urðu Ólympíumeistarar í Peking 2008, heimsmeistarar
í Króatíu 2009, Evrópumeistarar í Austurríki 2010 og heimsmeistarar í Svíþjóð 2011. Franska liðið hefur
aðeins tapað 1 af 36 leikjum sínum (31 sigur, 4 jafntefli) á þessum fjórum stórmótum.
eM
í handbolta
2012
12
dagar
Enska úrvalsdeildin
tottenham - West brom 1-0
1-0 Jermain defoe (63.)
Wigan - Sunderland 1-4
0-1 Craig Gardner (45.+4), 0-2 James mcClean
(55.), 1-2 Hugo rodallega (62.), 1-3 stéphane
sessegnon (73.), 1-4 david vaughan (80.)
Manchester City - liverpool 3-0
1-0 sergio agüero (10.), 2-0 Yaya touré (33.), 3-0
James milner, víti (73.)
staðan í deildinni:
Man. City 20 15 3 2 56-16 48
man. united 19 14 3 2 49-17 45
tottenham 19 13 3 3 36-20 42
Chelsea 20 11 4 5 39-25 37
arsenal 20 11 3 6 36-28 36
liverpool 20 9 7 4 24-18 34
newcastle 19 8 6 5 26-25 30
stoke 20 8 5 7 22-31 29
norwich 20 6 7 7 30-35 25
sunderland 20 6 6 8 27-23 24
everton 18 7 3 8 19-20 24
swansea 20 5 8 7 20-23 23
aston villa 20 5 8 7 22-26 23
fulham 20 5 8 7 22-26 23
West Brom 20 6 4 10 19-28 22
Wolves 20 4 5 11 22-36 17
QPr 20 4 5 11 19-35 17
Wigan 20 3 6 11 18-41 15
Blackburn 20 3 5 12 29-43 14
bolton 19 4 1 14 23-42 13
leikir klukkan 20.00 í kvöld:
newcastle - Man.united stöð 2 sport 2
Everton - bolton stöð 2 sport 3
úrslitin í gær
KöRfUboltI Jaleesa Butler, leik-
maður Keflavíkur, og Sverrir
Þór Sverrisson, þjálfari Njarð-
víkur, voru valin best í fyrri
umferð Iceland Express-deildar
kvenna en valið var tilkynnt í
gær.
Jaleesa Butler hefur spilað
frábærlega með Keflavíkurlið-
inu sem er á toppi deildarinn-
ar en liðsfélagi hennar, Pálína
Gunnlaugsdóttir, var einnig í
úrvalsliðinu. Butler var með
21,5 stig, 15,0 fráköst, 4,2 stoð-
sendingar og 4,2 varin skot að
meðaltali í leik.
Aðrar í úrvalsliðinu voru Hild-
ur Sigurðardóttir hjá Snæfelli,
Petrúnella Skúladóttir hjá Njarð-
vík og Sigrún Ámundadóttir hjá
KR en þær hafa allar slegið í
gegn á sínu fyrsta tímabili hjá
nýju félagi.
Sverrir Þór stýrði Njarðvíkur-
liðinu til sigurs í 10 af 14 leikjum
sínum í fyrri hlutanum og þar á
meðal var 41 stigs sigur á topp-
liði Keflavíkur. Njarðvík er í 2.
sæti en var spáð sjötta sætinu
fyrir tímabilið. Íris Sverrisdótt-
ir hjá Haukum var síðan valin
dugnaðarforkur deildarinnar.
Fimmtánda umferðin fer öll
fram í kvöld og þá mætast Kefla-
vík-Fjölnir, Snæfell-Valur, Njarð-
vík-Haukar og Hamar-KR. - óój
Iceland Express-deild kvenna:
Butler og Sverrir
Þór valin best
jaleesa Butler Í aðalhlutverki hjá efsta
liði deildarinnar. fréttablaðið/anton
fótboltI Liverpool tilkynnti í
gær að félagið ætli ekki að áfrýja
átta leikja banni sem enska sam-
bandið dæmdi Luis Suárez í fyrir
kynþáttaníð gagnvart Patrice Evra
hjá Man. United.
Liverpool gaf frá sér yfirlýsingu
þar sem félagið telur best fyrir
alla að ljúka málinu, horfa til fram-
tíðar og sameinast í baráttunni við
að að útrýma kynþáttafordómum
innan sem utan vallar. Luis Suárez
var ekki með á móti Manchester
City í gær en ætti að snúa aftur
í deildarleik á móti Tottenham
6. febrúar. Hann missir af fimm
deildarleikjum og þremur bikar-
leikjum, þar af báðum undanúr-
slitaleikjunum á móti City í enska
deildabikarnum. - óój
Luis Suárez byrjaði í átta leikja banninu í gær:
Liverpool áfrýjaði ekki
þriggja stiga Forysta sergio aguero fagnar hér marki sínu í gær. nordiCpHotos/GEttY