Fréttablaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 60
Stórhöfða 23 | sími 415 1500 | www.simafelagid.is
Áhugaverð störf við tækniþjónustu hjá Símafélaginu
Símafélagið ehf. óskar eftir þjónustulunduðum og metnaðarfullum
einstaklingum til starfa við tækniþjónustu.
Símafélagið er ört vaxandi arskiptafyrirtæki sem
býður upp á nettengingar, símaþjónustu, farsíma-
þjónustu og símkerfisþjónustu.
Okkar helstu viðskiptavinir eru fyrirtæki og stofnanir.
Áhugasamir sendi umsóknir og ferilskrá
á netfangið atvinna@simafelagid.is
Hæfniskröfur
Hæfni í mannlegum samskiptum
Öguð vinnubrögð
Reynsla af sambærilegum störfum kostur
Þá er einnig kostur ef umsækjandi hefur þekkingu
á netkerfum, símkerfum, CISCO, VoIP og Linux.
Starfslýsing
Tækniþjónusta við viðskiptavini í síma
Bilanagreining
Uppsetning á nettengingum og símkerfum
VANTAR ÞIG VINNU?
Við hjá Prooptik leitum að þjónustuglöðum
einstaklingi til að sinna sölustarfi.
Starfshlutfall er 100% og
umsóknarfrestur er til 15. maí.
Umsókn ásamt ferilskrá skal send á netfangið:
matti@prooptik.is
Rangárþing eystra
Leikskólinn Örk á Hvolsvelli
auglýsir lausar stöður.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.
Hæfnikröfur starfsmanna:
Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, hafa góða íslenskukunnáttu, vera við góða heilsu og sýna frumkvæði, sveigjanleika, sjálfstæði og
metnað fyrir starfi sínu. Þeir þurfa að vera tilbúnir til að vinna að uppeldi og menntun barnanna á leikskólanum í samræmi við námskrá og í nánu
samstarfi við stjórnendur. Ekki er verra ef viðkomandi hefur eilítið gaman af lífinu og er brosmildur.
100% staða aðstoðarleikskólastjóra
Starfssvið:
• Starfar að stjórnun leikskólans við hlið leikskólastjóra
og er staðgengill hans.
• Hefur yfirumsjón með skipulagi sérkennslumála skólans
og tekur þátt í framkvæmd sérkennslu.
• Brosa og dreifa gleði og visku.
• Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskóla-
stjóra.
Menntunarkröfur:
• Leikskólakennaramenntun er áskilin. Menntun og/eða reynsla á
sviði stjórnunar og sérkennslu er æskileg.
• Ráðning er til eins árs, með miklum möguleika á framhaldsráðningu.
50% staða sérkennara
Starfssvið:
• Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskóla-
stjóra.
Menntunarkröfur:
• Leikskólakennaramenntun er áskilin. Menntun og/eða reynsla á
sviði sérkennslu er æskileg.
• Ráðning er til eins árs, með miklum möguleika á framhaldsráðningu.
100% staða deildarstjóra
til 1 árs vegna leyfis frá 15. ágúst 2016- 15. ágúst 2017.
100% staða deildarstjóra
frá 1. september 2016.
Starfssvið:
• Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskóla-
stjóra.
Menntunarkröfur:
• Leikskólakennaramenntun.
• Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar er æskileg.
100% stöður leikskólakennara.
Starfssvið:
• Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskóla-
stjóra.
Menntunarkröfur:
• Leikskólakennaramenntun.
Leikskólinn Örk er 5 deilda leikskóli þar sem starfa rúmlega 100 hressir nemendur og 35 glaðir kennarar og starfsmenn.
Uppeldisstefna Arkarinnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi og gagnrýnin og tileinki
sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starfi og taka ígrundaðar ákvarðanir sem
byggðar eru á þekkingu þeirra og gildismat.
Umsóknarfrestur er til 22. maí nk.
Við erum spennt að fá nýtt starfsfólk og því er æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá og meðmælum á á heimasíðu leikskólans http://www.leikskolinn.is/ork undir flipanum;
Um leikskólann – Starfsumsóknir.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda í leikskólum við launanefnd sveitarfélaga.
Fáist ekki leikskólakennarar er heimilt að ráða aðra í stöðurnar til eins árs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristín Helgadóttir leikskólastjóri í síma 488 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.
Í Rangárþingi eystra búa um 1800 íbúar í einstaklega fallegu umhverfi. Stjórnsýsla sveitarfélagsins er á Hvolsvelli.
Veitt er góð þjónusta við íbúa sveitarfélagsins. Þar er framsækinn grunnskóli og íþrótta- og tómstundastarf er öflugt.
Okkur vantar
Aðstoðarmann í prentsal
Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Starfsreynsla í prentsmiðju er kostur
en ekki skilyrði.
Óskum eftir jákvæðum einstakling með ríka
þjónustulund og á auðvelt
með mannleg samskipti.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á
halldor@isafold.is
Umsóknarfrestur er til 16. maí.
Ísafoldarprentsmiðja er eitt af elstu fyrirtækjum landsins, stofnuð 1877.
Hjá fyrirtækinu starfa 60 manns. Ísafoldarprentsmiðja býður
heildarlausnir í prentþjónustu og er leiðandi í hagkvæmum lausnum.
Suðurhraun 1
Garðabæ
Sími: 595 0300
www.isafold.is
u u u u
u u u u
SECURITY AND DETECTION GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
Security and Detection Guard lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2016.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for
the position of Security and Detection Guard. The closing
date for this postion is May 13, 2016. Application forms and
further information can be found on the Embassy’s home
page:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
Please send your application and resumé to :
reykjavikvacancy@state.govFjölbreytt, krefjandi og skapandi starf
Ég er hreyfihömluð og daufblind baráttukona. Ég óska
eftir sjálfstæðum og drífandi aðstoðarkonum á sveigjanlegar
vaktir, á öllum tímum sólarhringsins. Ég þarf aðstoð við allar
hversdagslegar athafnir svo sem til að sinna persónulegu
hreinlæti, matreiða, sinna skóla og félagsstörfum, svo ekki sé
minnst á allt það óvænta í lífinu.
Hæfniskröfur: Starfið krefst samviskusemi, vandvirkni,
stundvísi, áreiðanleika og færni í mannlegum samskiptum,
auk frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða. Góð almenn
menntun, kunnáttu í íslensku og enskri stafsetningu og
almenn tölvuþekking er mikill kostur og bílpróf er skilyrði.
Samskiptaleiðir verða kenndar á vinnustað auk þess sem
starfsfólki standa táknmálsnámskeið til boða.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA-miðstöðvar við
Eflingu stéttarfélag. Áhugasömum er bent á að hafa samband við
mig á netfangið: snaedis8@gmail.com.
Kveðja, Snædís Rán Hjartardóttir